Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2004, Síða 47
DV Siðast.en ekkisist
______y.v.s 1?nr.it
Séra Jón ísleifsson hefur söðlað gersam-
lega um eftir að hann var hrakinn frá
Árnesprestakalli og starfar nú á þunga-
vinnuvélum við Kárahnjúkavirkjun.
Steinþór Birgisson kvikmyndagerðar-
maður er að gera heimildarmynd um
Jón og hans athyglisverðu mál.
Séra Jón ísleifsson Var hrakinn frá Árnesprestakalli á Ströndum og starfar nú við Kára-
hnjúkavirkjun, en á hálendinu ekur hann nú umá gríðarlega stórum grjótflutningabil.
Úr sálgæslu í
grjótmulninginn
„Margar hliðar eru á hverju máli
og það verður að koma skýrt fram að
myndin sem ég er að gera um séra
Jón gengur ekki út á að grafast fyrir
um hvað er satt og hverju er logið -
hvað Jón gerði og livað hann gerði
ekki - heldur er hún um mann sem
er í þessari sérkennilegu stöðu, þarf
að eiga við erfiðaðar aðstæður og
halda haus,“ segir Steinþór Birgisson
kvikmyndagerðarmaður.
Jiann legg-
ur nú loka-
hönd á heim-
ildarmynd um
séra Jón ísleifs-
son og hremm-
ingar hans.
Fyrir fáeinum
árum var gerð-
ur við prestinn
starfsloka-
samningur af
hálfu biskups-
ins yfir íslandi.
Séra Jón var þá
gríðarlega um-
deildur í sinni
sveit en sóknarbörn hans í Árnes-
prestakalli á Ströndum höfðu um
langt skeið haft uppi hávær mótmæli
og sett var verulega út á störf hans.
Meirihluti sóknarbama hans, sem þá
voru tæplega 60, sendi inn undir-
skriftalista tO Biskupsstofu þar sem
farið var fram á að honum yrði vikið
frá störfum. Undir listann skrifuðu
alls 39 manns. Því má segja að sam-
hugur hafi verið um að Jón færi frá
kalli sínu en hann starfar nú við að
aka fjögurra hásinga trukki og flytja
grjót í tengslum við virkjunargerð við
Kárahnjúka. Hlýtur það að teljast
„Séra Jón var gríðar-
lega umdeildur í sinni
sveit en sóknarbörn
hans höfðu haft uppi
hávær mótmæli og
sett verulega út á
störfhans. Því má
segja að Jón hafí verið
hrakinn frá kallisínu
Grjótflutningatrukkur Á svipuðu farar-
tæki ekur nú séra Jón við Kárahnjúka.
Ásakanir sóknarbarna á hendur séra
Jóni voru margvislegar:
Hann á að hafa
... safnað alls kyns drasli í miklu magni í
kringum prestssetrid
... látiö prestssetrið drabbast niður
... verið óhæfur sem bóndi
... verið algerlega fákunnandi um almenna
búskaparhætti
... vanfóðrað eða svelt skepnur sinar
... verið ófær um að stilla skapsmuni sína
... verið sérkennilegur i háttum
... útilokað sig frá söfnuði sinum
... sýnt afsér sérkennilega og afbrigðilega
hegðan.
Svo sérkennilega hegðan þótti hann
sýna afsér i sveitinni að menn leyfðu
sér að efast um að hann væri með fullu
viti. Og allt leiddi þetta til þess að fólkið
isveitinni hætti að sækja þær fáu mess-
ur sem hann stóð fyrir. Biskupsstofa
sagði hins vegar, í samtali við DV, að
aldrei hefði þurft að kvarta undan Jóni
og búið hefði verið að ákveða að sam-
eina Árnesprestakall og Hólmavikur-
prestkall vegna mannfæðar.
nokkur umsnúningur á lífsháttum:
Úr sálgæslu í gijótmulning.
„Ég get lofað ákaflega athyglis-
verðri mynd, enda fágætt að fá að
fylgjast með svo sérstöku máli.
Myndinni líður ágætíega; tökum er
að mestu lokið, hún er í vinnslu,
klippingu og fjármögnunarfasanum.
Við höfum fýlgst með séra Jóni allt
frá því í mars síðastíiðnum og erum
enn að, því við eigum eftir að bregða
okkur austur og fylgjast með störfum
hans þar,“ segir Steinþór sem vinnur
myndina í samstarfi við Tuma
Magnússon myndlistarmann. Þeir
stefna að frumsýningu á Nordisk
Panorama - kvikmyndahátíð sem
haldin verður í Reykjavík í október
næsta haust.
Steinþór Birgisson
Heimildarmynd hans
um séra Jón fjallar um
það hvernig maður I
hremmingum bregst við
aðstæðum sínum.
Samkeppmsaðili
Auglýsing 11.2. 2004
Augiýsing 12.2. 2004
Innifalið:
Flugsæti: Kemur ekki fram.
Brottfarartími: Kemur ekki fram.
Gisting: Kemur ekki fram.
Miðað við hvaða farþegafjölda:
Kemur ekki fram.
Akstur til og frá flugvelli: Kemur ekki fram,
íslensk fararstjórn: Kemur ekki fram.
Netbókun: Kemur ekkí fram,
Flugvallarskattar: Kemur ekki fram.
Innifalið:
Flugsæti: Já.
Brottfarartími: Já.
Gisting: Já.
Miðað við hvaða farþegafjölda:
2 fullorðnir og 3 börn.
Akstur til og frá fiugveili: Já.
íslensk fararstjórn: Já.
Netbókun: Já.
Flugvallarskattar: Já.
m E
!j[ÍT iJj [WHi
Sumarfrilð er dýrmætt: Berðu saman gæði gististaða og þjónustu, verðið kemur á óvart.
VR orlofsávísun
Munió feróa-
VÉy ivlsunina
ftwð/w
MasterCard
fcrðaái
Traust ferðaskrifstofa
framúrskarandi þjónusta! www.urvalutsyn.is
Sími 585 4000
jakob@dv.is