Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir Um 700 starfsmenn eru við Kárahnjúka en sveitarfélög fyrir austan fá ekkert útsvar af 500 starfsmönnum og verða af verulegum Qármunum. Jónas Þór Jóhannesson, sveitarstjóri Norður-Héraðs, segir óþolandi að skatttekjur skili sér ekki frá stærstu framkvæmd íslandssögunnar. Úlsvar Kárahnjúka- maana í vanskilum Starfsmenn Impregilo vlð Kárhnjúka Ekkert iitsvcir greitt i sveitarsjóð afSOO starfsmönnum Engar útsvarstekjur skila sér til sveitarfélaga á Austurlandi vegna meirihluta þeirra starfsmanna sem vinna við Kárahnjúkavirkj- un. Sveitarstjóri Norður-Héraðs telur að útsvar af 500 starfs- mönnum skili sér ekki og krefst hann þess að rfldsvaldið beiti sér fyrir því að þessar skatttekjur skili sér. Jónas Þór Jóhannsson, sveitar- stjóri Norður-Héraðs er ómyrkur í máli í viðtali við Austurgluggann sem kemur út í dag og telur „óþol- andi að verið sé að vinna að stærstu fram- kvæmd íslands- sögunnar og að skatttekjur af þeirri vinnu skili sér ekki eins og lög gera ráð fyr- ir.“ Bendir Jónas á að um 700 starfsmenn séu við Kárahnjúka, um 200 séu frá löndum utan Jónas Þór Jóhanns- son sveitarstjóri Norður-Héraðs - Óþolandi að útsvar skilisérekki EES svæðisins en 500 frá löndum innan þess. Þessir 200 hafa verið skráðir í þjóðskrá og er greitt útsvar í sveitarsjóði af þeim starfsmönnum. Aftur á móti gangi ekkert að fá útsvar af hinum 500, þeir séu ekki skráðir í þjóðskrá og þó að ár sé liðið síðan framkvæmdir hófust gangi ekkert að fá leiðréttingu á þessum málum. Miðað við viðmiðunartölur um lág- markslaun hafa sveitarfélög Jónasar orðið af tugum milljóna króna vegna þessa. Sveitarstjórinn bendir á að það gildi fastmótaðar starfsreglur um er- lent vinnuafl í öðrum starfsgreinum og vísar til sjávarútvegsins. Þar gerist það ekki að erlent starfsfólk geti haf- ið störf án þess að fá tilskilin leyfl og skráningu í þjóðskrá. „Það sem ger- ist þarna á ekki að geta gerst og gerist ekki annars staðar, að m * menn geti hafið störf án þess g’ að búið sé að tilkynna og skrá þá eins og lög gera ráð fyrir,“ segir Jónas í viðtalinu. Einu svörin sem hann fái frá ríkis- valdinu séu að skrán- ingarmál hafi verið í ólestri og ekki hafi tekist að koma málum í réttan farveg. Þórarinn V. Þór- arinsson lög- maður Impreglio Deiltum túlkun tvísköttunarsamn- ings Geir ber ábyrgð Eftir því sem sveitarfélögin eystra komast næst standa yfir deilur á milli verktakafyrirtækisins Impregilo og skattayfirvalda um málið og á meðan sé allt strand. Telur Jónas Þór að Geir Haarde, íjármálaráðherra hljóti að axla ábyrgð í málinu. ,,[Ég] reikna með því að fjármálaráðherra beri þama ábyrgðina. Að minnsta kosti hvað varðar hina endanlegu pólitísku ábyrgð," segir Jónas. Hann undrast einnig þögn verkalýðshreyfingarinn- ar í þessu máli og hefur Austurglugg- inn eftir honum að hann hræðist mjög það fordæmi sem gefið sé með þessu. Þórarinn V. Þórarinsson, lögmað- ur Impregilo, segir í viðtali við „Gluggann“ að ástæðan fyrir þessum skilaskoiti á útsvari sé defia skattayfirvalda við portúgölsku starfsmannaleig- urnar Nett og Select. Deilt sé um það hvort greiða eigi skatta hér á landi fyrstu sex mánuðina eftir að starfsmennirnir koma til landsins. Tekist sé á um túlkun á tví- sköttunarsamn- ingi á milli ís- lands og Portú- gals en málið sé til úrlausnar hjá yfir- skattanefnd. Veiðar á ref og mink Minkurinn er Heildarkosmaður ríkis og sveitar- félaga við veiðar á ref og mink frá 1995 til 2004 var um 765 milljónir króna, eða 85 milljónir árlega að meðaltali, og skiptist þannig að til refaveiða fóru 460 milljónir og til veiða á mink rúmlega 300 milljónir. Kosmaðurinn hefur vaxið árlega og var 102 milljónir á síðasta ári. Þetta kemur fram í svari Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra við fyrirspurn frá Gunnari I. Birgis- syni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Gunnar spurði einnig um áætlaða stofnstærð minka- og refastoíhana óþekkt stærð en þar lenti ráðherra í vandræðum. Svörin voru sæmilega greið varðandi áætlaða stofristærð refsms; stofninn hefúr vaxið árlega úr 3.000 árið 1995 í 7.600 árið 2001 eða um 153% og gæti samkvæmt því nú verið kominn í ná- lægt 10 þúsund. Hins vegar kemur fram í svari Si- vjar að engar upplýsingar liggi fyrir um stofhstærð minksins. Ráðherra vimar þó í nýlegt álit nefndar, sem giskaði á að stofninn sé allt að 35.000 dýr að hausti en „jafiiframt er bent á að nefndar hafa verið hærri tölur." „Refurinn hefur fjölgað sér gífur- Minkur Minnst 35 þúsund minkar eru utan búra lega en h'tið er vitað um minkinn. Ég giska á að hann hafi líka fjölgað sér mikið því það vantar fjármagn í að halda úti veiðimönnum," segir Gunnar um málið. Hann segir að það þurfi að koma til átaks gegn vargn- um. „Sveitarfélögin hafa aukið sinn hlut en ríkið dregist aftur úr og þaðan verður því átakið að korna." fridrik@dv.is Dýrlegur [amanleikur frá Georgíu m m ,rs M j : • > li '■ A , s „Einfaldlega Vto stórbrotið" Tlic Gu.mli.m Þrettándakvöld Shakespeare í frumlegum flutningi Rustaveli-leikhússins Þjóðleikhúsið 14. og 15. maf Marc-André Hamelin flytur m.a. verk eftir Franz Liszt Háskólabíó 15. og 16. maí Guðný og Árstíðirnar Konsertmeistari í 30 ár! Guðný Guðmundsdóttir leikur Arstíðirnar eftir Vivaldi með nemendum sínum ____________íslenska óperan 18. maí______ Olga Borodina með Sinfóníuhljómsveit íslands syngur aríur úr Carmen og Samson og Delíla Háskólabíó 19. og 22. maf „Tvímælalaust fegursta söngrödd samtímans“ The New York Times Stórtónleikar rússnesku dívunnar Miðasalan opin kl. 10-18 Bankastræti 2, s. 552 8588 og á www.artfest.is Heitt á könnunni og ítarleg dagskrá liggur frammi Listahátíð í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.