Akranes - 01.10.1947, Blaðsíða 28
ANNÁLL AKPANESS
GJAFIR OG GREIÐSLUR TIL BLAÐSINS,
SEM ÞAÐ ÞAKKAR INNILEGA.
Guðmundur Einarsson, ishússtjóri, Stokkseyri, f.
VI. árg., 30 kr. Halldór Ölafsson, Hvammstanga,
f. IV.—VI. órg., 60 kr. Sumarliði Halldórsson,
Grettisgötu 86, Reykjavík, f. IV. og V. árg., 40 kr.
Valtýr Þorsteinsson útgerðarm., Akureyri, f. V.—
VII. órg., 100 kr. Einar Thoroddsen, skipstjóri,
Reykjavík, f. V. og VI. árg., 100 kr. Þorvarður
Bjömsson, yfirhafnarvörður, Reykjavik, f. IV.—
VII. árg., 100 kr. Jón Jónsson, Borgamesi, f. VI.
árg., 30 kr. Jónas Tómasson, bóksali, Isafirði, f.
2 eint. 1947, 30 kr. Stefán Stefánsson, kaupmaður,
Siglufirði, 50 kr. Lúðvík C. Magnússon, skrifstofu-
stjóri, Reykjavík, f. 1945, 6., 7. og 8., 80 kr. Guðm.
Jónsson, útgerðarm., Rafnkelsstöðum, 100 kr. —
Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri, Reykjavik, f.
1947 og 48. 50 kr. Kristján Bjartmarz, oddviti,
Stykkishólmi, f. I.—VI. árg., 150 kr. Jónas Sveins-
son, Bændagerði, Akureyri, f. 1945, '46 og '47,
50 kr. Þorkell Sigurbjörnsson, fulltrúi, Reykjavik,
100 kr. Óskar Einarsson, læknir, Reykjavík, f. bl.
frá upphafi, 300 kr.
FORSETI ISLANDS
sýnir blaSinu mikla vinsemd og sœmd.
f boði að Bessastöðum, 25. nóv. s. 1., afhenti
forseti fslarids, herra Sveinn Bjömsson, ritstjóra
blaðsins 500 krónur, sem greiðslu fyrir „Akranes."
Fyrir þessa einstæðu rausn og miklu sæmd,
þakka ég innilega. Einnig, — og ekki síður —
fyrir vinsamleg ummæli — þá og fyrr — í garð
blaðsins.
„Góðar eru gjafir yðar, en meira þykir mér
verð vinátta yðar,“ segir í Njálu.
Ól. B. Björnsson.
HJÓNAEFNI.
Ungfrú Guðríður Margrét Erlendsdóttir og
Halldór Ámason, Melstað.
SR. ÞORSTEINN BRIEM OG FRÍf.
Þau hjón munu nú dvelja í Danmörku um þessi
jól. Um næstum 1 y2 órs skeið hafa þau dvalist ó
ýmsum stöðum ó Norðurlöndum. Var vist ætlun
þeirra að koma heim í haust, en af þvi gat ekki
orðið af heilsufars ástæðum.
Blaðið óskar þeim gleðilegra jóla, batnandi
heilsu og blessunar i bróð og lengd.
ÁHEIT TIL BJARNALAUGAR.
M. Á. 50 kr. Frá Ástu og Hannesi, 100 kr. Frá
Hákoni Benediktssyni, 25 kr.
Kærar þakkir,
Axel Sveinbjörnsson.
BLÓMASJÓÐUR AKRANESSKIRKJU.
Athygli er hér með vakin á tækifæriskortum
Blómasjóðs Akranesskirkju. Ennfremur minninga-
spjöldum sama sjóðs. Valgerður Briem hefur teikn-
að hvoru tveggja, kortin og spjöldin, og eru þau
haglega gerð.
Styrkið kirkju yðar um leið og þér gleðjið vini
yðar. Sendið jólakveðjuna á kortum Blómasjóðs
Akranesskirkju.
Kortin eru seld í verzlun Haraldar Böðvarssonar
og verzluninni Grimu, og minningarspjöldin í
sömu verzlunum og á Kirkjuhvoli hjá frú Lilju
Pálsdóttur.
Stjárn sjóSsins.
FULLVELDISFAGNAÐUR.
Stúdentafélagið á Akranesi efndi til fullveldis-
fagnaðar í Báruhúsinu að kvöldi 30. nóvember.
Formaður Stúdentafélagsins, Ragnar Jóhannes-
son, skólastjóri, stýrði samkvæminu. Atriði voru:
Ragnar Jóhannesson flutti óvarp. Ræður héldu
þeir: dr. Árni Árnason, héraðslæknir, og Lúðvik
Guðmundsson, skólastjóri, forseti stúdentasam-
bandsins. Ragnar Jóhannesson og sr. Jón M. Guð-
jónsson lásu upp ljóð. Frú Sigríður Sigurðardóttir
söng einsöng með undirleik Geirlaugs Árnasonar,
og Kirkjukór Akranesskirkju söng nokkur lög.
Dans var stiginn til kl. 3 um nóttina. Fjölmenni
var. Fór skemmtunin vel fram og stúdentafélag-
inu til sóma.
ÉG ÞAKKA
bréfið frá drengnum úr Barðastrandasýslu (15
ára). Af efni, anda og framsetningu mætti eins
vel halda, að það væri fró háskólastúdent. Hjá
honum fer ekki allt fyrir ofan garð og neðan.
Hann veit hvað hann vill drengurinn sá. Er þjóð-
legur og þjóðhollur og mun ó einhvern hátt verða
liðtækur ef honum endist aldur til.
