Akranes - 01.11.1949, Blaðsíða 25

Akranes - 01.11.1949, Blaðsíða 25
ANNÁLL AKPANESS Gjafir og greiðslur til blaðsins, sem það þakkar innilega: Pétur Guðmundsson kaupm. Rvik 100 kr.. frú Emelía Briem f. '48 og '49 50 kr., Gisli Finsen kaupm. Rvik 100 kr., Sveinsina Sigurðard. frú 25 kr., Bergur Björnsson próf. Stafholti 50 kr., Vigfús Jónsson trésmiðam. Eyrarbakka f. ’,|.8 og '49 100 kr., Jón Biamason heildsali Rvik f. 1949 100 kr., Lúðvik Þorgeirsson kaupm. umframgr. 50 kr., Skeggi Ásbjörnsson kennari Rvik 25 kr., Jón Eilifsson Hafnarfirði f. '48 og '49, 50 kr., Þor- leifur Jónsson framkvstj. Hafnarfirði umframgr. 40 kr., Ölafur Tryggvason verkfr. f. ’4gog '50, 50 kr., Óskar Einarsson læknir Rvik 100 kr., Ólafia Ólafsdóttir frú Rvík f. ,48 og '49, 50 kr., Frú Sigriður Jónsdóttir Isafirði 150 kr., Snæbjörn Bjarnason trésmiðam. Vestm. 50 kr., Ingólfur Flygenring kaupm. Hafnarfirði f. ’4g og '49 100 kr., Guðm. Guðmundsson skipstjóri Akureyri 100 kr., Arngr. Fr. Bjarnason kaupm. Isafirði 100 kr., Ármann Sigurðsson Dalvik f. '48 og '49, 50 kr., Guðbrandur Magnússon kennari Siglufirði 25 kr., Frú Steinunn Magnúsdóttir Flókagötu 14 Rvik 50 kr., Frú Helga Guðmundsd. Framnesvegi 1 Rvik 50 kr., Guðsteinn Einarsson framkvæmda- stjóri Grindavik f. 1949 25 kr. Hjónabönd: Gefin saman af sr. Jóni M. Guðjónssyni. 30. sept. Kristján Ásgeir Ásgeirsson sjóm. frá Hnifsdal og ungfrú Ólöf Lindal Hjartardóttir, Suðurgötu 80. 1. okt. Sigvaldi Egill Jónsson bifreiðastjóri, Kirkju- braut 21 og ungfrú Ósk Halldórsdóttir s. st. 22. okt. Gunnar Bjarnason bifvélavirki, Suður- götu 23 og ungfrú Ása Hjartardóttir s. st. 4. des. Halldór Einarsson iðnemi Bakka og ungfrú Steinjióra S. Þórisdóttir Reykholti. 10. des. Guðmundur Halldórsson smiður frá Bolungarvík, og ungfrú Anne Julie Petersen frá Álaborg. 25. des. Ríkharður Jónsson málaranemi, Reyni- stað og ungfrú Hallbera Guðný Leósdóttir, Sunnubraut 30. 31. des. Sigurður Árnason, gjaldkeri frá Siglu- firði og ungfrú Sigriður Sigurðardóttir frá Heið- arbraut 37. 31. des. Guðmundur Bjarnason, nemandi Minni- Borg og ungfrú Rósa Vilhjálmsdóttir frá Ármóti. Dánardægur 8. sept. Sigurbjörg Jónsdóttir, lengst af í Georgs- húsi hér, Móðir Njáls Þórðarsonar skipstjóra. Hún var í tugi ára hjá Jóhanni Björnssyni hreppstj. og konu hans Halldóru Sigurðardóttur, og eftir bað hjá Sigríði dóttur þeirra hjóna og manni hennar Lárusi Þjóðbjömssyni, og andaðist þar. Hún var ein af þessum óvenjulega trúu og trygg- lyndu vinnuhjúum, þar sem heimilisins gagn var henni allt. Sigurbjörg var fædd að Flekku- vik á Vatnsleysuströnd 4. febr. 1870. 9. sept. Sesselja Einarsdóttir í Ármóti, f. 21. júní 1891 á Húsatóftum í Garði. Hún var gift Gisla Sigurðssyni, og bjuggu i Bolungavík, þar til þau fluttu hingað á Akranes 1946. Verklegar framkvæmdir í bænum. Á þessu ári er mikið unnið að verklegum fram- kvæmdum í bænum. Mikið hefur áunnist við ker það, sem frá var gengið við hafnargarðs- endann. Einnig fyrir gagngerðar endurbætur á skjólgarðinum og dekkinu á efri hluta garðsins, sem um leið var hækkað verulega. Þá liefur gang- stéttagerðinni miðað mjög vel áfram, sem veldur stórfelldri útlitsbrej'tingu, um leið og þær hafa verulega þýðingu fyrir gangandi fólk. Nálgast nú óðum að ná megi til gangstétta endilangan bæ- inn. Barnaskólahúsinu miðar og vel áfram, og verður væntanlega tilbúið fyrir næsta kennsluár. Þá hefur og mikið áunnist með liinu feiknarlega lokræsi fyrir efri hluta bæjarins, sem gert var í sumar og hefur útrennsli niður í Kalmansvik Setning háskólans. Eigi aðeins heyrist það, heldur ber viða mikið á ýmis konar öfgum og ófögnuði í þjóðlifi voru. Vaxandi fráhvarfi frá fomum dyggðum og góðum SONAR-SONUR HULDU- PRESTSINS I GÖRÐUM Framhald af bls. 136. á samvinnu um heyöflun inn á Botnsdal, og mun ég aldrei gleyma þeim glaðværu dögum. Einnig vil ég geta Guðmundar Ágústssonar bónda í Botni, sem í 'fleiri ár lét mér í té slægjm', hestalán og margs konar hjálp við heyöflun þessa. Þá má ég minnast tengdabróður Sigurðar, Jóns