Akranes - 01.03.1949, Page 21

Akranes - 01.03.1949, Page 21
ANNÁLL AKRANESS Gjafir og greiðslur til blaðsins, sem það þakkar innilega. Sigurður Magnússon skipstjóri Reykjavík, go kr.. Fró Bergþóri Þoi-i'aldssyni stórkm., umfram- grcúðsla 20 kr., fró gömlum Akurnesing, sem ekki vill láta nafns sins getið, 60 kr.. Gisli Eggerts- son skipstjóri Krókvelli, 100 kr.. Sveinn Tryggva- son mjólkurfræðingur, umframgreiðsla 60 kr., Jón Ölafsson Bræðraborgarstíg 24 Rvk., 100 kr.. Stefán Bachmann Hafnarfirði, 25 kr.. Frá Guð- mundi Gunnarssyni Steinstöðum, f. 1949, 100 kr. brá kaupm. Magnúsi Magnússyni Hellusundi Rvk., 50 kr. Ólafur Guðmundsson lögregluþjónn Rvk., umframgreiðsla 40 kr.. Sr. Jón N. Jóhannes- en, f. 1949, go kr.. Jónas Þorvaldsson skólastjóri Ólafsvík, greitt til og með 1950. Ólafur H. Matt- hiasson endurskoðandi, greitt 100 kr.. Stefán Stef- ansson Siglufirði 50 kr.. Jón Sigurðsson hafnar- vörður 100 kr.. Ólafur A. Guðmundsson kaupm. Reykjavík, 50 kr.. Sigurður Sumarliðason skip- stjóri Akureyri, go kr.. Frá frú Emeliu Þorsteins- dóttur f. 1949, 50 kr.. Afli Akranesbáta á vertíðinni 1949: sjóf. kg- lifur ltr. 1 • Sigurfari ... 66 537,350 35,930 2. Böðvar ÖO 497,88.5 34,100 3- Farsæll 62 475,703 31,890 4- Keilir 6l 472P95 32,755 5- Sveinn Guðm.s. ■ ■ • 57 408,680 29,745 6. Aðalbjörg 6l 401,700 25,805 7- Sigrún • ■ • 59 401,785 26,640 8- Valur ... g6 379,345 25,740 9- Fram 6l 374,805 25,320 10. Fyjkir • ■ • 53 349,655 22,895 11. Ólafur Magnúss. ■ • ■ 59 342,130 23,835 12. Bjarni Jóhanness. ■ • 59 335,390 23,765 1 3- Ásmundur .... ... gi 334,175 23,020 14. Svanur • ■ ■ 55 303,035 21,435 ig. Hrofna ... 46 284,435 18,510 16. Xoorsteinn ... 49 260,315 18,025 17- Ásbjörn ... 47 257,685 17,980 18. Haraldur 40 180,310 11,395 Aðkomub., tryllur og stubbar . 90,260 3,805 6,686,540 452,590 1002 sjóferðir. Aflinn er miðaður við slægðan fisk, með haus. Til samanburðar 1948, voru bátarnir ig, en aflamagnið 5,657,620 kg. En vegna Hvalfjarðar- síldveiða Jiá, byijuðu sumir þeirra ekki fyrr en seint í marz. Þá var lifrarmagnið 412,231 litir. Fiskimjölsframleiðslan var nú í ór rúm goo tonn. Hjónabönd: 9. apríl Ungfrú Sólrún Ingadóttir, Reykjavik og Ásmundur Guðmundsson málari, Laugar- braut 2g. 16. — Ungfrú Maria Jakobsdóttir, Suðurgötu 78 og Magnús Þorsteinsson bílstjóri Reyk- hólum. Dánardægur: IJinn 14. april s.l. andaðist Magnús Magnússon, smiður á Söndum eftir langa vanlteilsu. Hinn 16. apríl andaðist é Elliheimilinu liér Þórunn Sigurðardóttir, lengi búanda í Melaleiti, kona Guðmundar Ásgeirssonar. Hún var háöklruð kona, f. 20. júli 1864, ó Hurðarbaki i Svinadal. Hún hefur verið sjúk um fjölda ára. Skátar og skóli biðja um messu. Á sumardaginn fyrsta óskuðu skátar þess við sóknarprestinn sr. Jón M. Guðjónsson, að hann héldi skátamessu fyrir þá i kirkjunni. Fyrir alllöngu siðan óskaði skólastjóri Gagn- fræðaskólans þess að nemendur skólans gengju allir til kirkju og hlýddu messu. Af ýmsum or- sökum gat ekki orðið af þessu fyrr en sunnudag 24. april. Komu allir nemendur skólans i skrúð- göngu til kirkjunnar. I allri upplausninni og agaleysinu, er það þakkar vert — og hin mesta nauðsyn — að skólarnir sinni meir en verið hefur hinum andlegu málum, og taki virkan þótt í kirkjulegu og kristilegu starfi. öllum þeim ber heiður og þökk. Eyvindur Valdimarsson. Hann mun vera fyrsti Akurnesingurinn, sem lokið hefur verkfræðinámi. Hefur hann um mörg undanfarin ór stundað þetta nám við háskólann i Stokkhólmi og tekið )>ar próf með heiðri. Hann er fyrir skömmu kominn heim ásamt konu sinni, en þau munu til að byrja með setjast að i Reykja- vik, ]>ar mun Evvindur ]>egar liafa fengið eitthvað starf. Þorláltur þreytti. Leikfélag Akraness hefur starfað af miklum ó- huga og dugnaði í vetur. Er þetta annað stór leikritið, sem það sýnir í vetur. Hefur aðsókn verið sæmileg, og talið að meðferð leikenda sé i stöðugri framför. Skríll. Það yrði mörgum Islendingi sársaukaefni, ef heimfæra mætti þessa yfirskrift upp á fleiri eða færri