Akranes - 01.10.1947, Blaðsíða 19

Akranes - 01.10.1947, Blaðsíða 19
ð ANOAKILSÁ Ývírkjun landsíns sýslumaður Björnsson hafa átt þar drýgst- an þátt í, og verið mesti og besti vökumað- ur málsins. Var Steingrimur Jónsson raf- magnsfræðingur fenginn til að gera athug- anir og áætlanir um verkið, og lauk hann því 1921. Hann komst að þeirri niðurstöðu að virkja mætti við fossana 12 — 14 þús- und hestöfl. Þá þegar er þetta ekki fjar- lægara veruleikanum að hans dómi, en að honum dettur í hug að leiða þetta rafmagn alla leið til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Þetta all mikla afl sem þarna er hægt að beisla, — og hugmyndin um að leiða það veg til tveggja stórbæja, — sýnir vel ef rannsakað er; annarsvegar viðhorf manna þá, og hinsvegar þróun þessara mála síð- an, þó ekki sé nema um aldarfjórðungur liðinn síðan. Steingrímur gerir glögga grein fyrir hinni góðu aðstöðu til virkjunar þarna, með hið stóra Skorradalsvatn að baki til miðlunar. Ávallt síðan er málinu haldið vakandi. Þegar Sogsvirkjunarmálið kemst á rek- spöl og í framkvæmd, er ekki að efa að það dregur í bili úr framkvæmdum í sambandi við Andakílsárvirkjunina beint og óbeint. Efsta mynd til vinstri: Vélasamstœður. Efsta mynd til hægri: MœlaborÖ stö&varinnar. Mi&mynd: HáspennukerfiÖ. Nedsta mynd til hægri: Yfirfall viS stífluna. 127

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.