Akranes - 01.10.1947, Blaðsíða 11

Akranes - 01.10.1947, Blaðsíða 11
AHRIF JOLANNA Eftir PÁL ODDGEIRSSON T. d. er ein Maríumynd í Miinchen, kölluð Madonna Tempi, svo lík Dona- tello, að enginn mundi efast um að hún væri eftir hann, ef ekki væri áritun Raffaels á henni. En þó var Raffael mjög sjálfstæður, því ef að vel er að gáð finnast einkenni hans sjálfs líka í þessum myndum, hin einkenilega skipting myndanna með ljósi og skuggum og eins sá ljósskilveggur, sem að jafnaði greinir aðalefni mynda hans frá aukaatriðum, og loks er hin einkennilega skæra litarmeð- ferð. Stundum t. d. í stönzunum hefur hann greinilegan svip af Lionardo, er var samtíðarmaður hans, þó eldri væri. Auð- vitað tengdu lærisveinar hans milli hans og síðari tíma, en ýmsir sem engin bein tengsli höfðu við hann, eins og Domenicho, sem uppi var i byrjun 17. aldar, eru undir áhrifum frá honum. Sama er að segja um franska málarann Poussin, sem var nokk- uð yngri. Á 19. öldinni heldur hinn frægi franski málari Ingres áfram háttum Raffa- els. Hér á Norðurlöndum varð áhrifa hans og vart sérstaklega hjá danska 18. aldar málaranum Abildgaard og þótt undarlegt megi virðast hjá Thorvaldsen, en til eru eftir hann nokkrar teikningar, sem ekki leyna áhrifum frá Raffael. Jafnvel hingað hafa þessi áhrif borist. Það er enginn efi á því, að litameðferð Freymóðs Jóhanns- sonar er undir áhrifum Raffaels, og er ég þar með ekki að segja, að það hafi alltaf tekist sérlega vel, en áhrifin eru greinileg. Það er á tækninni sem allt fyrst og fremst veltur; að vísu á tæknin ekkert skilt við list, en án hennar verður listinni trauðla komið á framfæri. Manni, sem málar, en kann enga eða mjög litla tækni, væri helst að likja við mann, sem frá hendi náttúrunnar væri hvorttveggja í senn glæsilegur ræðumaður og daufdumbur, eða ef vel léti stamaði. Ef svo væri yrði að hafa aðferð Demosthenesar, sem lét steinvölu á tungu sér og talaði við brimið unz hann gat talað skýrt. Það hlýtur að vera aðalhlutverk fél. frístundamálara, að afla meðlimum sínum nægrar tæknilegrar kunnáttu, því þá mun hvort tveggja verða, að einhverjir úr hópnum verði listamenn, en aðrir að minnsta kosti samborgurum sínum til ánægju. GuSbrandur Jónsson Listamenn allra alda. Allir sannir listamenn eiga um lengri eða skemmri tíma örðugt uppdráttar, og eru misskildir, því þeir eru svo langt á undan sinni samtíð. Þá fyrst er mennirnir ná þeim, verða þeir viðurkenndir, og verða þa tiðum samtíðarmenn allra alda. akranes Sunnudagur í Hollandi. Snemma morguns er barið hægt að dyr- um. — Það var fyrsti morgun í Hollandi. Vinur minn, sem ég gisti hjá — sagði mér að nú væri morgunte framreitt — og lagði til að ég risi úr rekkju og við gengjum morgungóngu. Ég leit út um gluggann, sem var Iiálfhulinn krónum trjánna, ekki bærðist blað á grein — fuglarnir sungu sína fögru morgunsöngva. Mér flaug í hug, eru þeir ekki betur innrættir en við mennirnir. Þeir eru að lofa sinn guð fyrir frið og dýrð dagsins. Brátt vorum við komnir út í kyrrð og fegurð. Glampandi sól, himininn heiður og blár, hafið skín- andi bjart. — Leið okkar lá eftir einni aðalgötu borgarinnar, við hvert hús var trjá- og ilmandi blómagarður, svo fagur- lega búið að unaður var að hvíla þar aug- að. Fegurðarsmekkur og hreinlæti hafði hér sýnilega völdin. Við erum komnir út úr borginni — og nú liggur leið okkar eftir steinlögðum vegi, en himin gnæfandi tré eru beggja vegna við hinn undursam- lega veg — en krónur trjánna, sem virðast falla í faðmlög — mynda hvelfingu yfir veginn. Aðeins á stöku stað gægist sólin inn milli trjánna og myndar gullið geisla- band á hinn húmi hulda sumarveg. Við erum komnir út í „Parkinn.11 Hér birtist nýr undursamlegur heimur fegurðar. Alls konar trjátegundir