Guðmundssonar, sem ég fékk húsnæði hjá, þar til ég gat flutt í eigið hús. Hann var lengi félagi okkar Sigurðar um hættu- sama og erfiða heyflutninga, þar sem við notuðum uppskipunarbáta, er vér létum vélbáta draga, — alla leið vestan af Dýra- firði og önundarfirði, en þar heyjuðum við á flæðiengjum, meðan við vorum að rækta túnblettina og koma upp húsum fyrir fólk og fé. Þá má ég og minnast á Guðmund Ibsen bónda í Bæ, er reyndist mér sannur vinur í viðskiptum, því að þar gekk fé mitt mest og á Suðurnesi í Staðar- landi. Má ég einmitt i þvi sambandi minn- ast sr. Þorvarðar og barna hans, einkum Jóns sáluga, er með mér átti margar hættu- samar fjallgöngur á Suðurnesi, til að ná fé okkar og annarra úr hengjum og harð- fenni í hlíðunum þar. Að lokrun vil ég geta örnólfs Jóhannessonar, 'föður Guð- rúnar, konu Sveins Guðmundssonar, kaup- félagsstjóra hér, og Sigríðar, konu Ólafs vélstjóra Jónssonar á Vesturg. 94. örnólf- ur býr nú í Kleppsholtinu í Reykjavík. Hann var löngum samstarfsmaður minn i siðum, hófsemi og hyggindum. Þessi hnygnunar- merki má rekja langt út i raðir þjóðarinnar á hina óliklegustu staði. Um aðhald mun nú óviða vera að ræða í þessum efnum, t. d. í skólum landsins. Mun ríkið — sem allt styrkir — leggja litla áherzlu á að- hald eða eftirlit. Þó mun enn hægt að nefna skóla, sem til f\rrirmyndar sé. Eigi mun þó há- skólinn vera i fremstu röð til fyrirmyndar um þessa hluti. Þó mun núverandi háskólarektor hafa sýnt óvenjulega lireinskilni, atorku og úrræði í starfsemi háskólans til að láta stúdentum skiljast, að þeim sé það ekki í sjálfsvald sett, hversu þeir eigi að haga námi, starfi og mótum, innan hinna akademisku veggja. Hvort þeir slæpist, eða hyggi á mikla sigra til drengskapar og dyggða. Alex- ander Jóhannesson próf. er óefað sá þeirra, sem talað hefur af mestri hreinskilni, sem með atorku og stjórnsemi hefur látið hinum ungu stúdent- um skiljast, að til háskólans eigi þeir öllu skólum fremur að sækja hjálp og uppörfun til að þrosk- ast að vizku og vexti. En ekki að sækja þangað sjálfræði til að verða enn viltari, en þegar þeir koma þangað, þaðan sem litlar eða engar kröfur eru gerðar i þessum efnum. Háskólinn var settur fyrsta vetrardag. Auk ]>ess, sem rektur flutti ágæta ræðu, flutti Finn- bogi R. Þorvaldsson prófessor ágætt erindi um þróun hafnarmálanna hér á landi. Háskólanum var mikill fengur að slíkum manni sem Finnbogi er, en að sama skapi var það hafnarmálunum ómet- anlegt tjón, að missa af starfskröftum hans, með- an verklegar framkvæmdir eru þar í örustum vexti. fjársóknum í aðra hreppa og ýmsar aðrar framkvæmdir hreppsnefndarinnar og var ætíð ötull og áreiðanlegur. Marga fleirí ætti ég að minnast á, en rimiið leyfir það því miður ekki. Þó get ég eigi skilið svo við þetta mál að eigi minnist ég prestanna að nokkru, séra Þorvarðar Brynjólfssonar og hans gest- risna og hjálpsama heimilis, sem í öllum efnum var sönn fyrirmynd um uppeldi barnanna og dugnað. Sama má segja um sr. Halldór Kolbeins og hans góða heimili, einkum hvað fátæka snerti, enda töldu sumir hann of alþýðlegan, þótt ég telji það einn bezta kost prestanna. Hvað viðkemur kvenþjóðinni á Suður- eyri, átti ég alls staðar vinum að fagna, því að þær tóku ekkert tillit til stjórnmála eða þess konar. Sjálfsagt hafa þær verið á mínu bandi eða ég á þeirra. Svo óska ég Súgfirðingum gæfu og gengis og bið þess, að niðjar þeirra haldi við byggðinni þar og öllum framkvæmd- um, sem feður þeirra og mæður hafa svo drengilega grundvallað. Og að þeir nemi ekki staðar, eða lialdi við, heldur auki og efli í samræmi við hóflegar kröfur tím- anna, með glöggum skilningi á þvi, sem hollast er í því gamla, sem forfeðurnir hafa áunnið, hvort sem er í andlegu eða efnalegu tilliti. Að þetta sé svo, ber ljós- ast vitni allt það, sem þeir hafa gert siðan ég fluttist þaðan. Ég þakka þehn öllum af alhug öll samskipti og góðar minning- ar og óska þeim blessunar í bráð og lengd“. AKRANES 145

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.