Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004
Fókus DV
GL-útgáfan hefur nú lokið gerð vandaðrar náttúrulífsmyndar um íslenska hesta undir leikstjórn Þor-
finns Guðnasonar eftir handriti Jóns Proppé og Þorfinns. Myndin heitir Hestasaga en hefur verið kynnt
erlendis undir nafninu Running with the Herd. Hestasaga segir frá fyrsta árinu í lífi folalds í stóði í ís-
lenskri náttúru og móður þess, merarinnar Kolku. Myndin er byggð upp sem dramatísk frásögn þar sem
hestarnir sjálfir eru aðalpersónur og við kynnumst eiginleikum og skapi hvers og eins. Áformað er að
frumsýna myndina hérlendis þann 19. febrúar n.k.
Hestasaga Eins og
hirðingjar nti í náttúrunni
Þorfinnur Guðnason segir að það hafi verið
gaman að vinna að þessu verkefni þótt það
hafi oft verið erfitt á stundum. „Við bjuggum
eiginlega eins og hirðingjar vikum saman úti í
náttúrunni við að gera þessa mynd," segir Þor-
finnur. „Við lentum í allskonar veðurfari, með-
al annars miklum vatnsveðrum og því var
maður oft blautur í lappirnar. En mynd af
þessum toga krefst þess að menn liggi lengi
við til að ná sem bestum árangri."
Lífsbarátta hesta
Atburðarásin er látin um það að fanga huga
og athygli áhorfandans líkt og í bíómyndum. í
gegnum augu og eyru hestanna fylgjumst við
með lífsbaráttu þeirra þar sem þeir ferðast
milli beitarhaga sinna eftir árstíðum. Markmið
myndarinnar er að sýna hinn stórbrotna ís-
lenska hest en jafnframt að fræða áhorfendur
um eðli og hegðun hjarðdýra. Við sjáum með
því hvernig folöldin læra smátt og smátl á
stóðið og hver staður þeirra er í virðingarstig-
anum.
íslensk náttúra
Islensk náttúra og íslenski hesturinn eru
meðal þess sem við Islendingar státum okkur
helst af þegar útlendingar koma í heimsókn.
Þó hafa fæstar íslenskar náttúrulífsmyndir fyr-
ir sjónvarp sést erlendis að neinu marki. Und-
antekningin er myndin sem Þorfmnur Guðna-
son gerði um íslensku hagamýsnar fyrir
nokkrum árum en hún hefur verið sýnd í um
eitt hundrað löndum af sjónvarpsstöðvum á
borð við National Geographic Television. I
þeirri mynd var farin sú leið að segja skýra
sögu þar sem persónurnar, sjálfar mýsnar,
lifna við á skjánum og draga áhorfandann inn
í atburðarásina. Sömu nálgun hefur verið beitt
við gerð myndarinnar um hestana.
Vekur athygli
Efnistök Þorfinns hafa vakið mikla athygli
frá því fyrsta náttúrulífsmynd hans, Húsey,
birtist og vann sú mynd strax Menningarverð-
laun DV. Síðasta mynd hans, mannlífsmyndin
um Lalla Johns, vann líka Menningarverð-
launin og auk þess tvenn Edduverðlaun ís-
lensku kvikmyndaakademíunnar.Myndin um
hestana mun fara jafnvíða og hagamúsa-
myndin. Myndin hefur verið kynnt á erlend-
um hátíðum og sjónvarpsmessum og var alls
staðar vel tekið. Myndin var til dæmis valin til
kynningar á heimildarmyndamessunni í
Amsterdam en þar er stærsta heimildar-
myndahátíð Evrópu haldin ár hvert.
Skemmst er frá því að segja að hestarnir
slógu í gegn. Myndbúturinn sem Þorfinnur
hafði klippt og Hilmar Örn Hilmarsson samið
tónlist við vakti mikla athygli.
Sýnd víða
Sjónvarpsstöðvar frá nfu löndum vilja sýna
myndina og er þar í flestum tilfellum um að
ræða stærstu og fjársterkustu stöðvarnar í
hverju landi. í sumum tilfellum sóttust fleiri en
ein stöð í sama landi eftir myndinni, til dæmis í
Þýskalandi og Frakklandi. Myndin verður sýnd
á öllum Norðurlöndunum, í Kanada og á Ítalíu,
auk Frakklands og Þýskalands. Þá standa nú yfir
viðræður við fjölmargar aðrar stöðvar, til dæm-
is í Bandaríkjunum, Bretlandi og Japan.
Greiðslutrygging
- bætur í allt að 12 mánuði
Viðskiptavinum SPRON gefst nú kostur á að kaupa sér Greiðslutryggingu
í tengslum við Greiðsluþjónustu SPRON sem tryggir þeim greiðslu
reikninga í allt að 12 mánuði verði þeir fyrir missi starfsorku vegna slyss
eða sjúkdóms.*
Kynntu þér málið í næsta útibúi SPRON, í síma 550 1200
eða í þjónustuveri í síma 550 1400.
^spron
*Sjá nánar skilmála Alþjóða líftryggingarfélagsins hf.