Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 15.JANÚAR2004 Sport DV UV Sport FIMMTUDAGUR 15.JANÚAR2004 25 Stroud ekki til Grindavíkur Bandaríski körfuknatt- leiksmaðurinn Derrick Stroud, sem var búinn að semja við Grindvíkinga um að koma og spila með þeim það sem eftir lifði Inter- sport-deildarinnar í körfu- knattleik, kemur ekki eftir allt saman. Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grinda- víkur, staðfesti þetta í samtali við DV Sport í gær. Friðrik Ingi sagði að Stroud hefði einfaldlega svikið félagið. „Við vorum búnir að komast að samkomulagi við hann og það var búið að leggja mikla vinnu í frágang á öllum pappírum. Hann talaði hins vegar við okkur fyrir tveimur dögum og sagðist vera hættur við að koma þar sem hann hefði fengið betra tilboð frá Ung- verjalandi. Þetta setur stórt strik í reikninginn hjá okkur en við munum skoða málin og reyna að finna nýjan Bandaríkjamann hið snar- asta." Finnurog Gunnar áfram Fylkismennirnir Finnur Kolbeinsson og Gunnar Þór Pétursson munu spila með liðinu í Landsbankadeild- inni í sumar. Þeir voru báðir með lausan samning en gáfu stjórn Fylkis svar í fyrradag um að þeir yrðu með eitt ár í viðbót. Theódór Óskarsson hefur hins vegar ákveðið að taka sér frí frá knattspyrnuiðkun á þessu tímabili. Sigurður lengst ílandsliðinu Stórskyttan Sigurður Sveinsson á að baki lengst- an feril með íslenska lands- liðinu í handknattleik frá upphafi. Sigurður spilaði með landsliðinu í tuttugu ár, frá árinu 1976 til 1995 en næstur honum kemur markvörðurinn Guðmund- ur Hrafnkelsson sem hefur nú hafið nítjánda ár sitt með landsliðinu og hefur spilað flesta landsleiki allra, alls 376. Enski markvörðurinn David Seaman, sem er fertugur, hefur ákveðið að leggja skóna og han skana á hilluna. Seaman, sem leikur með Manchester City, meiddist á öxl í leik gegn Portsmouth á laugardaginn og sá sér þann kost vænstan að hætta leik þá hæst stæði. „Það er öruggt að hans verður minnst sem goðsagnar í enskri knattspyrnu. Ég held að allir Englend- ingar séu sammála mér og þakki honum fyrir allt sem hann hefur gert á ferlinum." V*. tui' Einn virtasti og daðasti markvörður enskrar knattspyrnu, David Sea- man, ákvað að leggja skóna og hanskana á hilluna á þriðjudaginn. Sea- man, sem gekk til liðs við Manchester City í fyrrasumar, meiddist á öxl á laugardaginn í leik gegn Portsmouth og þrátt fyrir að meiðslin væru ekki jafn alvarleg og fyrst var talið tók Seaman þessa ákvörðun. Þessi geðþekki markvörður nýtur mikillar virðingar eins og orð knattspyrnustjóranna þriggja, Kevins Keegans, Arsene Wengers og Svens Görans ErikssonsE, bera með sér. Seaman, sem lék 75 landsleiki fyrir England, á að baki 955 leiki með enskum liðum á ferlinum en hann átti sinn besta tíma með Arsenal frá 1990 til 2003. Þar lék hann 564 leiki og vann enska meistaratitilinn þrisvar sinnum, bikarinn fjórum sinnum og Evrópukeppni bikarhafa. Hann vann tvívegis tvöfalt, árið 1998 og 2002. Hann tilkynnti ákvörðun sína um að hætta á þriðjudaginn og sagði að það hefði ekki verið auð- veld ákvörðun. Rétti tíminn „Ég tók þessa erfiðu ákvörðun eftir að hafa ráðfært mig við fjöl- skyldu mína og aðila innan knatt- spyrnunnar sem ég ber virðingu fyr- ir. Það var ljóst að það myndi taka mig langan tíma að jafna mig eftir þessi axlarmeiðsl og ekki einu sinni víst að ég yrði nokkurn tíma jafn- góður og áður. Mér fannst þetta vera rétti tíminn til að leggja skóna á hill- una frekar en eftir tímabilið eins og ráð var gert fyrir í upphafi. Mér finnst ég hafa átt frábæran feril og get litið mjög sáttur til baka. Ég vil nota tækifærið til að þakka öllu því fólki sem hefur staðið við bakið á mér og stutt mig á ferlinum, sérstak- lega á erfiðum tímum, leikmönnum sem ég hef spilað með sem ég mun sakna fyrir fagmennsku þeirra og vináttu og