Öl. B. Björnsson.
GRÆNLAND Á KROSSGÖTUM
heitir lítill bæklingur nýútkoininn. Á hann sjálf-
sagt að vera áminning til Islendinga um að nota
nú siðasta tækifærið sem gefst, til þess að standa
á rétti landsins til Grænlands. Sérstaklega að
„glopra" nú ekki niður að fullu og öllu þeim rétti,
eða semja hann af sér við samningaborðið við
Dani. Bæklingurinn hefst á kvæði Einars Bene-
diktssonar, „Jöklajörð." Þá eru í kverinu ýmsar
greinar og tilvitnanir merkra manna innlendra
og erlendra um rétt vom til Grænlands. Þar er
og eins konar Grænlenzkur annáll, um ýmislegt
það sem gerst hefur hér og þar í þessu máli. Ýmis-
legt er þar tilfært úr ritum dr. Jóns Dúasonar,
sem manna mest hefur haldið uppi rétti vorum í
þessu móli, kannað það og kunngert. Einnig eru
þarna nokkrar myndir og uppdrættir til skýringar
og stuðnings sögulegum rétti íslendinga.
Um það ætti að geta orðið gott samkomulag, að
fá nú alveg, og i eitt skipti fyrir öl) úr því skorið
ó alþjóða vettvangi, hvort réttur vor til Grænlands
sé ekki óumdeilanlegur. Það er bezt að gera alveg
upp við Dani, þar sem yfirgangur og gamlar erjur
eru lagðar á hilluna fyrir fullt og allt. Heldur
samið endanlega, þar sem báðir viðurkenna hvern
annan sem jafn réttháan samingsaðila, virðandi
rétt og skyldur hvers aðilans fyrir sig.
THE ANGLO-AMERICAN OCCUPATION
OF ICELAND,
(Herseta Breta og Amerikumanna á íslandi) nefn-
ist smárit, er Snæbjöm Jónsson hefur gefið út á
ensku. Eru það andmæli gegn nafnlausri niðrunar-
grein, er héðan hafði borizt blaði einu ensku,
(minniháttar þó) og það birt, um brezka setuliðið
hér. Það er alkunna, að hið hrezka lið kynnti sig
vel meðan það dvaldi hér á landi, enda hefur því
verið marg sinnis yfirlýst af forystumönnum þjóð-
arinnar. Er þvi vel, að álas á það sé borið til baka,
Góðar bækur:
Hallgrímur Pétursson.
eftir Magnús Jónsson, Leiftur h.f.
★
BessastaSir.
Þættir úr sögu höfuðbóls, eftir Vil-
hjálm Þ. Gíslason. Bókaútgáfan
Norðri gefur út.
★
Sögur og œvintýri,
eftir Sigurjón Jónsson. Bókaverzlun
Guðm. Gamalíelssonar gefur út.
★
Ævintýri Jóh. M. Bjarnasonar,
skálds í Vesturheimi. Fjallkonuút-
gáfan gefur út.
★
Sögur Ásu á SvalbarÖi,
eftir Oscar Clausen. -— Akranessút-
gáfan gefur út.
★
íslenzkir athafnamenn /.,
eftir Gils Guðmundsson. Akraness-
útgáfan gaf út.
★
Bára blá,
Sjómannabókin 1947. — Safn af
Ijóðum, sögum, sögnum og ritgerð-
um. Gils Guðmundsson valdi efni
bókarinnar. Farmanna- og fiski-
mannasamband íslands gefur út.
★
Aloha,
ferðasaga frá Suðurhafseyjum, eftir
Aage Krarup Nielsen. Skjaldarút-
gáfan gaf út.
og því neitað, að islenzka þjóðin í heild sinni taki
undir það. Slúðursögur um setuliðið gera ekki
annað en að vekja gremju og kala í okkar garð
hjá mætri grannþjóð og voldugri, sem ávallt hefur
verið okkur vel, við metum mikils og viljum eiga
vinsamleg samskipti við í hvivetna. Og það er
óhöfðingleg framkoma að fela sig í skugga nafn-
leysisins og dreifa þaðan út óhróðri — jafnvel þótt
eigi ætti i hlut erlend þjóð — og leitt að finnast
skuli þeir menn, er ljá sig til sliks.
GLEÐILEG JÓL!
Enn eru komin jól og eitt ár á enda runnið. Á
því hefur blaðið því miður ekki komið til yðar
eins oft og það eða þið flest vilduð. Siðari hluta
ársins hefur hins vegar verið gerð tilraun til að
bæta það upp, með fjölbreyttara efni og betra út-
liti en áður. Ef pappírsskortur hamlar nú ekki til
viðbótar, má því vona að blaðið komi reglulega
út. Sennilega þó tvö blöð saman.
Vmsir hafa látið í ljós það álit sitt, að þeim
liki blaðið enn betur í „hinum nýju fötum.“ Ekki
vantar áhuga til að reyna að ná enn hærra marki,
en það er ekki einhlýtt. En ef þér kæru lesendur
lyftið lika undir, t. d. með því að senda því gott
efni, og útvega því enn fleiri kaupendur, þarf ekki
að efast um enn stærri sigra í þessu efni.
Með innilegu þakklæti fyrir það, sem þér ó
einn eða annan hátt hafið unnið blaðinu gagn ó
yfirstandandi ári, óskar það yður öllum gleðilegra
jóla og farsæls komandi árs.
Vinsamlegast,
Ól. B. Björnsson.
136
AKRANES