landsmenn. Ef skrilslæti færu að verða hér tiðir viðburðir. Þvi miður verður því ekki neitað, að yfirskriftin ætti við villimennsku þá, sem átti sér stað á Austurvelli og fyrir framan Alþingis húsið, miðvikudaginn 30. marz s. 1. þroskað fólk eða siðmenntað hagar sér ekki Jiannig. Vonandi veiðui' þetta einstætt fyrirbrigði með vorri þjóð. Það voru vist einu mistökin af hendi lögreglunnar við þetta tækifæri, að örfáir af hinum mikla mann- fjölda, sem þarna var, gátu heyrt eða vitað um óskii eða skipanir hennar, svo lélegt var taltæki það, er hún notaði til tilkynninga. Hitt þótti mér vænt um, hve góðan vitnisburð lögreglan fékk af munni eins þeirra, er hún handtók þennan dag, og sat i haldi hjó henni um nóttina. Hann sagðist verða að viðurkenna og sér væri það ljúft, að hann hefði ekki séð lögregluna beita bareflum eða neins konar valdi við aðra en þá, sem höfðu sig þarna i frammi. Hélt ég ])ó. að erfitt hefði verið að fyrirbyggja i þessum þrengslum, að ekki gildu óverðugir. Þetta var nú utan dyra ]nnghússins. En hvað gerðist svo innan dyra? Fyrr um daginn og einnig um það leyti, sem bardaginn geisaði úti, hvað nokkuð liafa skort á virðulegan flutning og glæsi- brag sumia þingmanna, og þeim sjálfum, þingi og þjóð til litils sæmdarauka. Vonandi verður langt að bíða þess, að slikir atburðir endurtaki sig þar úti eða inni. En hvað sem því liður, fer nú mælir- inn sjálfsagt að verða fullur um takmarkalausa eyðslu, agaleysi og oflátungshátt allt of margra þjóðfélagsþegna, til þess að vér getum verið ör- uggir og óttalausir um frelsi og framtið þjóðar- innar. Ekki utan fró, heldur að innan, frá oss sjálfum. Myndin af Borg á Mýruni á forsiðu seinasta blaðs, var tekin af þáverandi sóknarpresti þar, sr. Bimi Magnússyni, núverandi dósent. Haf nf irðingar! Vinsamlegast greiðið blaðið sem allra fyrst til hr. Stefóns Bachmanns afgreiðslumanns, Gunnars- sundi 3. Prentvillur í síðasta blaði: Á bls. 12 í síðasta blaði, 1. dálk í upphafi 5. línu, á að vera 770 ár o. s. frv., en ekki 700 ár. Á bls. 13 hefur orðið mikið linubrengl í sam- bandi við prestatal í Reykholti og á Borg á Mýrum. Á eftir Vernharði I’orkelssyni, neðst í fyrra dálki, á að koma næst, nafn Jóns Þorvarðssonar, 1862, og áfram, til og með Einar Guðnason 1930. l^ar é eftir átti svo að koma Prestatal á Borg. Á eftir Þorsteini Þórarinssyni 1680, á svo að koma efsta nafnið, Jón Eyjólfsson eldri 1681 og áfram. Smáletursklausan ótti svo vitanlega að vera lokaorð i sambandi við prestatalið á báðum stöðum, eins og hún líka ber með sér. 1 sambandi við annál, þar sem getið er um hjónaefni, á að vera Stefán Teitsson, en ekki Teitur Stefánsson. _______ I greininni uin „Vestfirzkan framburð,“ ó bls. 2, á að lesa: „framan af langa tanga,“ og „sjóinn (ekki sjórinn) skefur." 1 erindunum á bls. 18 („Um palladóma“ á fyrsta lína að vera: „Þó að kólni, þó að kveldi"; upphaf fjórða erindis: „Hljómi hún vitt og hljómi lengi“; en fyrri helm- ingur síðasta erindis: „Tóna svanur, þakkir þjóðar þér eru sendar nú, i dag.“ Komma á eftir „nú“ má ekki missast, þvi að „í dag“ er þarna blétt áfram til áherzlu. 1 9.—12. tbl. 1948, er litil prentvilla í greininni: Kveðja skáldsins til þjóðarinnar. Á bls. 112 i Ijóðlinunni: Hvers manns starf er vald í meðferð þjóðar. Á að vera svo: Hvers manns starf er vald í velferS þjóðar. Prýðum bæinn. Hreinsið lóðir og lendur og lagfærið girð- ingar. Styðjið viðleitni þeirra, sem eru með trjá- og blómrækt. Kennið börnunum að bera virðingu fyrir fegrun bæjarins og háttprýði í hvívetna. Hendið ekki rusli eða óþverra ofan fyrir bakkana, nema að sjórinn nái þvi. Þeir, sem skulda blaðið eru vinsamlegast beðnir að senda greiðslu sem fyrst. Vinnuskólinn. Aðsókn að skólanum hvað vera mjög inikil. Skurðgröftur. Vel gengur að grafa hinn mikla skurð liér innan við bæinn. Eru hin miklu rör, sem í hann eiga að fara fullgerð. En í þann skurð á að veita skolpi og yfirborðsvatni af öllum uppskaganum. AKRANES 45

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.