gnæfa hér til himins upp úr grænum grundum, alsettar feg- ursta blómskrúði — en inn í þessari para- dis er stórt vatn með syngjandi svönum og margs konar fuglum, sem una hag sínum vel að synda kringum bæinn sinn blómum skrýddan hólma í miðju vatn- inu Við þessa fögru sýn varð ég hrifinn og þögull — mér hvarflar hugur heim til hamraborgarinnar okkar. Því eigum við sem byggjum hina undurfögru eyju, enga hríslu — ekkert blóm, sem sé og verði sameign íbúanna — og of lítið af fegurð af mannahönd gjört. Hvað ertu að hugsa um, segir hinn ljúfi samferðamaður minn. Ég var að óska mér þess að við ættum svona fallegan og gróðurríkan lund heima. Nú varð þögnin rofin, við skulum ganga aðra leið til baka heim í borgina. Sama fegurð blasti einnig við á hinni nýju göngu. Við verðum að vera komnir heim fyrir kl. 1 o. — Við skulum fara til kirkju Þegar við komum inn í borgina voru öll stræti þéttskipuð sumarklæddu fólki — ungum og öldruðum. — Straumurinn lá sitt í liverja átt — allt var fólkið á leið til kirkju. — Þetta var fögur sjón og talaði sínu fagra máli, sem ég síðar kynntist betur. Ég spurði samferðamann minn, hvað heldurðu að margir af hundraði af íbúum borgarinnar gangi til kirkju í dag? Ekki færri en 60 af hundraði í morgun- messu, en svo fer margt til kirkju í kvöld, sagði Mr. V. Aftur var mér hvarflað heim, já víðar en heim í mína byggð — einnig til höfuð- staðarins. Hvað ganga margir af hundraði til kirkju í 50 þúsund íbúabænum. Ég áætla 2500 — eða 5 af hverju hundraði. Nei„ liklega er ég of stórhuga. (Vík að þessu efni síðar). Klukkuna vantar 5 mín- útur í 10. Við göngum inn i kirkjuna — vinur minn býður mér sæti við hlið sér. Það er bogamynduð stúka framan við pre- dikunarstólinn, en þar er kirkjuráðsmönn- um ætlað sæti (en Mr. V. var einn af þeim í þessari kirkju, auk þess, sem hann var kirkjuráðsmaður í tveim öðrum). Klukkan er io — hvert sæti er nú skipað í kirkj- unni. Meðhjálparinn, eða stjórnandi guðs- þjónustunnar, styður á rafmagnshnapp — rautt ljós skín út við kirkjudyrnar — dyra- vörður lokar kirkjudyrum, presturinn stígur i stólinn (tekur sér sæti svo hann sést ekki). Nú hljóma yndisfagrir tónar; forspil frá hinu risastóra orgeli. — Guðs- þjónustan er hafin. — Að loknu forspilinu, sem byrjaði sem hljómþrunginn niður — dó nú út í helgan frið. Presturinn sem var mjög virðulegur eldri maður, flytur nú af mikilli andagift bæn. — Allir karlmenn standa upp, hneigja höfuð sín og loka aug- um, en konur sitja, drjúpandi höfði -— einnig með lokuð augu. — Það heyrðist ekki andadráttur — hér fór fram hljóð og einlæg bænarstund. Ég sá mér fært að litast um í kirkjunni. — Það leit út, sem söfnuðurinn væri ein sál og einn andi. Þjóð, sem er svo samtaka og samstilt í trúnni, hlýtur að vera sem ein hjörð undir leiðsögn hins eina hirðis. Presturinn lýk- ur bæn sinni — sálmur er sunginn, allur söfnuðurinn syngur með. Altari var ekki í kirkjunni — og ekki var tón viðhaft. — Að loknum tveim sálmum flutti prestur langa ræðu, veittist mér erfitt að skilja hana, en með því að hollenzk tunga er skild þýzku, fylgdist ég með meginþræði ræðunnar. Meðan útgöngusálmur var sunginn gengu 4 ungir menn fyrir kirkju- gesti og veittu gjöfum móttöku. Engin skarst hér úr leik — enda eru gjöld til kirkju í Hollandi látin af hendi á þennan hátt. Eftirspil er lokið, presturinn gengur niður úr stólnum — hinni fögru og mér ógleymanlegu guðsþjónustu er lokið. Ég hefi komið í kirkjur margra þjóða en hvergi séð einlægari merki trúrækni en með hollendingum. Land þeirra með Rín, Maas og hinum óteljandi skipgengu skurð- um, allt vafið gróðri, er í sannleika sagt — land yndi og fegurðar. En fólkið — þjóðin ti9

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.