Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Qupperneq 17
TlMARIT VFl 1964
41
svið fyrir sig má telja rannsóknir á skipsförm-
um af bensíni og brennsluolíum fyrir olíufélög-
in, sem deildin hafði á hendi um allmörg ár, en
þær rannsóknir hafa nú flutzt til einkaaðila að
mestu.
II. Matvœli og fóðurefni.
Unnið hefur verið að efnagreiningu fyrir Mat-
vælaeftirlit ríkisins og borgarlækni.
Nýlega hefur aðstaða til rannsókna á þessu
sviði verið bætt til muna í Iðnaðardeild með því
að opnuð hefur verið ný matvælarannsóknastofa
þar sem lögð verður meiri stund á hagnýtar til-
raunir en áður. Ætlunin er að vinna að bættri
nýtingu matvæla, svo sem mjólkurafurða og
grænmetis, auk þess sem efnagreind verða sýnis-
horn eftir beiðni eins og áður.
Rannsóknir á skepnufóðri, svo sem heyi, mjöli
og fóðurblöndum hafa verið stundaðar á rann-
sóknastofunni frá upphafi. Er hér einkum um
að ræða efnagreiningar fyrir Búnaðardeild og
tilraunaráð landbúnaðarins, eins og áður segir.
Af helztu rannsóknarverkefnum, sem unnið
hefur verið að á þessu sviði, auk efnagreiningar
sýnishorna, má nefna:
1. Rannsóknir á skyrgerð og votheysgerð.
2. Rannsóknir á fituefnum. Ákvörðuð samsetn-
ing síldarlýsis og sauðafeiti.
3. Tilraunir um verkun súrheys með íblöndun-
arefnum (1957—60).
4. Tilraunir um að hindra spírun kartaflna með
kjarnageislum (1959—60).
5. Unnið er að tilraunum um hraðfrystingu
grænmetis og geymslu þess við lágt hitastig.
6. Ennfremur er unnið að ýmiss konar tilraun-
um með sýringu matvæla og niðursuðu.
Á sviði fóðurefna og matvæla má telja tvo
þætti starfseminnar, sem flutzt hafa til annarra
stofnana.
1. Rannsóknir á útflutningssýnishomum af
fiskimjöli, síldarmjöli og lýsi, sem nú fara
fram hjá Rannsóknastofu Fiskifélags Is-
lands.
2. Efnagreiningar á mjólk vegna mjólkureftir-
lits, sem stundaðar voru á gerlanrannsókna-
stofu Iðnaðardeildar, en gerlarannsóknastof-
an var sameinuð Rannsóknastofu Fiskifélags-
ins í ársbyrjun 1961.
III. Byggingarefni.
Rannsóknir Trausta Ólafssonar á einangrun-
argildi byggingarefna voru meðal fyrstu sjálf-
stæðu rannsóknanna, sem gerðar voru í Iðnað-
ardeild og hafa byggingarefnarannsóknir og
prófanir verið allmikill þáttur í starfi deildar-
innar mörg undanfarin ár.
Unnið hefur verið að styrkleikaprófunum
steyputeninga, rannsókn á steypuefni (sandi og
möl) og sementi, malbiki, asfalti, ofaníburði í
vegi, einangrunarefnum og plastefnum. Unnið er
að þessum rannsóknum fyrir ýmsa aðila, svo sem
Vegagerð ríkisins, Húsameistara Reykjavíkur,
Hitaveitu Reykjavíkur og ýmis byggingarfélög
og verktakafélög. Leit að steypuefni, þ. e. möl
og sandi) og ofaníburði í vegi, hefur verið
gerð kerfisbundið í nokkur undanfarandi ár og er
sú rannsókn kostuð af Vegagerð ríkisins og
Ræktunarsjóði sameiginlega.
Starfsemin hefur takmarkazt að mestu við
efnisprófanir og styrkleikaprófanir seinustu ár-
in vegna skorts á sérmenntuðum mönnum hjá
deildinni, en ætlunin er að byrjað verði aftur á
vísindalegum tilraunum til endurbóta í bygging-
ariðnaði eins fljótt og unnt er. Ráðgert er að
byggingarefnarannsóknir verði skildar frá Iðn-
aðardeild á næstunni og þær gerðar af sérstakri
stofnun.
IV. Jarðfræði — jarðefnafrœði — jarðtækni.
Allt frá 1945, að fyrst var ráðinn jarðfræð-
ingur að deildinni, hafa jarðfræðirannsóknir
verið mikill þáttur í starfi Iðnaðardeildar.
Unnið hefur verið að jarðfræðirannsóknum í
sambandi við vatnsvirkjanir og undirbúning
virkjana. Á síðari árum hefur því verið unnið
mjög mikið fyrir Raforkumálaskrifstofuna vegna
undirbúnings virkjana á ýmsum stöðum. Einnig
hafa verið stundaðar jarðfræðirannsóknir á veg-
um deildarinnar sjálfrar.
Jarðefnafræði og jarðeðlisfræði eru auðvitað í
nánum tengslum við jarðfræðina sjálfa og er um
það að ræða, að efnafræði og eðlisfræði er beitt
á fullkomnari hátt en áður að lausn jarðfræði-
legra vandamála með notkun fullkomnustu rann-
sóknartækja.
Til þessa sviðs má telja rannsóknir á jarð-
hitasvæðum, sem gerðar eru á deildinni í sam-
vinnu við jarðhitadeild Raforkumálaskrifstof-
unnar.
Nokkur helztu verkefni á sviði jarðfræði og
jarðefnafræði, sem unnið hefur verið að á deild-
inni, má nefna þessi:
1. Jarðfræðirannsóknir vegna leitar að hagnýt-
um jarðefnum. Rannsóknarefni hafa verið
einkum þessi: Biksteinn, frauðgrýti á Snæ-
fellsnesi og víðar, kísilgúr, málmar, surtar-
brandur og mór.
2. Jarðfræðirannsóknir vegna mannvirkjagerð-