Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Húsvíkingar
fá hugbún-
aðarhús
Byggðastofnun kaupir
hlutafé í hugbúnaðarfyrir-
tækinu Doc hf. fyrir 15
milljónir króna gegn
því að fyrirtækið
flytji starfsemina
til Húsavíkur.
Hlutaíjárkaup
Byggðastofnunar í
Doc hf. er hluti af
stærra verkefni sem lýtur
að kaupum stofnunarinnar
í 23 fyrirtækjum vítt og
breitt um landsbyggðina.
Samtals er keypt hlutafé
fyrir tæpar 348 milljónir
króna í nýsköpunar- og
sprotafyrirtækjum í ýmsum
atvinnugreinum.
Að sögn Gunnars Hall,
framkvæmdastjóra Doc hf.,
veitir samstarfið við
Byggðastofnun fyrirtækinu
tækifæri til að bjóða störf í
hugbúnaðarhúsi á Húsavík.
Doc hf. er alfarið í eigu
Tölvumynda hf. Að sögn
Gunnars starfa þegar um
30 manns á vegum Tölvu-
mynda og dótturfyrirtækja
þess á Akureyri.
Mikil neyð
í Súdan
Sífelldar skærur og átök
í Súdan hafa valdið því að
600 þúsund manns
eru á vergangi víðs-
vegar um landið.
Tæplega 100 þúsund
hafa sest að við
landamæri Súdans
og Chad og hyggjast
flýja land ef hætta
steðjar að.
Hjálparstofnanir hafa
óskað eftir meiri aðstoð en
matvæli eru af mjög skorn-
um skammti og hung-
ursneyð er yftrvofandi.
Flugslys í
Rússlandi
Allt að 37 létust þegar
rússnesk Yak-40 flugvél
fórst nálægt
Tashkent í
fyrradag. Or-
sakir slyssins
eru ókunnar
en rannsókn
stendur yftr.
Meðal far-
þeganna var háttsettur er-
indreki Sameinuðu þjóð-
anna. Flugslys eru tíð í
Rússlandi og vilja rnargir
kenna um úreltum flugvél-
um en margar þeirra eru
kornnar vel til ára sinna.
Guðmundur Guðmundsson,
þjálfari íslenska landsliðsins í
handbolta.
„Ég hefþað fínt. Það er búið
að vera brjálað að gera að
undanförnu við undirbúning
vegna EM í Sióveniu. Það hefur
mikið gengið á við að velja
mannskapinn og enn er
óvissa um tvo leikmenn.
Æfingaleikirytra um helgina
munu sýna stöðu okkar gagn-
vart þeim sterkustu. Þetta er
spennandi og krefjandi verk-
efni fyrir mig og landsliðið í
heiid."
Mosfellsbær brigslar Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála um óvönduð
vinnubrögð. Nefndin segir bæinn hafa brotið á andmælarétti húseiganda þegar
hann var skikkaður til að fjarlægja aukahús af lóð sinni. Ákvörðun bæjarins var
því ógilt en bærinn hyggst taka nýja ákvörðun - að fengnum andmælum húseig-
andans sem furðar sig á gangi mála.
Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ eru vonsvikin vegna
ógildingar Úrskurðarnefndar skipulags- og bygg-
ingarmála á ákvörðun bæjarins um að eiganda ein-
býlishúss í Skammadal verði gert að fjarlægja það.
Úrskurðarnefndin segir húseigandann ekki hafa
notið andmælaréttar.
Bærinn segir vinnu-
brögð óvönduð
Skipulags- og bygging-
anefnd lýsti í gær furðu
sinni á vinnubrögðum úr-
skurðarnefndarinnar í til-
efni af kæru Guðmundar
Lárussonar á hendur Mos-
fellsbæ fyrir að kreíjast þess
að hann fjarlægði óleyfis-
byggingu við hús sitt Höfða Guðmundur
íSkammadal: Lárussonm Telurfor-
„Nefndin harmar þau sendur breyttar með nýju
óvönduðu vinnubrögð sem aðalskipulagi og að Mos-
viðhöfð voru. í úrskurði fellsbær hafi enga hags-
nefndarinnar er ekki tekin ™mafþvi að rifa hús
afstaða til ágreiningsmáls-
ins, sem er hvort hús sem samþykkt var stöðuleyfl
fyrir til eins árs og í tvígang framlengt skuli fá að
standa til frambúðar," segir skipulagsnefnd Mos-
fellsbæjar í harðorðri bókun.
Fékk ekki að svara fyrir sig
Guðmundur fékk árið 1999 tímabundið stöðu-
leyfl til eins árs fyrir viðbótarbyggingunni. Hann
sótti síðar um leyfl til frambúðar. Skipulagsnefndin
hafnaði því og ákvað að byggingin skyldi hverfa af
lóðinni.
