Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Side 2
2 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚ^R 2004 mm DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson, ábm. Ritstjóran lllugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjórar Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Aörar deildin 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Spítalakaffi Fjórðungssjúkrahiisið á AkureyriÝ heldur áfram aðÝ fagna tvö- földu afmæli sínu og á sunnudag verður sjiikra- húsið sjálft, svo og Krist- nesspítali, opið almenn- ingi. Gestir eru velkomn- ir á sjúkarhtisið fráÝkl. 14- 16 en á Kristnesi frá 15- 17. Boðið verður upp á afmælistertu og kaffi fyrir gesti og starfsfólk. Kennari fæðir Vegna fæðingarorlofs vantar kenn- ara til starfa við Grunnskól- ann á Eskifirði frá 1. mars til loka skólaárs- ins. Aðal- kennslugrein- ar eru stærðfræði og náttúrufræði eldri nem enda. Stolið frá Kana í fyrrinótt var tilkynnt um þjófnað fyrir utan veitingastaðinn Paddys við Ilafnargötu í Reykja- nesbæ. Þar hafði hátal- ara verið stolið úr bifreið varnarliðsmanns. Kom í Ijós að tveir aðrir varnar- liðsmenn sem voru að skemmta sér á Paddys höfðu tekið hátalarann. f Reykjanesbæ er sjald- gæft að bandarískir her- menn steli frá starfsfé- lögum sínum. Blindir í sjónvarp Meðal þeirra sem óskað hafa eftir aðstoð Ríkis- sjónvarps- ins vegna fjársöfnun- ar er Blindrafé- lagið.VUl félagið að Sjónvarpið standi að söfnunaráttaki til handa blindum og verði það í beinni útsendingu með tilheyrandi skemmtiat- riðum eins og venja er. Máliö er í skoðun og var lagt fyrir síðasta fund út- varpsráðs. Leyti oq leiti Margir eiqa (erfiSleikum með Málið MargiFeiga ( stafsetningu á þessum orð- um.Að miklu eða litlu leyti er með ufsiloni og einnig að þessu leyti og að mörgu leyti. Þegar merkinguna má tengja við landslag þá er einfalt i eins og í Hvassaleiti. Einhver er þess vegna á næsta leiti með einföldu. Gott er að muna eftir Gróu á Leiti í þessu samhengi. DoktorAtkins Megrunarkóngurinn Robert Atkins var 117 kíló, þegar hann dó. Það sannar ekki, að kúr hans sé óhollur, því að hann dó af slysforum 72 ára gamall. Hann hefði getað orðið 80 ára með sín 117 kíló. Hins vegar sýnir þyngdin, að aðferðin virkaði ekki til lengdar sém megrunarkúr fyrir hann sjálfan. Atkins-kúrinn skiptir máli, því að hann er með vinsælli kúrum megrunarsögunnar og hefur öðlast áhrifamikla áhangendur hér á landi. Miklu fleiri megrunaraðferðir eru not- aðar, einkum í Bandaríkjunum, þar sem menn hafa mest vit á megrun og næringar- fræðum og eru feitastir allra manna. I venjulegri bókabúð í Bandaríkjunum eru í boði yfir hundrað mismunandi titlar megrun- arbóka með yfir hundrað mismunandi kúrum. Ef ein af þessum aðferðum virkaði, væru ekki allar þessar hundrað bækur á boðstólum. Þetta eitt segir raunar allt sem segja þarf um árangur megrunarkúra yfirleitt. Eitthvað er það, sem vantar í allar þessar bækur. Og það er ekkert leyndarmál. Sumir kúrar gefast sæmilega eða vel í fyrstu, en eng- inn dugar til lengdar. Bækurnar megna ekki að halda fólki í þyngdinni, sem það nær með átaki. Bækurnar og kúrarnir í þeim hjálpa notendum ekki í langtíma úthaldi. Næringarfræðin er engu skárri. Hún þykist vera fræðileg og telur hitaeiningar, þótt sýnt hafi verið fram á, að hitaeining er ekki sama og hitaeining. Og hún er að því leyti verri en megrunarkúrarnir, að hún veitir engan and- legan, sálrænan eða félagslegan stuðning í þjáningunni. Einfalt er að geta sér til um ástæðuna fyrir vandræðum megrunarfólks. Hana er að finna í biblíunni, þar sem segir: Ilið góða, sem ég vil, geri ég ekki. Menn geta einfaldlega ekki staðist allar freistingar. Sumir geta það leng- ur, aðrir skemur, en fáir geta það ævinlega, ekki einu sinni Atkins. Eðlilegasta skýringin á ástandinu er, að fíkniefni séu í fæðunni, alveg eins og fíkniefni eru í áfengi, tóbaki og ýmsum efnum, sem fást samkvæmt lyfseðli eða eru seld á svört- um markaði. Fíkniefni í fæðunni þarf að skil- greina, aðallega sykur og