Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Síða 12
72 FIMMTUDAGUR 15.JANÚAR2004
Fréttir DV
Kærðurfyrir
líkamsárás
Knattspyrnumaðurinn
Jón Þorgrímur Stefánsson,
sem leikur með
Landsbankadeildarliði FH,
var fyrir dómi í gær þar sem
honum var birt kæra um
líkamsárás sem átti sér stað
9. febrúar á síðasta ári.
Málinu var frestað fram í
mars samkvæmt Daða
Kristjánssyni fulltrúa hjá
lögreglunni í Reykjavík en
Jóni Þorgrími er gefið að
sök að hafa ráðist á mann,
nefbrotið hann og veitt
aðra áverka. Daði sagði í
samtali við DV í gær að
brotið væri refsivert
samkvæmt hegningar-
lögum en liann bjóst samt
ekki við öðru en að Jón
Þorgrímur fengi
sldlorðsbundin dóm. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem Jón
Þorgímur sýnir
ofbeldisfulla hegðun en
skemmst er að minnast
þess þegar hann réðst á
ljómyndara DV í september
1999, þá leikmaður með
Val. Þetta var í lokaleik
mótsins það ár og urðu
úrslitin þannig að
Valsmenn féllu.
Ljósmyndari DV ætlaði að
taka myndir að leik loknum
en Jón Þorgrímur fann sig
knúinn til að ráðast á
ljósmyndarann.
Máflytja GSM
númer
Frá og með 1. október
næstkomandi eiga notend-
ur að geta skipt um
símafyrirtæki án
þess að þurfa að
skipta um númer
eins og verið hef-
ur hingað til.
Póst- ogfjar-
skiptastofnun tel-
ur það sam-
keppnishindrun
að þurfa að skipta
um númer, auk
þess sem því fylgir
kostnaður. Þessu átti að
hrinda í framkvæmd fyrir
þó nokkru síðan, en síma-
fyrirtækin báðu um frest
vegna tæknilegra erfiðleika.
Leoncie
„Ég hefsett húsið mitt í Sand-
gerði á sölu og efég get selt
það þá fer ég aflandi brott hið
fyrsta. Ég heffengið mig
fullsadda á kynþáttafordóm-
Landsíminn
--------—————-----— iuiiui,
sérstaklega í tónlistarbransan-
um þar sem menn úthrópa
mig fyrir að vera aföðrum
kynþætti en þeim hvíta. Ég get
sungið á mörgum tungumál-
um og efast ekkert um það að
ég geti orðið fræg úti í löndum
eins og hér.
Fyrstu niðurstöður bandarísku sérfræðisveitarinnar á leitarsvæðinu við Qurnah í
írak liggja fyrir. Fullljóst þykir að stórfundur íslensku sprengjuleitarmannanna er
ekki eins stór og í fyrstu var talið. Landhelgisgæslan er þrátt fyrir allt ánægð með
árangurinn.
Ekkert sinnepsgas í sögu-
legum íundi Islendinga
Fyrstu niðurstöður bandarísku sérfræðisveit-
arinnar á leitarsvæðinu við borgina Qurnah í Irak
liggja nú fyrir og óhætt að segja að þær koma
verulega á óvart því sveitin segir að öllum líkind-
um sé ekld um efnavopn eða sinnepsgas að ræða.
Samkvæmt upplýsingum er DV fékk frá stjórnstöð
dönsku sérsveitanna í Kaupmannahöfn um miðj-
an dag í gær bentu rannsóknir á fyrstu flmm
sprengjunum til að engin eiturefni væru í þeim.
Gylfi Geirsson yfir-
maður sprengjudeildar
Landhelgisgæslunnar
segir málið allt nokkuð
undarlegt. „Það var að
vísu alltaf fyrirvari á að
um efnavopn væri að
ræða þar til fullnaðar-
rannsókn hefði farið
fram,“ segir hann.
„Hvað okkar menn
varðar stendur hinsveg-
ar uppúr að þeir hafa
fengið mikið hrós bæði
frá dönskum yfirmönn-
um sínum svo og
Bandaríkjamönnum fyr-
ir fagleg og vel unnin
störf.“
I máli Gylfa kemur
einnig fram að það sé spurning um hvort Danirn-
ir hefðu átt að tilkynna um fundinn á sprengjun-
um sem efnavopnafund svo fljótt sem þeir gerðu.
