Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Síða 18

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1964, Síða 18
42 TlMARIT VFl 1964 ar, samkvæmt beiðni eða í samvinnu við aðra aðila, þ. e. rannsóknir vegna vatnsvirkjana, hafnargerðar, vegagerðar o. s. frv. 3. Jarðefnafræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar í samvinnu við jarðhitadeild Raforku- málaskrifstofunnar, svo sem rannsóknir á heitu vatni og hveralofti, bæði í náttúrlegum uppsprettum og í sambandi við boranir eftir heitu vatni. Ennfremur bergfræðilegar rann- sóknir á borkjömum, t. d. úr 2200 metra djúpri borholu í Reykjavík. Loks má nefna, að gerðar hafa verið efnagreiningar á jökul- ám undan Mýrdalsjökli með það fyrir augum að rekja breytingar, sem kynnu að verða á efnainnihaldi jökulánna á undan Kötlugosi. 4. Jarðfræðirannsóknir í sambandi við eldgos, þ. e. Heklugos 1947, Öskjugos 1961, gos við Vestmannaeyjar 1963—64. V. Vatnsrannsóknir. Mjög mikið hefur verið unnið að efnagrein- ingu á vatni, m. a. var gerð skipuleg rannsókn á neyzluvatni í öllum kaupstöðum og kauptún- um á landinu á árunum 1954—56. Mikill fjöldi efnagreininga hefur verið gerður síðustu árin á heitum uppsprettum og vatni úr borholum fyrir Raforkumálaskrifstofuna og má segja, að það tilheyri jarðhitarannsóknum. Rannsóknir á vatni verða nú stöðugt mikilsverðari í sambandi við hvers konar iðnað, vatnsveitur, fiskirækt o. fl., og má búast við mikilli aukningu á þessu sviði rannsókna. VI. Framleiöslutilraunir og iðnaöarrannsóknir. Á síðustu tveimur árum hafa verið gerðar til- raunir með framleiðslu á þilplötum og einangr- unarplötum úr hálmi og tréspónum. Hafa þær til- raunir borið góðan árangur og sýnt að fram- leiða má slíkar plötur úr hráefni, er til fellur hér innan lands, og að líkindum ódýrar en sams- konar plötur innfluttar. Ennþá hefur of lítið verið um það, að Iðnað- ardeild taki að sér stærri rannsóknarefni fyrir einstakar verksmiðjur eða iðnfyrirtæki. Iðnrek- endur hafa ekki leitað eftir slíkum rannsóknum og má enda segja, að aðstaða sé enn ófullkomin til þeirra á deildinni, einkum að því er varðar tæknilegar tilraunir. Það hlýtur þó að vera næsta verkefnið að koma slíkum rannsóknum á. Hin ýmsu iðnfyrirtæki hafa að líkindum mörg vandamál, sem eðlilegt væri að Iðnaðardeild tæki að sér að leysa. Iðnaður sem atvinnugrein er yngri en landbún- aður og fiskveiðar. Framleiðsla iðnaðarvarnings Ný röntgentæki til efnagreiningar á borholukjörnum. fer fram í verksmiðjum og er oft fólgin í full- vinnslu afurða sjávarútvegs og landbúnaðar. Verksmiðjuiðnaður er vaxinn upp úr heimilis- iðnaði og handverki og eru oft óglögg skil milli handverks og iðnaðar. Smá fyrirtæki eru oftast undir stjórn eins manns, sem hefur auðveldlega yfirsýn yfir all- an rekstur fyrirtækisins. í stórum iðnfyrirtækj- um verður hins vegar að vera verkaskipting og skipulag, bæði um sjálfa framleiðsluna og stjórn fyrirtækisins. Til þess að gera sér grein fyrir því, hvað Iðn- aðardeild eða Rannsóknastofnun iðnaðarins gæti gert fyrir íslenzkan iðnað, er rétt að athuga hverjar tegundir iðnaðar eru stundaðar hér á landi. Eftirfarandi yfirlit er unnið upp úr Iðnaðar- skýrslum Hagstofunnar (1950, 1953 og 1960). Matvœlaiönaöur. 1. Kjötiðnaður. Kjötfrysting og geymsla, söltun, reyklng, niðursuða, pylsugerð, bjúgnagerð.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.