Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Blaðsíða 9
Vegalengdir frá Neskaupstað Heskaupstaður/ Eskifjörður 23 Akureyri 336 Reyðarfjörður 37 Egilsstaðir 71 Seyðisfjörður 99 ísafjörður 904 Kárahnjúkar 186 Reykjavík 725 Eskifjörður Reyðaríjöröur Fólk þorir ekki niður í kjallara Óhugur meðal íbúa í Neskaupstað eykst með hveij- um deginum sem h'ður frá líkfundinum í höfninni. Dæmi eru um að fólk þori ekki niður í þvottahús eftir að skyggja tekur og hugleiði kaup á aukalásum á hús sín. Sumir segjast æda að sofa með byssu undir kodda þar til málið upplýsist. Nokkrir Norðfirðingar hafa verið fengnir til að skoða polaroid-mynd sem tekin var af andhti mannsins sem fannst í höfninni og bera kennsl á það. Berast fréttir af útliti hans nú út. Einn þeirra sem sáu myndina segir ljóst að hinum inyrta hafi verið misþyrmt verulega áður en hann var tekinn af lífi; bólgur og sár á andhti beri þess glögg merki. Sérstaklega hafi mátt merkja svöðu- sár og bólgur á enni. „Þetta er alveg svakalega dularfuht,“ segir Magni Kristjánsson, fyrrverandi skipstjóri og hótelstjóri á hót- el Capitano. „Það verður alveg hræðilegt myrkur yfir bænum ef þetta skýrist ekki á næstunni," segir hann. Guðmundur Bjamason bæjarstjóri reynir að róa bæjarbúa en stendur þó ekki alveg á sama: „Það er vissuelga óhugur í fólki en misjafnt eftir því hver á í hlut," segir bæjarstjórinn . Hann er reyndar staddur í Reykjavík til að sækja Rokksýningu Norðfirð- inga sem haldin var hátíðleg á Broadway í gærkvöld. Þar var einnig Smári Geirsson, forseti bæjarráðs í Fjarðabyggð. Hann sagði fólk ætla að skemmta sér í höfuðborginni þrátt fýrir skugga morðsins í Neskaup- stað: „Menn verða að hrista þetta af sér. Lífið heldur áfram." DV Fréttir LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 Morðið í heims- pressunni Verdens Gang, stærsta dagblað Noregs, greinir frá líkfundinum í höfninni í Neskaupstað í gær. Seg- ir þar að mikill óhugur sé ríkjandi á allri austurströnd landsins vegna morðsins sem sé áður óþekktrar gerðar í sögu landsins. Ræðir blaðið við Sigríði Sigþórsdóttur lögreglukonu: „Það skilur enginn hvernig þetta gat gerst hérna í túnfætinum hjá okkur,“ segir Sigríður í Ver- dens Gang. „Enginn hefur upplif- að atburð sem þennan áður. Hér þekkjast allir í friðsælu þorpi og standa agndofa og með ugg í brjósti yfir því að einhver skuli hafa sökkt líki í keðjum og plasti í höfnina fyrir framan nefið á okk- ur.“ Verdens Gang tekur fram að líkur séu taldar á því að líkið í höfninni sé af norskum sjómanni. Norska sendiráðið kannist þó ekki við að Norðmanns sé saknað hér á landi. Bæjarbúar hræddir Mordingi gæti gengið laus ibænum. Senior Norski loðnubáturinn Senior var mikið til umræðu fyrstu dagana. Norskir blaðamenn dvelja nú i Neskaupstað. rannsóknarmennina, Ragnar og Björgvin, nýkomna af CSI-námskeiði, með næstu vél til að skoða líkið. Inger Jónsdóttir sýslumaður stýrir rannsókninni en í stjórnstöð er Jónas Vilhelmsson yfirlög- regiuþjónn. í líkhúsi bæjarins er iikinu pakkað úr plastinu. í Ijós kemur maður sem enginn í lögregluliðinu hafði áður séð. Var hann Is- lendingur? Var hann Skandínavi eða Suð- ur-Evrópubúi? Enginn vissi það fyrir víst. Hann var hvítur á hörund og líklega Evr- ópumaður. Ályktað er að hann sé útlend- ingur en enginn veit það 100%. Lögregian fer með polaroid-mynd um bæinn og sýnir bæjarbúum til að athuga hvort einhver þekki manninn. Athugað er hvort einhvers sé saknað af þeim skipum sem höfðu lagst að bryggju dagana áður. Miðvikudagur Lögreglan hefur rannsókn á því hver mað- urinn sé og hvernig hann hafi verið myrt- ur. Hver var maðurinn í plastinu? Hverjir höfðu komið honum svona fyrir? Lögregl- an hringir suður og fær færustu tækni- Þorgeir Jónsson kafari syndir fram á likið þegar hann er að skoða skemmdir á Neta- bryggjunni. Hann varð stjarfur í