áhorfenda sem hafa „David Seaman hefur verið frábær atvinnu- maður allan sinn feril, sem spannar meira en tvo áratugi. Hann er þekktur og virtur um allan heim og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna með hon- um." kveikt ástríðu mína fyrir knattspyrn- unni," sagði Seaman. David James, markvörður enska landsliðsins, mun taka við af David Seaman hjá Manchester City og Seaman hefur trú á því að James eigi eftir að reynast liðinu vel. „Eftir að ég ákvað að leggja skóna á hilluna var mér það sönn ánægja að mæla með David James því að ég veit að markvarðarstaðan er í góðum hönd- um hjá honum. Ég óska honum alls hins besta. Hann gengur til liðs við frábært félag sem hefur fyrsta flokks knattspyrnustjóra og mjög góðan leikmannahóp." Virði ákvörðunina Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City, sagði, eftir að Seaman hafði tilkynnt að hann væri hættur, að það væri mikill missir að Seaman en að hann skildi ákvörðun hans. „Þetta var mjög erfið ákvörðun fyrir hann en ég virði hana. Seaman er heiðursmaður og það segir margt um manninn að hann hjálpaði okk- ur gífurlega við að finna eftirmann sinn. Hann mælti með David James við okkur, talaði við hann og það átti sinn þátt í því að James ákvað að ganga til liðs við okkur. Ferill hans er glæsilegur og hann hefur unnið mörg afrek en það sem mestu máli skiptir er að ég mun muna eftir hon- um sem hinum fullkomna atvinnu- manni sem lét sér annt um aðra," sagði Keegan. Goðsögn í enskri knattspyrnu Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, hafði Seaman á milli stanganna hjá sér allt þar til síðasta sumar og hann var ekki að spara stóru orðin um þennan farsæla markvörð. „Það er öruggt að hans verður minnst sem goðsagnar í enskri knattspyrnu. Ég held að allir Englendingar séu sammála mér og þakki honum fyrir allt sem hann hefur gert á ferlinum. Ég vil í það minnsta þakka honum fyrir allt sem hann gerði fyrir Arsenal," sagði Wenger. Hann bætti við að það hefði komið sér á óvart að Seaman skyldi hætta núna en það sýndi að meiðslin sem hann varð fyrir væru alvarleg. „Þetta er mikið tap fyrir enska knattspyrnu því að hann er stórkostlegur markvörður. Fyrir utan það hefur hann frábært hugar- far og er einstakur persónuleiki. Ég held samt að þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá honum þvf að þegar menn eru komnir á þennan aldur geta meiðsl sem þessi haft áhrif það sem eftir er ævinnar.“ Þekktur og virtur Sven Göran Eriksson, landsliðs- þjálfari Englands, vottaði Seaman einnig virðingu sína en hann lék sinn síðasta landsleik gegn Makedóníu í október 2002 undir stjórn Erikssons. „David Seaman hefur verið frábær atvinnumaður allan sinn feril, sem spannar meira en tvo áratugi. Hann er þekktur og virtur um allan heim og ég er þakk- látur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna með honum. Ég veit að hann hefur öðlast sess í knatt- spyrnusögu Englands og vona að hann sé ekki hættur afskiptum af knattspyrnu því að hann hefur margt fram að færa þó að hann sé ekki að spila." Rostunginn með taglið hefur rek- ið á land og hann fer ekki út aftur. oskar@dv.is FERILL DAVIDS SEAMAN Ferill Davids Seaman í ensku deildakeppninni spannar 23 ár en hann hefur leikið með sex liðum. Alls hefur Seaman leikið 955 leiki með liðunum í öllum keppnum og 75 landsleiki fyrir England. Leeds United 1981-1982 0 leikir Peterborough 1982-1984 106 leikir Birmingham 1984-1986 84 leikir Queens Park Rangers 1986-1990 175 leikir Arsenal 1990-2003 564 leikir Manchester City 2003-2004 26 leikir England 1995-2002 75 leikir Seaman vann þrjá meistaratitla, fjórum sinnum enska bikarinn og einu sinni Evrópukeppni bikarhafa. Kona að skapi Blatters Bandaríska stúlkan Brandi Chastain fagnar hér að hætti hússins á haldaranum einum saman. Nokkuð sem Sepp Blatter, ötull