Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Page 28
28 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 Fókus IÍV Hvundagshetjan Fjóla Björk Sigurðardóttir lætur ekki daufblindu hindra sig og sækir leikhúsin reglu- lega. Fingramál er hennar samband við umheiminnog hún spilar á píanó. ■bMVviSiii i.' A fundi leikarans Fjóla Björk og Ágústa V Eir hittu í vikunni Nbnnu Kristinu Magn- ðsdóttur, sem er einn áðalleikaranna i Veg- ' urinn brennur. Með snertingu og 'fingraletri gat Fjóla komist ísamband við leikkonuna. „Huggun joð fara i leikhús þvi tyað veitir mér mikla —- „Síðasta verkið sem ég sá var Vegurinn brennur, sem mér þótti afar tilfinninga- mikið og stórbrotið verk. Blind og heypnarlaus Elskar aö fara í leikhús „Það koma þær stundir þegar mér finnst lífið óréttlátt og erfitt. Einmitt á þeim stundum er mér mikil huggun í því að fara í leikhús því það veitir mér mikla ánægju. Fyrir sýningu hef ég fengið að hitta leikara, en með snert- ingu get ég fundið hvernig búningum þeir klæðast og fengið einhverja til- finningu fyrir hverjir þeir eru. Síðan fæ ég að ganga um sviðið og átta mig á sviðsmyndinni. Loks fylgist ég með leiksýningunni af fremsta bekk þar sem systir mín situr við hlið mér og segir mér söguþráðinn jafnharðan með fingrastafrófinu," segir Fjóla Björk Sigurðardóttir, ung kona í Reykjavík sem þrátt fyrir daufblindu tekur þátt í þjóðfélaginu með virkum hætti. Sýningar leikltúsanna sækir hún reglulega, sem er þó aðeins eitt af mörgu sem er hennar dægradvöl. DV hitti þessa ungu baráttukonu og hvundagshetju nú í vikunni. Stafir slegnir í lófann Fjóla Björk Sigurðardóttir er 43ja ára að aldri og fæddist í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hún er fædd með hrörnunarsjúkdóm sem aðallega leggst á sjón- og heyrnartaugar og aðeins tveggja ára gömul var hún komin með gleraugu. „Að mestu var ég orðin blind átta ára en sá skímu í einhver ár eftir það. Ég geri mér þó ekki grein fyrir hve lengi. Heyrnar- tæki fékk ég ellefu ára, enda var heyrnin þá mjög farin að þverra og ég var orðin heyrnarlaus 24 ára,“ segir Fjóla. Sem barn nam hún við blindradeild Laugarnesskóla og síð- an í Álftamýrarskólanum, þaðan sem hún brautskráðist um tvítugt. „Mér gekk vel að læra og oft náði ég tíu á prófum. Skemmtilegastar þóttu mér samfélagsgreinar, svo sem heilsufræði, ljóð, félagsfræði og fleiri slíkar. Einnig hafði ég alveg frá- bæra kennara og nefni þar sérstak- lega Ragnhildi Björnsdóttur blindra- kennara, sem m.a. kenndi mér fingrastafrófið þegar Ijóst var að hverju dró," segir Fjóla við blaða- mann. Við hittumst í fallegu her- bergi hennar á sambýli blindra við Stigahlíð 71, ásamtÁgústu Gunnars- dóttur sem túlkaði samtalið með fingrastafrófi. Túlkurinn slær spurningarnar staf fyrir staf í lófa Fjólu og þannig móttekur hún skilaboðin. Aðeins með þessum hætti og með tölvu- pósti getur hún móttekið skilaboð úr umhverfinu, en getur svo aftur gert sig skiljanlega með orðum, enda þótt talfærnin verði sífellt minni með árunum. „Fjóla er ótrúlega seig að skilja allt í kringum sig þrátt fyrir sína miklu fötlun og einnig að skilja fingramálið, sem auðvitað hefur sínn stíl og áherslur frá einum manni til annars," segirÁgústa. Hún segir að á milli fjörutíu og fimmtíu manns geti með þessu móti verið í sambandi við Fjólu, það er fjöl- skylda hennar, starfsfólk á sambýl- inu við Stigahlíð, túlkar og starfs- fólkið á Blindravinnustofunni við Hamrahlíð, en þar hefur Fjóla starf- að hálfan daginn í rösklega tuttugu ár. I annan tíma er hún heima í Stigahlíð, þar sem hún sinnir meðal annars handavinnu og er mikið í tölvunni sinni. Það töfratæki opnar henni í raun leið inn í samfélagið og hefur að því leyti gjörbreytt öllu hennar lífi. „Ég fæ á hverjum degi í gegnum Blindrabókasafn Islands yfirlit helstu frétta úr Morgunblaðinu, sem yfirfærist á upphleypt blindraletur þegar það kemur til mín á tölvunni. Með því að þreifa á letrinu get ég les- ið mig áfram. Síðan finnst mér gam- an að lesa alls konar reyfara og ým- iss konar kristilegt efni. Til dæmis Bænabókina, Nýja testamentið, ýmsa sálma og nú bíð ég eftir því að fá Gamla testamentið," segir Fjóla og bætir við að trúin á góðan guð hafi gefið sér mikið. Bænir sínar fyr- ir jólin, um að allir mættu hafa það sem allra best yfir hátíðarnar, telur hún líka að hafi reynst áhrínsorð. „Annað sem ég hef rnjög gaman af er að setjast við píanóið hér niðri og spila. Sem barn lærði ég að spila og þekki þessar svörtu og hvítu nót- ur. Og þótt ég heyri ekki veitir hljóð- færið mér samt mikla ánægju, því tónlistin bergmálar í sálinni og eitt- hvað hljómar innra með mér.“ Grænt land og Gullið hlið Mörg ár eru liðin síðan Fjóla fór fyrst í leikhús, en það hefur um dag- ana veitt henni mikla lífsfyllingu og gleði. Leikarar og annað starfsfólk leikhúsanna í Reykjavík þekkir raun- ar orðið til Fjólu og hefur gaman af að kynna verk sín fyrir henni og einnig þegar hún kemur til þeirra fyrir sýn- ingu eða í hléi og fær með fingrunum að snerta þá og sviðsmyndina til að öðlast tOfinningu fyrir því sem á svið- inu er. „Síðasta verkið sem ég sá var Veg- urinn brennur, sem mér þótti afar til- finningamikið og stórbrotið verk. Á dögunum, þegar ég fór með systur minni að sjá Græna landið, hitti ég leikkonuna Kristbjörgu Kjeld, sem mér fannst mjög gaman því ég hafði heyrt svo oft talað um hana í gegnum árin. En ædi eftirminnilegasta leikrit- ið sem ég hef horft á sé ekki Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson. Alveg yndislegt verk, sem mér verður alltaf eftirminnilegt," segir Fjóla. Aðspurð kveðst hún hins vegar ekki mundu hafa lagt fyrir sig leiklist þótt hún hefði verið frjáls eins og fúglinn og ekki bundin í fjötra daufblindunnar. Þá hefði hún valið að verða snyrti- fræðingur. „Það hefur alltaf gefið mér mikið að fara í leikhús. I því felst einhver lífsfylling sem ég er þakklát fyrir að fá. Kannski er þetta eins og að leika á píanóið; þótt ég heyri ekki hljómana gerist samt eitthvað. Ég heyri berg- mál og óma innra með mér, sem eru undrafallegir," segir Fjóla Björk Sig- urðardóttir að síðusm. sigbogi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.