Akranes - 01.03.1949, Síða 17

Akranes - 01.03.1949, Síða 17
Hjónin á Söndum meS 10 af börnum sínum. Þau eru þessi: Ásta, sitjandi hjá Magnúsi. ASal- heiSur situr hjá GuSrúnu. / miSiS (frá vinstri) Margrét. Þá Hallgrímur, Eggert og RagnheiSur. Aft- ast (frá vinstri) GúSbjörg, Helga Margrét, Magnús og Ragnhildur SigríSur, sem er dáin. Hér er ekki nrynd af einu barni þeirra hjóna, ASalheiSi, sem líka er dáin. Myndin til hœgri er af tveimur sonum þeirra hjóna, þeim SigurSi og Ragnari Simoni, er ekki voru á hópmyndinni sem veikindi hafa þar oft borið að garði. En hér sannast sem oftar, að góð heimili eru hefðartindar þjóðfélagsins. Alveg án tillits til halla eða heiðursmerkja. Hinn rétti andi og umhverfi gerir þar allt mögu- legt og skapar grunn undir framtíðarheill. Fyrir nokkrum órum fékk Magnús að- kenningu af slagi og lamaðist verulega, °g af þeim afleiðingum andaðist hann hinn 14 april s.l., eftir langa vanheilsu, sem hann bar með spaks manns stillingu. Þegar Magnús Jörgensson keypti Sands- lóð af Hallgrími Jónssyni, var hún talin að vera um 1000 ferfaðmar og var verðið 200 krónur. 1 því kaupi fylgdi ekki fjaran, en þessi fjöruréttindi: 1. Malar- og sandtekja til eigin afnota. 2. Uppsátur og vergögn. 3- Timbur, sem á land rak og var yfir 3 álnir á lengt átti Hallgrímur. Sandur er nú við Krókatún 4. 54- SrniSjuvellir. Þar byggir fyrst Jörundur smiður Þor- steinsson 1868. Er það ofanvert við Kirkju- vallalóð og annað býlið,. sem reist er í því hverfi á kirkjulandinu. Er ekki að efa, nð með nafngiftinni hefur Jörundur smiðju sma i huga. Var Jörundur og Bjarni Bryn- jólfsson frá Kjaransstöðum aðal-smiðirnir hér, en Bjarni byggir einmitt þetta sama ar J átlateig, og býr þar síðan meðan hann lifir. Jörundar smiðs verður síðar nánar getið í öðrum þætti. Kona hans var Ingi- hjörg Bjarnadóttir frá Melum í Melasveit. ÞeiiTa börn voru: Bjarni, (smiður sem faðir hans) og Ragnheiður, (saumakona). Ekki munu þau systkini haf gifst. Árið 1888 kaupir Jón Guðmundsson, skósmiður Smiðjuvelli og er þar þangað hl hann byggir Laufás 1901 og flytur þangað. Jóns hefur verið getið i 5. tbl. I. arg., og verður nánar getið siðar. Guðjón Hinriksson kaupir Smiðjuvelli igoi og hýr þar mjög lengi ásamt konu smni, Lilju Guðmundsdóttur. Þeirra dóttir er Guðný, kona Jóns Jónssonar frá Jaðri. Guðjón og Lilja ólu upp Helgu, dóttur Jóns og Guðnýjar. Hún tók við búi af gömlu hjónunum, ásamt manni sínum, Pétri Sigurbjörnssyni frá Blómsturvöll- Urn. Lilja deyr 22. apríl 1931. Hún var fædd á Svarfhóli í Svínadal, 5. júni 1848. Guðjón andaðist 15. april 1938, og er íæddur að Galtarvík 7. des. 1851. Lilju á Smiðjuvöllum kynntist ég vel, þvi að hún kom oft að Litlateig. Hún var síkát og fjörug með spaugsyrði á vörum. hlinnist ég aldrei að hafa hitt hana, nema broshýra og káta. Pétur mun hafa selt 1935, Finnboga Sigurðssyni. Hann var fæddur að Litlu- Seilu í Skagafirði 21. júní 1873. Hann bjó áður í Tanga og kom þangað frá Reykja- vík, en þar var liann um nokkur ár timbur- akranes afgreiðslumaður hjá Timbur- og kola- verzluninni við Kalkofnsveg. Kona Finnboga var Þuríður Guðjóns- dóttir frá Seljateigi í Reyðarfirði. Börn þeirra: 1. María, gift Sigurði Sigurbjörnssyni og búa í Reykjavík. þau eiga 2 börn. 2. Sigurður, dáinn 24. febr. 1946. 