Akranes - 10.09.1943, Blaðsíða 10

Akranes - 10.09.1943, Blaðsíða 10
78 AKRANES ár. Vorið 1943 seldi Sigurður félaga sín- um Þorkeli m.b. Harald, sem hann á nú einn. Aftur á móti á Sigurður enn ög einn m.b. Hermóð. Árni Sigurðsson o. fl. Arni Sigurðsson í Sóleyjartungu er fæddur hér og uppalinn, tók próf frá Stýrimannaskólanum 1913, og hefur verið hér formaður á mörgum bátum. Haustið 1928 kaupir hann m.b. „Frigg“, 28 smál. í félagi við þessa menn: Bræð- urna Stefán, Ásgrím og Guðbjörn Sig- urðssyni, sem allir eiga hér heima, og hafa stundað hér sjó alla tíð. Árni var formaður á bátnum en Guðbjörn véla- maður. Þeir félagar byggðu stórt fisk- hús rétt fyrir ofan Hofteig, þar sem áð- ur stóð verzlunarhús Snæbjarnar Þor- valdssonar og Thors Jensen. Árið 1934 kaupir Árni part þeirra bræðra allra í bátnum, en haustið 1938 selur Árni bát- inn Birni Ágústssyni, en hann aftur Oddi Hallbjarnarsyni 1942. Valdimar Eyjólfsson. Hann er fæddur hér og uppalinn. Fór 14 ára gamall á skútur og var þar um hríð. Þar eftir var hann tvö ár formað- ur fyrir Þorstein Jónsson á Skálum, sem þar hafði um skeið allmikla útgerð. Valdimar var einn þeirra er lét byggja m.b. Egil Skallagrímsson 1914 og var formaður á honum það vor, sumar og haust, en seldi þá hinum sinn part. 1915 og ’16 var hann formaður á m.b. Baldur og átti hlut í honum. Þá var hann og um nokkurra ára skeið formaður á m.b. Elding, Freyr og Óðinn. 1923 kaupir hann svo m.b. Álftin frá ísafirði, ca. 17 smál. að stærð. Meira stundaði hann á bátnum flutninga en fiskveiðar. Harm átti bátinn til 1938, en þá var hann seldur suður í Njarð- víkur. Síðan hefur Valdimar verið í landi og stundað búskap og vegavinnu. Magnús Guðmundsson o. fl. Magnús Axel Sveinbjörnsson og Ólaf- ur Gunnlaugsson gerðust félagar og keyptu m.b. Sjöfn frá ísafirði árið 1928. Báturinn er rúml. 31 smál. Var Magnús fyrst formaður á bátnum en Ólafur véla- maður. Eftir nokkur ár seldi Ólafur þeim Magnúsi og Axel sinn part. Árið 1930 keyptu þeir Axel og Mangús að vestan annan bát, m.b. Sæfari, 27 smál. að stærð. Var Axel formaður á bátun- um nokkuð á víxl þar til 1936, er hann seldi Magnúsi sinn hlut. 1932 byggðu þeir stórt fiskhús við Lambhússund og nokkru seinna 'fiskhús við Stillholtsveg í Presthúsalandi, þar sem þeir líka gerðu nokkurn fiskreit. Sæfara seldi Magnús 1940 til Keflavíkur, en á Sjöfn enn. Brynjólfur Nikulásson o. fl. Árið 1924 kaupir Brynjólfur 1/4 hluta í m.b. „Hrefna“, og eftir 2 ár er hann orðinn eigandi að 1/3 hluta á móti Þórði Ásmundssyni, sem á 2/3 og er útgerðarmaður bátsins, en Brynjólf- ur formaður þar til 1931, er hann selur Þórði sinn part. Það sama ár lætur Brynjólfur byggja í Danmörku m.b. Aldan í félagi við Sigurð Hallbjarnar- son og Ellert Jósefsson. Sigurður selur þeim á sama árinu sinn part og eiga þeir Ellert eftir það sinn helminginn hvór. Eftir lát Ellerts 1935, kaupir Brynjólfur hans part en selur Jóni Halldórssyni bátinn 1936. Þeir Brynjólfur og Ellert byggðu _ 1933 stórt fiskhús á Bræðrapartslóð, sambyggt við hús m.b. Hafþórs. Ellerts mun síðar verða getið í þáttinum um iðnaðarmenn. Ragnar Friðriksson o. fl. Þeir Þorbergur Sveinsson á Setbergi, Ragnar og Hjalti Benónýsson létu árið 1930 byggja fyrir sig mótorbát í Dan- mörku, nefndu þeir hann Hafþór og var 25 smál. að stærð. Strax eftir vertíðina 1931 seldi Hjalti þeim félögum sinn hlut. Árið 1933 byggðu þeir fiskhús við Bræðrapartsvör í félagi við m.b. Aldan. Eiga þeir það hús enn, en seldu bátinn til Keflavíkur 1939. Þeir hafa stundum síðan verið að hugsa um bátakaup, hvað þó hefur ekkert orðið af. Oddur Hallbjarnarson. Hann flytur hingað frá Súgandafirði ásamt fjölskyldu sinni árið 1929. Verð- ur þá þegar formaður á Hrafni Svein- bjarnarsyni. Árið 1931 lætur hann í fé- lagi við Nikulás Oddgeirsson, byggja í Noregi m.b. Óskar, 19 smál. að stærð. 