Úrskurðarnefndin segir í niðurstöðu sinni að
þessi ákvörðun skipulagsnefndarinnar hafi verið
„Tók nefndina rúmlega ár að
komast að þessari niðurstöðu
þrátt fyrir að hún skuii kveða
upp úrskurð innan þriggja mán-
aða samkvæmt lögum og það
eralgerlega óásættanlegt."
Höfði Höfði var byggður 1937, ofan Reykjalundar. Húsið var um árabil félagsheimili Sambands islenskra samvinnufélaga.
Guðmundur Lárusson tannlæknir keypti húsið og bætti, fyrir nokkrum árum, við það litlu húsi.
íþyngjandi fyrir Guðmund og haft fjárhagslegar af-
leiðingar í för með sér fyrir hann. í slíku tilviki hafi
skipulagsnefndinni borið að láta Guðmund njóta
andmælaréttar í samræmi við stjórnsýslulög. Það
hafi ekki verið gert og því ógildi úrskurðarnefndin
ákvörðunina um niðurrifið.
Furðuleg niðurstaða segir bærinn
„Niðurstaða (úrskurðar)nefndarinnar um að
andmælaréttar hafi ekki verið gætt er furðuleg í
ljósi þess að erindi frá Guðmundi um heimild til
varanlegrar staðsetningar óleyfisbyggingar við
Höfða hefur tvisvar verið tekið fyrir og hafnað eftir
að tilkynnt hafði verið í samþykkt nefndarinnar að
ekki yrði um frekari framlengingu á stöðuleyfi að
ræða,“ segja Mosfellsbæingar. Þeir fullyrða að
Guðmundur hafi einmitt getað andmælt með
kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar.
Sjónarmið Guðmundar er meðal annars það að
frá því stöðuleyfið var veitt árið 1999 hafi skipulagi
lóðarinnar verið breytt úr grænu svæði í almennt
byggingarsvæði. Húsið hafi mikið gildi fyrir hann
en bærinn hafi enga hagsmuni af því að húsið
hverfi.
Halda niðurrifinu til streitu
„Það tók nefndina rúmlega ár að komast að
þessari niðurstöðu þrátt fyrir að hún skuli kveða
upp úrskurð innan þriggja mánaða samkvæmt lög-
um og er það algerlega óásættanlegt - sérstaklega í
ljósi þess að nefndin tekur kæruna ekki til efnis-
legrar umfjöllunar," segja skipulagsnefndarmenn
sem boða að 10. febrúar muni þeir taka fyrir þá
kröfu að mannvirkið umdeilda verði fjarlægt:
„Guðmundi verði gefinn kostur á að koma á
framfæri við nefndina andmælum sínum við að
byggingin skuli fjarlægö."
Eigandinn hissa á hörku bæjarins
Auk þess sem deilt er um viðbótarbyggingu Guð-
mundar er ágreiningur um það hvort hann njóti
réttar til heilsársbúsetu í Höfða. Sjálfur telur hann
sig hafa bréf frá bænum sjálfum sem sanni það en
skipulagsnefndin segir réttinn „ekki til staðar".
Eigandi Höfða er hissa á afstöðu skipulags-
nefndarinnar. „Það kemur mér ákaflega á óvart ef
sveitarstjórnin ætlar ekki að virða þennan úr-
skurð,“ segir Guðmundur Lárusson.
gar@dv.is
Hafrannsóknastofnun telur veiðar
geta skaðað stofninn
Loðnuveiðar
bannaðar
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
fyrirskipað veiðibann á loðnu í tvær
vikur, eftir að Hafrannsóknastofnun
lauk við úrvinnslu mælingar 10
loðnuskipa frá 3. til 5. janúar. Eftir
mælinguna var rætt um að loðnan
væri fundin og veiðar fóru á fullt. Því
kemur veiðibannið á óvart. Sam-
kvæmt niðurstöðum Hafró er loðn-
an mjög dreifð, þrátt fyrir að hennar
hafi orðið vart víða út af Norður- og
Norðausturlandi. „Niðurstaða mæl-
ingarinnar var því sú að stofninum
gæti stafað hætta af veiðunum verði
[þeim] nú fram haldið," segir í
fréttatilkynningu stofnunarinnar.
„Við vorum mjög hissa," segir Jón
B. Jónasson, skrifstofustjóri sjávar-
útvegsráðuneytisins. „Við héldum
að það væri búið að staðreyna það
magn sem búið var að gefa út. Það
var sáralíti𣣠sem fannst, þetta
reyndist svo þunnur peðringur, eins
og sagt er á sjómannamáli. Menn
voru komnir á fullt og þetta er
bakslag fyrir marga."
Hafrannsóknastofnun mun nú
gera aðra tilraun til að finna loðn-
una innan tveggja vikna.
jontrausti@dv.is