líklega nokkur fleiri, og vara við þeim. Sumir hafa líkamlegar, andlegar, sálrænar eða félagslegar forsendur, sem kallaðar eru áhættuþættir fíkna. Þetta hefur ekkert með viljastyrk að gera. Sumir viljahundar drekka sig í hel, meðan viljadaufir sleppa úr klóm áfengis. Þetta er reynslan af þeim fíknum, sem mest hafa verið kannaðar. Gegn offitu gagnast hvorki hefðbundin nær- ingarfræði né megrunarkúrar Atkins eða ann- arra. Leita verður í þekkingarforða meðferðar á sviði annarra fíkna. Enn fremur þarf að finna fikniefnin í fæðunni og kippa þeim út. Jónas Kristjánsson Líkið í Seyðisfirði Eins og fram kemur í grein á blaðsíðu 18 í blaðinu í dag hefur það áður gerst að líki af myrtum manni hafi verið varpað í sjó á Austfjörð- um. Þar var um að ræða vélstjóra af togaranum M.A.Dodds fráAberdeen sem myrtur var meðan skip hans lá á Seyðisfirði og rétt eins og raunin er um myrta manninn í Neskaupstað var lík vélstjórans þyngt niður með járnum til að sökkva honum, en dugði ekki að heldur. Myndin hér að ofan er af líki þessa vélstjóra og þótt hún sé held- ur óhugnanleg birtum við hana í trausti þess að þar sem hún er gömul og snjáð og langt um liðið síðan sá voveiflegi atburður gerðist sem hún er til marks um, þá muni hún ekki særa viðkvæmar taugar í brjóstum lesenda. Og það muni heldur ekki verða túlkað sem van- virðing við aðstandendur manns- ins þótt svo ófögur mynd sé af honum birt. Myndina tók Eyjólfur Jónsson ljósmyndari, eins og fram kemur í Fyrst og fremst greininni aftar í blaðinu. Hann var allmikilvirtur ljósmyndari á Aust- íjörðum á ofanverðri nítjándu öld og fýrri hluta hinnar tuttugustu, en svo illa vildi til að eftir að hann lést var öllu filmusafni hans fargað. Þar fór áreiðanlega forgörðum mörg merki- leg heimild um fólk og tíðaranda á Austfjörðum og Islandi almennt um þær mundir sem Eyjólfur var að störfum, og þessi mynd var til dæm- is lengi talin glötuð. Hún mun hins vegar hafa verið í eigu Axels Tuliniusar sýslumanns, sem rannsakaði morðmálið á Seyð- isfirði, og hefur þannig varðveist. Og þótt okkur hafi ekki borist þessi mynd fyrr en eftir að búið var að ganga frá greininni á blaðsíðu 18 til prentunar síðdegis í gær, þá þykir okkur ástæða til að halda henni til haga og hér er því komið þetta nöt- urlega en sterka verk Eyjólfs Jóns- sonar. x xx h Megum við einnig vekja athygli á grein Hallgríms Helgasonar rithöf- undar í Morgunblaðinu í gær þar sem hann hæðist að auglýsingaher- ferð Símans sem hefur reyndar þeg- ar verið svolítið til umfjöllunar í þessum dálki? Grein Hallgríms er stutt og lag- góð og svo hljóðandi: .Auglýsingaherferð Símans hefur vakið athygli fólks. Þar eru menn hvattir til að fá hugmyndir sem fýrir- tækið muni sfðan hjálpa þeim að framkvæma. Hins vegar hefur orða- lag auglýsinganna stungið í augu margra: „Þetta er þín hugmynd. Við hjálpum þér að láta hana gerast." Það er sannarlega leiðinlegt að sjá slíka málleysu dynja á þjóðinni oft á dag og er hér nánast gerð til- raun til að breyta tungumálinu með æmum tilkostnaði. Frasinn er greinilega hráþýðing úr ensku: „This is your idea. We help you make it happen." Á íslensku gerast hugmyndir ekki. Þær em fram- kvæmdar, raungerðar eða gerðar að veruleika. í sjónvarpsviðtali mun forstjóri Sfmans hafa sagt að ímyndarbreyt- ing fýrirtækisins kosti 400 milljónir króna og af þeim feri um 200 í aug- lýsingaherferðina. Það em miklir peningar fýrir málvillu." Við tökum ofan fýrir Hallgrími; aUtof sjaldgæft er að menn nenni núorðið að benda á svona málviilur og hugsanaviliur í auglýsingum, það er næstum eins og öllum finnist að í auglýsingum þurfi málið ekki að vera vandað. Auglýsingaherferð Símans er að því leyti skárri en aug- lýsingaherferð Happdrætús Háskóla íslands að hún gengur út á að menn skuli framkvæma hugmyndir sínar, en Háskólinn hvetur menn eindreg- ið til að reyna ekki einu sinni að láta drauma sína rætast eða hugmyndir verða að veruleika. Það afsakar þó ekki hina ensku hugsun auglýsingaherferðarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.