talsmaður meiri kynþokka I kvennaknattspyrnunni, hefur örugglega verið ánægður með. Reuters Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins Meiri kynþokka í kvennaknattspyrnu Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, er um- deildur maður sem hefur gaman af að hneyksla fólk. Honum tókst það í gær þegar hann auglýsti eftir því að kvennaknattspyrnan yrði kyn- þokkafyllri til að laða að fleiri styrktaraðila og áhorfendur. Blatter sagði, í viðtali við svissneska blaðið Blick, að hann vildi meiri peninga inn í kvennaknattspyrnuna og sæi fyrir sér að lausnin gæti legið í kyn- þokkafyllri klæðnaði knattspyrnu- kvenna. „Ég vil sjá kvenfólkið spila í öðru- vísi búningum en karlmenn. Það er til dæmis raunin í blaki," sagði Blatt- er og nefndi sem dæmi að stuttbux- ur knattspyrnukvennanna mættu vera þrengri en þær eru í dag. Hrefna ósammála Blatter fær þó ekki stuðning frá Hrefnu Jóhannesdóttur, fyrirliða ís- landsmeistara KR, en hún telur að þetta myndi ekki hjálpa. „Ég hefði bara farið í blakið ef ég hefði viljað spila í bikiní. Ég kýs nú frekar stutt- buxurnar eins og þær eru í dag. Ég held að það væri heimskulegt að reyna að fá fólk á völlinn til að horfa á konurnar í stað þess að njóta „Ég vilsjá kvenfólkið spila í öðruvísi bún- ingum en karlmenn. Það er til dæmis raun- in í blaki." knattspyrnunnar. Þá væru áhorf- endurnir á vellinum á röngum for- sendum. Ég held líka að margar stelpur myndu hætta fyrr ef búning- arnir yrðu þrengri," sagði Hrefna við DV Sport. Landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason um komu Davids James til Manchester City Breytir engu fyrir mig Landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason sagði í samtali við DV Sport í gær að koma Davids James, landsliðsmarkvarðar Englands, til Manchester City breytti engu um það hvort hann fengi samning hjá félag- inu eða ekki. „Þeir æduðu sér alltaf að kaupa tvo markverði og ég hef ekkert heyrt um að þeir séu hættir við það. For- sendur mfnar hafa hins vegar breyst til mikilla muna því að það er svolítið annað að vera varamarkvörður fyrir David Seaman, sem er orðinn gamall og lúinn, en David James, sem er landsliðsmarkvörður Englendinga. Möguleikar mínir á því að spila minnka stórlega með komu James en það er svo sem ekki enn komið í ljós hvort mér býðst samningur eða ekki,“ sagðiÁrni Gautur Arason. Hann sagði jafnframt að sér litist mjög vel á aðstæður hjá félaginu og það væri spennandi að liðið væri úr- valsdeildinni. „Ég ætla bara að bíða og sjá til og reyna að standa mig. Ef mér býðst samningur þá skoða ég hann vel og athuga hvaða aðrir mögu- leikar eru hugsanlega boði.“ Manchester City gekk frá kaupum á David James í gær Kostaði tvær milljónir punda Manchester City gekk í gær endanlega frá kaupum á enska landsliðsmarkverðinum David James frá West Ham. James kostaði félagið tvær milljónir punda en hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning og á að koma í stað Davids Seaman. James sagðist vera gífurlega sáttur við að vera kominn aftur í ensku úrvalsdeildina en að það hefði verið erfitt að yfirgefa jafngott félag og West Ham. Hann sagðist ekki reikna með að lenda í vandræðum með að aðlagast liðinu. „Ég hef áður unnið undir stjórn Kevins Keegans hjá enska landsliðinu og þekki marga leikmenn liðsins frá tíma mínum með Liverpool og Tottenham. Manchester City er frábært félag með mjög góða aðstöðu, stórkostlega stuðningsmenn og mikinn metnað,“ sagði James en bætti við að hann hefði ekki búist við því að hlutirnir myndu ganga svona hratt. Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City, var afskaplega ánægður með að hafa nælt í James og sagði að það væru frábærar fréttir fyrir félagið að hafa krækt í enska landsliðsmarkvörðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.