Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. MAl2004 Fréttir DV íhugar að gelda boxer . „Mér líður hræðilega út af þessu máli," segir Jó- hanna Björg Þorsteinsdóttir en boxer-hundur hennar drap lítinn pomeranian hund á Geirsnefi fyrir nokkrum dögum. Eigandi pomeranian hundsins hef- ur íhugað einkamál á hend- ur Jóhönnu. „Ég vona að það komi ekki til þess," segir Jóhanna og bætir við að í framtíðinni ætli hún að halda hundinum frá fjöl- mennum hundasvæðum og ja&ivel kaupa ól á hann. Svo sé hún að íhuga að gelda hann en það ku róa hunda. Skúr brann Slökkvilið var kallað út um þrjúleytið í gærdag vegna elds í skúr við Tungusel 3. Samkvæmt upplýsingum frá slökkvilið- inu mun hafa verið um að ræða gamla byggingu á fyrrverandi gæsluvelli borg- arinnar sem ekld var í notk- un. Talið er víst að um íkveikju hafi verið að ræða. Greiðíega gekk að ráða nið- urlögum eldsins en skúrinn mun vera ónýtur. Ræningi fékk vægan dóm Sigurður Sveinsson, 18 ára Hafnfirðingur, hefur verið dæmdur í 9 mánaða fangelsi fyrir bankarán í útibúi Sparisjóðs Hafnar- fjarðar, þar sem hann hafði 344 þúsund krónur upp úr krafsinu eftir að hafa ógnað gjaldkera með hnífi, með lambhúshettu á höfði, og fýrir að hafa haft í fórum sínum rúm 15 grömm af amfetamíni. Fullnustu 6 mánaða af dómnum er frestað í ljósi aldurs og þess að Sigurður hefur iðrast gjörða sinna, farið í meðferð, stundar reglulega vinnu og hefur endurgreitt stærsta hlutarm af ránsfengnum. Undanfarna daga hefur lögreglan í Reykjavík lýst eftir tveim stúlkum. Þær heita Kristvina Linda Magneudóttir og Linda Anh Tuy Mánadóttir. Stúlkurnar vilja koma þeim skilaboðum á framfæri að þær hafi það fínt, séu ekki týndar, heldur hafi flúið að heiman. EmmaTrinhThy Nguyen, móðir Lindu, vill fá hana heim og er henni ekki reið. „Ég heyrði síðast í henni fyrir um viku síðan,“ segir Emma Trinh Thi Nguyen, móðir Lindu Mánadóttur, einnar af stúlkunum sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í fyrradag. í tilkynningu lögregl- unnar var lýst eftir tveimur ungum stúlkum, Kristvinu Lind Magneudóttur og Lindu Mánadóttur. í gær hafði elckert spurst til þeirra og bað lögreglan alla þá sem ein- hverjar upplýsingar hefðu um ferðir stúllmanna að hafa samband. DV hitti stúlkurnar í miðbæ Reykjavík- ur. Þær segjast ekki vera týndar - þær hafi einfaldlega strokið að heiman. „Ég talaði við mömmu í gær - hún vildi fá mig heim,“ segir Krist- vina Lind, önnur stúUcnanna sem lögreglan hefur lýst eftir en hún er 16 ára gömul. „Ég vildi samt ekki skilja Lindu eftir eina þannig að ég ákvað að fara ekki." Vinkona henn- ar, Iinda, er 14 ára. Erfitt að vera í felum í Reykja- vík Móðir Lindu er áhyggjufull vegna hvarfs dótturinnar. Hún segist hafa séð hana síðast fýrir um viku síðan. Emma kom til landsins árið 1991. Er flóttamaður frá Víetnam. „Linda er virkilega góð stelpa og ég er viss um að hún muni skÚa sér heim," segir Emma. „Hún hringdi líka í mig í gær og lét mig vita að henni liði nokkuð vel." Þrátt fyrir að dóttir hennar hafi strokið að heiman segist Emma ekki vera reið út í hana. „Nei, ég mun Kristvina Lind Magneudóttir og Linda Mánadóttir Segjast ekki týndar heldur hafa strokið að heiman. ekki skamma hana þegar hún skilar sér heim," segir Emma. „Ég elska hana og vona að hún sé heil á húfi." Iinda hefur ffam að þessu verið nemi í Seljaskóla en fyrir skömmu var henni vísað úr skólanum. Áður en hún strauk átti hún að fara í með- ferð og hafði móðir hennar vonast til að hún færi. Kristvina er sjálf ný- komin úr meðferð. Fór á Stuðla í janúar. Hún segist hafa verið á ágætu róli áður en hún var send á Stuðla. „Þar lcynntist ég nýjum félög- um sem