Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Page 23
DV Sport FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 23 í þungum þönkum Guðmundur Gudmundsson, landsliðsþjálfari i handknattleik, hefur um nóg aö hugsa þessa dagana enda er hann með meidda lykilmenn og stutt i Evrópumeistaramótið ÍSIóveniu. Staðreynd um strákana okkar ■ Staðreynd um strákana okkar Snorri Steinn blómstraði Snorri Steinn Guðjónsson blómstraði í stöðu leiksjórnanda landsliðsins í fjarveru Dags Sigurðssonar; skoraði 11 mörk, gaf 3 stoðsendingar, tapaði ekki bolta og nýtti skotin sín 69%. TÖLFRÆÐI SNORRA Leikir 3 Mörk 11/1 víti Skot 16/1 víti Skotnýting 69% Stoðsendingar 3 Stoðsendingar inn á línu 2 Tapaðir boitar 0 Snorri Steinn sterkur SnorriSteinn Guðjónsson sannaði sig sem mikilvægur hlekkur I islenska landsliðinu með frammi- stöðu sinni i landsleikjunum gegn Sviss. Mun færri tapaðir boltar gegn Sviss íslensku landsliðsmönnunum hélst mun betur á boltanum í leikjunum þremur gegn Sviss á dögunum heldur en þegar Pólverjar komu hingað í heimsókn um mánaðamótin október-nóvember. Gegn Pólverjum tapaði íslenska landliðið boltanum 44 sinnum í þessum þremur leikjum, þar af 16 sinnum í síðasta leiknum og 11 sinnum í seinni hálfleik á öðrum leiknum. Gegn Sviss gerðu íslensku strákarnir mun betur og töpuðu nánast helmingi færri boltum, aðeins 23 á móti 44 gegn Pólverjum. íslenska liðið tapaði aldrei yfir 10 boltum gegn Sviss. FÆRRI TAPAÐIR BOLTAR Gegn Póllandi l.leikur (31-28) 14 2. leikur (28-28) 14 3. leikur (33-32) 16 Samtals 44 Gegn Sviss l.leikur (25-32) 8 2. leikur (26-22) 7 3. leikur (31-22) 8 Samtals 23 [ fyrri hálfleik Gegn Póllandi 18 Gegn Sviss 12 Samtals 30 f seinni hálfleik Gegn Póllandi 26 Gegn Sviss 11 Samtals 37 Heldur Njarðvík taki sínu á KR? 13. umferð Intersport- deildarinnar í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum en þar ber hæst leik KR og Njarðvíkur í DHL- Höllinni í Vesturbænum. Njarðvíkingar virðast vera komnir með fast tak á KR- ingurn, hafa unnið aUa fjóra leiki liðanna til þessa í vetur og alls sjö leiki í röð gegn KR í deild (2), bikarkeppni (1), fyrirtækjabikar (2) og úrslitakeppni (2). KR-ingar unnu Njarðvík síðast í deildinni í Njarðvík 13. desember 2002. KR-ingar teíla nú fram tveimur bandarískum leikmönnum í stað eins áður og það verður gaman að sjá hvernig þeir finna sig gegn Hópbflabikarmeist- urum Njarðvíkur sem lok- uðu alveg á Chris Woods, sem skoraði rúmlega 10 stigum minna að meðaltali gegn Njarðvík en gegn öðrum liðum. Meiðsl á meiðsl ofan í LA Þrjár af fjórum súperstjörnum NBA- körfuboltaliðsins Los Angeles Lakers glíma þessa dagana við meiðsl og gengi liðsins hefur í kjölfarið verið hálf dapurt Síðastur til að meiðast var Kobe Bryant en meiðsl á öxl þýða líklega þriggja vikna fjarveru. Karl Malone hefur ekkert leikið á þessu ári vegna sinna hné- meiðsla, auk þess sem Shaquille O'Neal hefur ekki leikið síðustu fimm leiki vegna meiðsla á kálfa. „Við þurfum að leika fullkominn leik til að halda okkur inni í næstu leikjum," lét Gary Payton hafa eftir sér en hann er eina súperstjarna liðsins sem er klár í slaginn. Lakers vann 20 af 25 leikjum síðum áður en Malone meiddist en síðan þá hefur liðið tapað sex af síðustu níu leikjum. Þjálfarinn Phil Jackson er að sjálfsögðu ekki ánægður með þróun mála. „Það er aldrei hægt að búast við stöðu sem þessari en þetta er líklega ástæðan fyrir því að leikmanna- hópurinn telur 12 manns," sagði Jackson sem vonast eftir að Shaq fari fljótlega að spila á ný.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.