3. Guðrún, gift Eiríki Þorvaldssyni, Vesturgötu 90, þau eiga eina dóttur. 4. Guðjón, verzlunarmaður. 5. Pálmi, báðir hjá móðursinni á Vesl- urgötu 73. Sigurður sonur þeirra hjóna andaðist 1946, eins og áður var sagt. Hann var harðduglegur ungur maður, vandaður og vinnusamur, sem áreiðanlega hafði hugs- að sér að verða móður sinni og systkinum að liði í hinni liörðu lífsbaráttu. 1 því efni varð lionum og mikið ágengt, þó að heils- an bilaði ofsnemma, og þau yrðu af hon- um að sjá. Hann hafði áreiðanlega erft í ríkum mæli beztu kosti foreldranna. I>uríður er liin mesta myndar kona, þrifin, dugleg, dul en drenglynd. Finnbogi andaðist 4. marz 1936. Hann var vel greindur, óvenjulega nákvæmur og sam- vizkusamur, húsbóndahollur, orðvar og ágætur í alla staði. Næst kaupir Daníel Friðriksson Smiðju- velli, en er þar ekki lengi. Hans verður nánar getið síðar í þessum þáttum. Þá kaupir Hjörtur L. Sigurðsson, skósmiðs Halldórssonar. Kona hans var ÁstaSigur- björg Sigfúsdóttir, frá Brekkukoti. Þau hafa skilið samvistir, en eiga tvær dætur, Ölöfu Líndal og Sigríði Geirlaugu. Áriði 94.6 eru Smiðjuvellir keyptir af Ástu Sigfúsd. til þess að leggja til lóðar hins nýja sjúkrahúss í samræmi við hið nýja skipulag. En húsið selur sjúkrahús- stjórnin aftur f’orsteini Magnússyni, með loforði um að það megi standa, þar til sjúkrahúsið þurfi sjálft að nota lóðina. Lengi nokkuð var bærinn nefndur Smiðjuvöllur, en breyttist síðar í Smiðju- vellir. 1 10.—12. tbl. VI. árg., þar sem 2. kafla líkur, eru að síðustu talin öll þau býli, sem getið var í þeim kafla. Þar er enn- fremur kort af Skaganum, þar sem sýnt er hvar þessu umræddu býli hafa staðið. T þessu sama blaði — í niðurlagi þessa kafla stendur svo: „Línan þvert yfir Skag- ann er merkjalína. Þar liggur nú gatan Akurgerði.“ Þessi skekkja leiðréttist hér, og á að vera MerkigerSi. I þeim kafla sem hér er að ljúka (1840—1870) hafa eftirtalin býli bygst: 36. Sandabær (Byggður 1841, fór í eyði 1908). 37. Vegamót (Byggt 1843, þau eru enn til). 38. Garðhús (Byggð 1845, á sama stað var byggt steinhús 1947, og er við Suðurgötu 36). 39. Teigabúð (Byggð 1843, fór í evði 1900). 40. Hreppsbúð (Byggð 1850, fór íeyði 1868). 41. Bjarg I. (Byggt 1852, er enn til). Bjarg II. (Byggt 1883, og er enn til). 42. Sandgerði (Byggt 1855, er enn til, og er við Suðurgötu 60, en á að hverfa eftir hinu nýja skipulági). 43. Hlið (Byggt 1855, er við Suðurgötu og er enn til). 44. Traðarbakki (Byggður 1856, er við Akurgerði 5, og er enn til). 45. Halakot (Byggt 1857, fór í eyði 1936). 46. Efstibær, I. og II. (Byggðir 1860, og eru enn til). 41

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.