kafara- búningnum, eins og hann hefði synt inn í bíómynd. Þegar var hafist handa við að ná líkinu upp og málið rannsakað. Fimmtudagur það í lögreglufylgd á Rannsóknarstofu Há- skólans. Föstudagur Tólf lögreglumenn á Austfjörðum og fjórir í Reykjavík reyna að leysa málið með því að ná saman upplýsing- um frá fólki á staðnum og rannsókn á líkinu. Morðingja er enn leit- að. Enginn virðist sakna hins myrta. Kvikmynd með þessum söguþræði þætti óraunveruleg. Þetta gerðist nú samt í Nes- kaupstað. Lögreglan heldur rannsókn áfram, leitað er að vísbend- ingum í nágrannabæjum og athugað hvort einhvers sé saknað við Kárahnjúka, á Egilsstöðum, Reyðarfirði, Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Þorgeir kafar við Neta- bryggjuna ásamt bróður sínum til að leita að vís- bendingum og kanna botn- inn. |#l <| AA IVI< IO»UV Likið flutt til Reykjavíkur með flugi. Líkbíll ekur með Ríkislögreglustjóri sendir tvo rannsóknar- lögreglumenn til að- stoðar við rannsókn- ina. Lögreglu berast upp- lýsingar um grunsam- lega bilaum- ferð við Neta- bryggjuna að- faranótt mið- vikudags. At- hyglin beinist að gráleitum bil. Alveg Ijóst er að maðurinn var skamman tíma í sjónum. Krufning hefst á Rannsókn- arstofu Háskólans. Menn frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík rannsaka likið. Leitað er vísbendinga um hver maðurinn sé, hvert dánarmein hans háfi verið og allra upplýsinga sem geta varpað Ijósi á aðstæðurnar þegar hann dó. Ríkislögregiustjóri sendir fjóra rannsókn- arlögreglumenn til viðbótar til að að- stoða lögregluna á Eskifirði við rann- sóknina. Hringurinn þrengist Það er útilokað að líkið hafi legið í sjónum við Netabryggju lengur en rúmar 30 klukkustundir, eða frá því klukkan 3.10 aðfaranótt þriðjudags til klukkan 11 að morgni miðvikudags. Það var um klukkan ellefu fyrir þremur dögum sem Þorgeir Jónsson kafari fann líkið fyrir tilviljun á sjávarbotni við Netabryggjuna í Neskaupstað. Rúmum sólarhring áður lagðist skip síðast að bryggjunni. Það var nótaskip- ið Beitir NK 123, í eigu Síldarvinnsl- unnar, sem lagðist að kantinum eftir miðnættið. Klukkan var nákvæmlega 00.30 aðfaranótt þriðjudagsins: „Við vorum að sækja nót á Netabryggjuna," segir Sigurjón Valdimarsson, skipstjóri á Beiti. Það gekk ekki þrautalaust að koma Beiti að Kafarinn Þorgeir bryggju þar sem skipið tók niðri. „Það var mikið rót á okkur þarna og það grunnt að sldp- ið kornst ekki einu sinni alveg að bryggju," segir Sigurjón. Beitir var drekk- hlaðinn og ristir við þær aðstæð- ur 22 fet, eða sjö metra og 30-40 cm. Að sögn Þorgeirs kafara Jónsson kafari fann likið. er ekki nema Beitir NK 123 Var síðasta skip sem lagðist að Netabryggjunni aðfaranótt þriðjudags. um 7 metrar til botns uppi við tré- bryggjuna. „Við fórum í botn og komumst ekki að bryggju en þetta ger- ist þegar það er lágsjávað." Neta- bryggjan er um 30-40 metra breið en lengd Beitis er 66 metrar. Sigurjón skipstjóri reyndi því að hnika afturhluta skipsins í átt að bryggjunni með miklu skrúfuróti, skafandi botninn, á þeim stað þar sem lflcið fannst. Beitir tók síðan nót, inn á skipið að aftan- verðu. „Við fórum aftur út klukkan 3.10 um nóttina," segir Sigurjón og er viss um tímasetn- inguna. Þetta mikla rót Beitis á botninum skýrir að fullu hvers vegna heimild- armaður DV innan lög- reglunnar sagði það „eðlisfræði- íega ómögulegt" að líkinu hefði Sigurjón verið komið fyrir Valdimarsson áður en Beitir Skipstjórinn á Beiti. lagðist að kanti Netabryggjunnar. Frá því Beitir heldur aftur á haf út og þar tii líkið finnst líða 30 klukkustundir og 50 mínútur. Draga verður þá ályktun að á þeim tíma, að öllurn líkindum í skjóli nætur, hafi lík- inu verið varpað í sjóinn. Neskaupstaður Endastöð. Hér má sjá vegalengdir frá Neskaupstað en bærinn er einangraður mjög.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.