Samkvæmt upplýsingum frá dönsku sérsveit-
unum hefur bandaríska sérsveitin ekki fyrr rekist
á sprengjur af þeirri gerð sem íslendingarnir
Jónas Þorvaldsson og Adrian King fundu fyrstir
Halldór Ásgrímsson
Utanríkisráðherra lýsti
sprengjufundinn sem
heimsfrétt á sunnudag. Engin
viðbrögð höfðu i gærkvöld
borist frá ráðherra um þær
upplýsingar að það hefðu
ekki verið gereyðingarvopn i
sprengjunum.
„Hvað okkarmenn varðar
stendur hinsvegar uppúr
að þeir hafa fengið mikið
hrós bæði frá dönskum
yfirmönnum sín-
um svo og
Bandaríkja-
mönnum fyrir
fagieg og vel
uinnin störf."
manna. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að
senda nokkrar af sprengjunum til rannsóknar-
stofu í Idaho í Bandaríkjunum. Einnig verður
kannað hvernig á því getur staðið að fjórar próf-
anir með tiltölulega nýjum prófunartækjum gefa
allar þær niðurstöður að um efnavopn eða sinn-
epsgas er að ræða.
Heimsatburðurinn horfinn
Eins og fram kom um síðustu helgi vakti
sprengjufundurinn mikla athygli víða um heim og
Halldór Ás-
grímsson
utanríkis-
ráðherra
átti vart
orð til að
lýsa
ánægju
sinni með
að það
skyldu
vera ís-
lend-
manna fundu það sem fjöldi annarra hafði leitað
lengi að. Það var einkum áætluð efnavopnaeign
Iraka sem notuð var til að réttlæta innrásina í
landið á sínum tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá dönsku sérsveit-
unum hefur verið rætt við staðarbúa um málið og
fram hefur komið í þeim viðtölum að margir
þeirra flýðu frá svæðinu árið 1984 þegar stórorr-
usta geisaði þar í írak-íran stríðinu. Er þeir komu
til baka eftir orrustuna fundu þeir 20 látna sam-
borgara sína, um 100 dauðar kýr og urn 1.000
dauðar ær. Á þeim dauðu voru engin merki um
sár á líkamanum en hinsvegar blæddi
úr munnvikum bæði manna og
dýra. Slíkt bendi til að efnavopn
hafi verið notuð á svæðinu í
þessari orrustu.
tngar
sem
fyrstir
Öryggi fullnægjandi í Hvalfjarðargöngum
„Auðvitað er aldrei neitt l'ull-
komið en í Hvalfjarðargöngunum er
öryggi vegfarenda vel tryggt," segir
Björn Karlsson, forstöðumaður
Brunamálastofnunar. I frétt DV í
gær kom fram að samkvæmt tilskip-
unum ESB þarf að herða allt öryggi
til muna í jarðgöngum þar sem um-
ferð er meiri en fjögur þúsund bflar
á dag. Meðalumferð um Hvalfjarð-
argöngin á síðasta ári var tæplega
3.900 bflar á sólarhring.
„Grettistaki hefur verið lyft síð-
asta árið eða svo varðandi forvarnir
og viðbrögð björgunarsveita og
slökkviliðs ef upp kemur alvarlegt
slys eða eldur í göngunum. Ýmsir
vinnuhópar hafa starfað að sér-
hæfðum verkefnum vegna öryggis-
mála undanfarið og talsverður ár-
angur hefur náðst. Auk þess hefur
öll samvinna þeirra ólíku hópa sem
að göngunum koma batnað til
muna.“
Björn segir þó að vel sé fylgst með
allri umferðaraukningu í göngunum
og tillit tekið til slíkra atriða í öllum
undirbúningi æfinga slökkviliðs.
Ágreiningur er uppi á milli
rekstraraðila ganganna, Spalar ehf,
og Vegagerðarinnar um þann fjölda
sem fór um göngin á síðasta ári. Hjá
Speli vilja menn meina að hún hafi
verið 3.500 bflar að meðaltali á dag
sem er 400 bflum færra en sjálfvirk-
ir mælar í botni ganganna gefa til
kynna. Á háannatíma í júní og júlí
fer meðalumferð þó hátt í sex þús-
und bfla á dag. Þannig geta hund-
ruð bifreiða verið í göngunum á ein-
um og sama tíma og ekkert má
koma upp á til að illa geti farið.
Hvalfjarðargöngin Brunamálastjóri segir Hvalfjarðargöngin uppfylla þá norsku öryggis-
staðla sem krafist er.