kenndu mér hvemig maður lifir af,“ segir hún. Kristvina og Linda eru báðar sammála um að það sé erfitt að fara huldu höfði í Reykjavík. „Það þekkja allir alla," segja þær. Aðspurðar um hvernig þær lifi af segja þær að strákarnir reddi því. Iánda segist vera nýbyrjuð með strák sem er rúmlega tvítugur. Hann gefi þeim peninga, mat og húsnæði. Lögreglan leitar „Það er ekki auðvelt að strjúka," segir Kristvina. „Ég er samt eiginlega orðin vön þessu - hef gert þetta nokkrum sinnum áður." Iinda tekur í sama streng en segist þó sakna móður sinnar. Lögreglan í Reykjavík er ennþá að leita að stúlkunum. Árni Þór Sig- mundsson varðstjóri segir að lögregl- an geri það sem þeir geti til að hafa upp á þeim. Þetta sé alvarlegt mál og allir sem hafi upplýsingar um hugs- anlegan dvalarstað stúlknanna eða viti um ferðir þeirra síðustu daga em beðnir um að hafa samband í sima 569 9012. Móðir Kristvinu vildi ekki tjá sig um málið en lögmaður hennar segir að mál stúlkunnar sé hjá barna- verndarnefnd. „Linda er virkilega góð stelpa og ég er viss um að hún muni skila sér heim." Kristvina og Linda vilja samt koma skilaboðum áleiðis til mæðra sinna. „Mamma: ekki hafa áhyggjur - mér þykir ógeðslega vænt um þig," segir Linda áður en stúlkurnar rölta af stað og halda áfram í sjálfskipaðri útlegð í miðbæ Reykjavíkur. simon@dv.is Stúlkurnar ekki týndar heldur ílúlu að heiman Sippuband slær út svipu Austfirðingar kunna manna best að ala upp börn. Það er löngu komið á daginn. Á Neskaupstað komast nemendur ekki upp með neinn moðreyk því kennararnir kunna svo sannarlega að grípa strax í taumana þegar þau fara út fyrir ramma agans. Sundkennarar vita sem er að ekki tekst að kenna börnunum sundtökin ef þau eru spriklandi skipulagslaust um alla laug. Þegar um er að ræða útilaug er því nærtækt að kippa þeim upp á bakkann og kæla niður um stund. Þetta mun vera sérstaklega Svarthöfði áhrifaríkt í frosti. Sippubönd hafa fram að þessu aðallega nýst til þess að börn geti hoppað eftir ákveðinni formúlu án þess að flækjast í bandinu. Nú hafa skólayfirvöld eystra uppgötvað að sippubandið má nota bæði í leik og starfi. Það þykir vera tilvalið til að aga börnin sem ekki stunda lang- stökk, hástökk eða fimleika með réttum og skipulögðum hætti. Svart- höfði dáist að því hugmyndaflugi Hvernig hefur þú það „Ég hefþað bara gott/'segir Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona, sem fer með aðalhlutverk I Edith Piafsem verður frumsýnt i Þjóðleikhúsinu í kvöld.„Sýningin leggst mjög vel í mig. Þetta er náttúrlega stórt hlutverk en þetta hefur allt geng- ið vel enda hópurinn alveg frábær. Tónlistin er alveg yndisleg og þetta verður mikiö leikhús þar sem tilfinningar og gleði ráða ferðinni. Ég hlakka mikið til og hefrólegheitin og góða skapið að leiðarljósi fram að frumsýningu." leikfimikennara á Austfjörð- um að nota sippubönd barna til að binda þau í leikfimis- tímum. Þar hefur sippu- bandið komið í stað svip- unnar. Þessi ögunaraðferð er næstum því jafn öflug og sú sem Hafnfirðingar þró- uðu á leikskólastigi þegar þeir bundu óþekk börn í stóla og teipuðu fyrir munna þeirra. Skilnings- leysi íslensku þjóðarinnar varð til þess að Hafnfirð- ingar urðu að hætta að teipa börnin. Og nú eru sligandi agavandamál í Hafnarfirði þar sem bömin koma illa öguð á grunnskóla- stigið. Vonandi verður austfirska sippubandaleiðin samþykkt og sett inn í grunnskólalög. Þá munu nem- endur og kennarar geta sameinast um sippuböndin og næsta kynslóð verður svo öguð að enginn 'skortur verður á hermönnum í væntanlegar sérsveitir íslendinga. Það má merkja nýja dögun í austri. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.