Akranes - 01.11.1949, Blaðsíða 17

Akranes - 01.11.1949, Blaðsíða 17
Þar er eintómt gull Mennirnir eru misjafnir, ;if erfðum, uppeldi og umhverfi. Lífsferill þeirra og viðhorf til manna og málefni er og æði misjafnt. Hér k.emur margt til greina. T. d. hvernig þeir taka því, sem að höndum ber. Hvað þeir meta til sigra eða ósigra. Hvernig þeim gengur að hafa áhrif á umhverfið eða sætta sig við það. Hvernig þeir nota eitt og annað til að byggja upp sinn innri mann, sem aftur getur haft mikilvæga þýðingu 'fyrir hagi annarra manna og skaphöfn alla. Þegar ég skrifa þetta, og brýt það mál til mergjar, koma mér fyrst í hug þrjár konur. 1 fyrsta lagi móðir mín. 1 öðru lagi sú kona, er ég eigi tilgreini að þessu sinni. Og í þriðja lagi nábúi minn um langt skeið og náfrænka, yndisleg kona. Hún er fædd hér á Akranesi 11. desember 1868. Hún var dóttir merkis- og myndar- hjóna. Faðir hennar var sonur mektar- bónda hér, sem einnig var hreppstjóri, dugnaðarmaður og þéttur fyrir. Móðir hennar var af Stephensenætt, og mátti sjálfsagt stundum merkja það í fari henn- ar og fasi, að einhvern tíma hafi ættin verið valdamikil. Dóttir þessara hjóna, og konan, sem ég á hér sérstaklega við, er Helga Níelsdóttir frá Lambhúsum, nú á Vesturgötu 24 hér i bæ. Hún var snemma ljúf og lýðum kær. Systkini Helgu voru 6, en dóu öll ung nema eitt, flest á fyrsta ári, úr barnaveiki eða mislingum. Aðeins eitt, Þóra, komst til fullorðins ára. Það var því eðlilegt, að Helga yrði snemma augasteinn foreldr- anna, vina og vandamanna. Þvi fremur, sem frá henni andaði til allra, er henni kynntust, óvenjulegum yndisþokka og góðleik. Hún var í skóla hjá fjórum kennurum og hlaut hjá þeim öllum óvenjulegan vitnisburð. Þá voru vitnisburðarbækur látnar af hendi í skólunum, en því miður eru þessar vitnisburðarbækur Helgu ekki til lengur. Hefði það verið gaman, þó ekki hefði það verið til annars en sjá og sýna hina afburða fögru rithönd Odds kennara Guðmundssonar. Helgu þótti litið til vintnisburðarins koma, þegar hún var orð- in 4 í röðinni af 32 börnum. Mörgum ár- um seinna sagði Snæbjörn kaupmaður, er hann var að blaða í gömlum vitnisburðar- plöggum frá barnaskólanum: „Alltaf var hann fallegur vilnisburðurinn þinn, Helga litla“. (Hjá vinum og nákunnugum var hún eiginlega alltaf kölluð Helga litla. Þótt hún væri meðal kvenmaður, og í engu lítil). Þegar lífið var henni ljúfast. Þórunn Bjarnadóttir, siðar prestsfrú i Vigur, var móðursystir Helgu Níelsdóttur. Var Þórunn nokkuð í Lambhúsum, þegar Helga var barn að aldri. Tókst þá þegar með þeim vinátta, sem aldrei siðan bar skugga á. Enda munu þær hafa verið likar að ýmsu leyti. Skömmu eftir að Þór- unn var orðin prestsfrú í Vigur, bauð hún frænku sinni og uppáhaldi að vera hjá sér svo lengi, sem hana lysti. Var það boð þegið af foreldrum Helgu, og ekki siður af henni sjálfri, enda ekki í kot vísað. Þar var Helga svo í tvö ár, og segir, „að það hafi verið ljúfasti timi ævi sinnar“. Hún var í miklu afhaldi hjá frúnni, eins og áður er sagt, og mátti gera það eitt er henni líkaði. Hún stóð á tvitugu, er hún fór vest- ur. Saklaus og elskuleg stúlka, sem öllum þótti vænt um. Áður hafði hún ekki verið að heiman nema tvo sumartíma. 1 annað skiptið hjá frændfólki í Kalmanstungu. Þá var mikið um að vera í Vigur. T. d. 27 manns i heimili, þar af 7 vinnukonur. Þar var þá búið stórt til sjós og lands og mikill gestagangur, þótt yfir sjó væri að sækja. Þar var útræði og mikil fiskverkun, mikil dúntekja og fénaður. Presturinn var héraðshöfðingi, vinsæll og dáður. Hin unga prestskona hefur því mátt hafa nokkuð hjá sér, til bússýslu á hinu umsvifamikla heimili prestsins, hér- aðsliöfðingjans og þingskörungsins. Munu kunnugir á einu máli um, að þann sess hafi hún skipað með mikilli prýði. Þarna var Helga með hinum ungu sonum þeirra Vigur-hjóna, sem nú eru allir vel metnir og kunnir ágætismenn. Þessi Vigur-vera, hjá náfrænku og góð- vinum, er eins og fagur draumur, þegar horft er til baka og rifjað upp. Því að þótt Helgu finnist allt lífið yndislegt, „þar sem ég hefi alltaf verið leidd af hulinni hönd,“ eins og hún sjálf segir, þá voru næstu árin náttúrulega erfið á stundum. Nú væri það kært. Hinn 28. april 1891, gekk Helga að eiga unnusta sinn Kristmann Tómásson, Erlendssonar frá Bjargi. Áratugurinn 1880—’go var hér mörg- um erfiður í skauti. Höfðu verið fiski- leysis- og harðindaár, svo að jafnvel lá við sulti, a. m. k. þar, sem ekki var mjólk að fá. Síðasti tugur aldarinnar var og að ýmsu leyti erfiður. Það var því ekki efni- legt eða árennilegt fyrir ung og efnalaus hjón að setja saman bú. Þótt hin unga kona væri heimasæta frá sæmilegu efnaheimili, — eftir því sem þá gerðist, — og búin að vera „stofu- stúlka“ í tvö ár á hefðar heimili, kom henni ekki til hugar að gera kröfur til neinna annarra en sjálfrar sín, heldur sætta sig við það, sem hún eða maður hennar gat ekki umflúið eða umbætt í bili. Fyrstu 10 árin voru þau Helga og Krist- mann í litlu stofunni i Lambhúsum, með 4 börn. Stofan var 2,93 x 2,62 metrar að stærð. Ætli nú kæmi ekki einhver til bæj- arstjórnarinnar og segði: „Er þetta for- svaranlegt". En Helga segir: „Sem betur fer, virðist börnunum ekki hafa orðið þetta að meini.“ I Reykjavík — þeim rausnarbæ. Um aldamótin síðustu var enn ekki hátt risið á Akranesi og ekki margra kosta völ, nema i sambandi við sjóinn. Og ekki batn- aði það, þegar umfangsmikill rekstur Thor Jensens drógst saman og hann flutti héðan alfarinn. Kristmann var alla tíð mjög óhneigður fyrir sjóinn, svo að hann hugsaði sér — rétt eftir aldamótin — að leita um atvinnu til Reykjavíkur, og Hér er mynd af frú Helgu og Krist- manni á gullbrúS- kaupsdegi þeirra. — Fyrir ofan þau er mynd af hinum samrýmdu dœtrum þeirra, sem bdSar eru dártar. akranes 137

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.