Akranes - 01.03.1949, Page 3

Akranes - 01.03.1949, Page 3
* r • Málning og málaraiðn á íslandi I. GREIN Að vonum er framleiðsla málningar ekki gömul iðn hér á landi fremur en annar verksmiðjurekstur. Hér er málara- iðnin heldur ekki gömul, veldur þar um aldagömul örhirgð, samhliða hinu, að langt er liðið á síðustu öld, þegar verulegar eða varanlegar byggingar hefjast að nokkru tnarki. Um svipað leyti fer að rofa fyrir degi frelsis og framtaks á atvinnusviðinu. Samhliða fer þjóðin smátt og smátt að gera meiri kröfur um húsakost og híbýla- prýði og til fergrunar. umhverfisins. Einnig að hyggja betur að endingu hlutanna. Þrátt fyrir hið ömurlega ástand, kúgun °g kvaðir erlends valds á öllum sviðum, naa snemma á öldum minnast lærðra ís- lenzkra listamanna, búna óvenjulegum hæfileikum á sviði dráttlistar, myndskurð- °g málunar. Kemur kirkjan þa"r svo rækilega við sögu, að nefna mætti mörg dæmi frá fyrstu öldum kristninnar hér. t’að skal þó ekki rakið, heldur aðeins tninnst á. Biskupinn með málningar- burstann. Kirkjan tekur snemma í sina þjónustu >ðn og hvers konar listir. Fara hæfileika- menn ekki fram hjá henni. Hún þarf á þeim að halda. Hún magnar þá i flugi andans, formi og festu í órjúfanlegri sam- ræmdri lieild. Undir vernd kirkjunnar og íyrir atbeina hennar, unnu mestu snill- nigar allra alda að byggingum kirkna, skreytingu þeirra og hvers konar búnaði. Hafa þeir þannig með aðstoð kirkjunnar akranes og fyrir bein áhrif hennar, látið eftir sig ódauðleg listaverk, sem um liðnar aldir og ókomnar, munu teljast með undrum og stórmerkjum. Jafnvel hin islenzka kirkja á hér snemma á öldum listamenn sem nema við erlenda menntabrunna og miðla af list- auðgi sinni heima og heiman. Er hand- bragð ýmsra þessara manna enn talandi vottur um þessa listmenningu þjóðar vorrar utan lands og innan, þótt nöfn ýmsra þeirra séu grafin og gleymd. Enda þótt fram á síðari áratugi, hafi hér ekki verið byggð kirkjuhús úr neinu varan- legu efni, koma þó æði snemma á öldum fram islenzkir listamenn sem fengizt hafa við skreytingu kirkna og kirkjugripa. Hér skal þetta ekki miltið rakið, en aðeins minnst á einn mann. Martein Einarsson, síðar biskup, (sjá Menn og menntir II, bls. 456—57-) Það er fullvíst að Marteinn hefur numið málaralist í Englandi, og líklega verið vel fær í þessari list, enda hagur og listfengur. Það eru til skjallegar heimildir fyrir því að hann hafi verið fenginn til Hóla og Skálholts að mála þar sali og kirkjur. Það má telja víst, að hér hafi verið að ræða um skrauUnálningu einstakra örfárra húsa, eða hluta af þeim, t. d. kóra á höfuðkirkj- um og einstakan sal eða stofur á Hól- um. Þá er og sagt að Marteinn biskup hafi málað kirkjuna á Staðastað. Einnig kirkj- una á Álftanesi á Mýrum, e'Ur að hann var orðinn gamall maður. Hefur það senni- lega ekki verið í hólf og gólf, heldur t. d. VIII. úrg. - marz—apríl 1949 - 3.—4. tbl. Útpefundi. ritstjóri og ábyrgSr.nnaSur: ÓLAFUR B. BJÖRNSSON 'IfgreiSsla: M'Steig 2, A/.ranesi. PRENTAÐ I PRENTVEP.KI AKRANESS II.F. kóra, eða eitthvað sérstakt, eins og að var vikið áður. Það er langt síðan þetta var, eins og þar stendur. Því sennilega er það um 1530 sem Marteinn biskup málar á Hólum eftir beiðni Jóns biskups Arasonar. Það má vel vera, að til séu t. d. altaristöflur eða máluð listaverk eftir Martein biskup þótt ekki sé það kunnugt. Hitt má svo telja víst, að hann hafi verið listmálari en ekki húsa- málari á nútiðarvísu. Harma ég því að íslenzkir húsamálarar skuli ekki getað tileinkað sinni iðn þennan nafnfræga lista- mann, sem búinn er að liggja í gröf sinni um 380 ár. Hvenær er farið að nota máln- ingu hér á landi? Það er vitað að hagleikur og listfengi hefur fvlgt þjóðinni alla tíð, þótt litið tækifæri hafi fólk haft til að þroska þessa hæfileika sina. Það er vitað, að menn hafa við og við leitað til náms erlendis í ýmsum listgreinum. Meira að segja þótt vitað væri að hér gæti ekki iðn eða list orðið lífvænleg. Þetta sýnir ljóslega ódrep- andi þrá manna að nema og fást við það sem hug og hjarta stóð næst hverju sinni. Eins og lítillega var minnst á hér að framan, var ekki von til að mikill skiln- ingur væri hér fyrir málaraiðn eða málara- list. Allar byggingar höfðu verið litlar og og lágreistar sem skamma stund stóðu og ávallt var verið að endurbyggja. Langt fram á síðustu öld hafa því hvorki kirkjur né hibýli manna verið máluð, nema þá á biskupssetrum, og á síðkastið á einstöku liöfðingjasetrum og kaupmanna- eða em- bættismannahúsum í höfuðstaðnum. Lík- lega þó ekki. fyn’ en á síðustu öld eða litlu fyrr. tJtlendir ferðamenn láta mikið af rausn og höfðingsskap Magnúsar Stephensen. er þeir heimsóttu hann á Innra-Hólmi, þótt nú sjáist ekki urmull af þeirri reisn. Eins og Magnús er langt á undan sinni samtíð í ölliun framförum og nákunnugur þeim i nálægum löndum, má fullvíst telja að mörg herbergi og stofur í hinum stóra bæ, hafi verið málaðar, 27

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.