1936 kaupir Oddur hluta Nikulásar, sem fram að því hafði verið vélamaður á bátnum. En árið 1937 selur Oddur bát- inn til Vestmannaeyja. Á árunum 1937—’41 er Oddur formaður fyrst á m.b. Aldan og síðar á m.b. Hermóður. En árið 1941 kaupír hann frá Vestfjörð- um m.b. Bolli, 16 smál., en selur hann sama ár Björgvin Stefánssyni, sem að- eins átti hann fáa mánuði, en seldi hann aftur til Reykjavíkur. í aprílmánuði 1942 kaupir Oddur enn m.b. Frigg af Birni Ágústssyni og á hann nú. Sigurður Vigfússon o. fl. Sigurður Vigfússon, Dan-íel bróðir hans og Kristófer Eggertsson frá Hafn- arfirði (sem átti hér heima í nokkur ár) byrjuðu útgerð með því að kaupa línu- veiðaskipið „Andey“ 69 smál. árið 1931. Kölluðu þeir félagið „Sameignarfélagið Andey“. Árið 1932 kaupa þeir og frá Noregi gufubátinn „Golan“, 70 smál. Svo sem getið hefur verið, gekk út- gerð mjög illa á þessum árum, urðu þeir að hætta rekstri skipanna og selja þau. Hreinn Pálsson útgerðarm. í Hrís- ey keypti „Andeyna“. Er hún enn í hans eigu og hefur verið sett í hana Diesel- vél. Um hinn bátinn.var stofnað hluta- félag hér, sem keypti hann og verður annars staðar sagt nánar frá því. Verzlunar þeirra bræðra verður ann- ars staðar getið. S.f. Sólmundur. í október 1933 er stofnað hér Sam- vinnufélagið Sólmundur. Voru félagar um 20, en fyrsta stjórn þess Ásmundur Jónsson, Sigurður Björnsson, Þorkell Guðmundsson, Sigurður Símonarson og Svbj. Oddsson. Félag þetta tekur þá þegar land á leigu á Sólmundarhöfða og byggir þar fiskhús og fiskreit. Hið upp- haílega markmið félagsins með stofnvm þess^ var að verka hlutarafla félags- manna sinna, þannig að þeir og þeirra nánustu hefðu atvinnu við það á sumrum. Á árinu 1934 kaupir félagið línuveið- arann „Huginn“, 208 smál. Gerði það skipið út á vetrarvertíð 1935 og á síld- veiðar sama ár. Þennan litla tíma tap- aði félagið miklu fé á skipinu; enda voru báðar vertíðirnar afar lélegar, og margvíslega erfiðleika við að etja. Af þeim sökum varð félagið að láta skip og eignir af hendi haustið 1935. Tóku marg- ir félagsmenn þá á sínar herðar allmikla fúlgu af tapinu, og munu sumir þessara manna ekki enn vera lausir við greiðsl- ur þeirra skulda. Júlíus og Helgi Einarssynir. Þeir eru synir Einars Ingjaldssonar á Bakka, svo sem frá hefur verið sagt hér á undan. Þeir eiga nú Valinn ásamt Halldóru ekkju Einars. Júlíus var um mörg ár formaður á bátnum meðan Ein- ar lifði og vélamaður eftir að Helgi varð formaður á honum. Báturinn hefur á- valt verið í viðlegu hjá Haraldi Böðv- arssyni. Jón og Lárus Árnasynir. Þeir eru báðir ungir menn, fæddir hér og uppaldir, en hafa ekki stundað sjó. Haustið 1935 keyptu þeir m.b. Úða- foss, 19 smál. að stærð. Þeir áttu bátinn til vors 1940, en seldu hann þá til Bíldu- dals og þar mun hann enn vera. For- menn á bátnum voru: Njá'l Þórðarson, Tómas Jóhannesson og Björn Ágústs- son. Júlíus Everl o. fl. Júlíus Evert kom hingað 1928 og flutti aftur til Reykjavíkur 1935. Árið 1930 keypti hann m.b. Heimaey frá Vest- mannaeyjum, 29 smál., ásamt þeim Kjartani Helgasyni, sem var formaður og Gísla Einarssyni, sem var vélamað- ur. En þeir Kjartan og Gísli hættu fljót- lega og var þá Evert einn eigandi. Hann átti bátinn ekki nema í 4 ár, en seldi hann þá Haraldi Böðvarssyni. Haraldur skírði hann upp og fékk hann þá nafnið Víkingur. ftergþór Guðjónsson °8 Sigurður Þorvaldsson. Báðir eru þeir ungir menn og þó bún- ir að stunda sjó í mörg ár. Bergþór for-

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.