Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2004, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 6. MAl2004 Sport DV Afturá sjúkrahús Diego Maradona er kominn aftur inn á spítaia. Það vekur vissulega athygli því aðeins eru 12 dagar síðan hann útskrifaði sjálfan sig af einum slíkum eftir að hafa lent á gjör- gæslu með hjarta- og lungnavandræði. Mara- dona átti í vandræðum með andardrátt er hann kom á spítalann og virðist h'tið hafa braggast frá því hann fór út en hann var ekki að hvíla sig mikið heldur fór hann beint í golf '** um leið og hann losnaði af spítalanum. Slegist um Bernabeu Man. Utd, Arsenal og Chelsea berjast þessa dagana um spænska ungstimið Gerard Pique Bernabeu. Þessi 17 ára vamarmaður er á mála hjá Barcelona en þeir em taldir vilja selja strákinn sem þykír einn efnilegasti varnar- maður sem hefur komið fram lengi. Bemabeu er bamabam fyrrum varaforseta Barcelona, Amador Bemabeu. Ronaldinho til sölu? Svo gæti farið að Brasilíumaðurinn, Ronald- inho, verði seldur frá Barcelona í sumar - ári eftir að hann gekk í raðir félags- ins. Það var hinn málglaði varaforseti félagsins, Sandro Rosell, sem greindi frá þessu í gær. „Við viljum halda manninum en ef það kemur tilboð upp á 60 milljónir punda þá verða menn að íhuga málið mjög alvarlega," sagði Rosell. Keown til Pompey? Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, er æstur í að gera samning við hinn 37 ára gamla varnarmann, Martin Ke- own, en samningur hans við Arsenal rennur út í sumar. „Ég myndi ekki hika við að semja við Ke- ovm og gerði það á morgun ef ég gæti. Hann er frábær atvinnu- maður,“ sagði Re-knapp. Keown fær ekki nýjan samning hjá Arsenal. Það var mikil spenna i Vestmannaeyjum á þriðjudagskvöld þegar fyrsta viðureign ÍBV og Vals um íslandsmeistaratitilinn fór fram. Margir áttu von á öruggum sigri ÍBV en því fór víðsfjarri því leikurinn var æsispennandi allt til enda. IBV marði sigur á Val eftir framlengdan leik Valsstúlkur komu flestum öðrum en sjálfum sér á óvart í Eyjum í gærkvöld þegar þær léku fyrsta leik sinn gegn heimastúlkum í úrslitum íslandsmótsins. Flestir höfðu tippað á öruggan sigur ÍBV en það voru gestirnir sem voru sterkari lengst af og hefðu með smá heppni, getað landað dýrmætasta sigri liðsins í vetur. En Eyjaseiglan er dýrmæt í ' leikjum sem þessum og það var fyrirliði ÍBV, Elísa Sigurðardóttir, sem bæði tryggði ÍBV framlengingu og innsiglaði svo sigurinn undir lokin. Leikurinn fór fjörlega af stað og Eyjastúlkur voru betri. En það var aðeins þannig fyrstu mínúturnar því eftir það voru það gestimir sem vom betri og leiddu lengst af. Varnar- leikur þeirra var gríðarlega öflugur, með Hafrúnu Kristjánsdóttur sem klippti Önnu Yakovu nánast úr leik. En þrátt fyrir að Valur væri sterkari aðilinn framan af þá náðu þær aldrei að hrista Eyjastúlkur af sér og í síðari hálfleik náðu heimastúlkur góðum leikkafla þar sem þær breyttu stöðunni úr 16-19 í 21-19. Þar með reiknuðu flestir með að björninn væri unninn en ekki leikmenn Vals. Þær héldu einfaldlega áfram að berjast og höfðu leikinn í hendi sér undir lokin. Það kom hins vegar í hlut Eh'su Sigurðardóttur að tryggja ÍBV framlengingu þegar aðeins tólf sekúndur voru eftir og það gerði hún svellköld með því að vippa yfir landsliðsmarkvörðinn Berglindi Hansdóttur. Spenna í framlengingu í framlengingunni voru taugar- nar þandar til hins ýtrasta og mistökin urðu mörg. Það var svo ekki fyrr en undir lok síðari hálfleiks að dró til tíðinda. Valsstúlkur fengu tækifæri í stöðunni 30-30 til að skora en í stað þess var það Alla Gokorian sem kom ÍBV yfír úr vítakasti þegar skammt var til leiksloka. Valsstúlkur fengu tækifæri á að jafna en þær náðu ekki að skjóta á markið, misstu boltann í hendumar á Eyjastúlkum sem þökkuðu fyrir sig og tryggðu sér tveggja marka sigur í hreint mögnuðum leik. Það verður ekki annað sagt en að ef þetta er það sem koma skal í úrslitum kvennaboltans þá er von á góðu. Valsstúikur báru enga virðingu fyrir stórliði ÍBV en það hefði verið gríðarlega sterkt fyrir þær að sigra í Eyjum í gærkvöld og vinna þannig upp heimaleikjaréttinn. En það var engan bilbug að finna á Guðríði Guðjónsdóttur, þjálfara Vals í leikslok. Köstuðum leiknum frá okkur „Við töpuðum þessum leik, mér fannst þær ekki vinna þetta heldur köstuðum við þessu frá okkur undir lokin. Við vorum að spila frábæra vöm framan af en svo missum við aðeins einbeitingu í seinni hálfleik. Við förum aðeins fram úr okkur og ætlum að rjúka í sókn án þess að klára varnarleikinn. í framhaldi kom upp einstaklingsframtök en við erum ekki með þannig lið að svoleiðis gangi upp. Við þurfum að vinna þetta á íiðsheildinni, allan leikinn og það ætlum við að gera á fimmtudaginn.“ Engin þreyta Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, stýrir nú ÍBV í síðustu leikjum sfnum þar sem hann er á leið til Þýskalands næsta vetur. Hann sagði að leikurinn hefði verið leikur margra ÍBV-VALUR 32-30 „Það verður ekki annað sagt en að efþetta er það sem koma skal í úrslitum kvennaboltans þá er von á góðu." Sterk að venju Guðbjörg Guðmarmsdóttir átti fínan ieik með IBV á þriðjudag og skoraði fjögur mörk. mistaka. „Það eru allir að tala um hversu öflugar varnir voru í þessum leik en mér fannst þetta frekar vera of mörg mistök. Við vorum að senda í lappirnar á okkur, skutum í stöng og þetta er bara eitthvað sem einkennir stundum svona leiki. Við fórum í einstaklingsvinnu í leiknum eftir ágæta byrjun, boltinn náði aldrei að fljóta í sókninni og þess vegna lentum við í vandræðum. Við þurfum að laga hjá okkur Gangur leiksins: 1-0,4-5,8-8, (10-121,11-12, 16-19,21-19, 24-22, 25-26, 26-26! 26-27, 27-28, (28-29), 29-29, 30-30, 32-30. Ibv Mörk (skot): Alla Gokorian 9/3 (16/3), Birgit Engl 8 (9), Sylvia Strass 5 (7), Guðbjörg Guðmannsdóttir 4 (7), Elísa Sigurðardóttir 3 (3), Anna Yakova 3 (13/1). Varin skot: Julia Gantimorova 20/1 (50/5) 40% Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Guð- björg 3, Alla 2, Birgit 1). Vítanýting: 3 af 4 vítum (75%). Fiskuð vfti: Alla 2, Birgit, Sylvia. Brottvlsanir: 2 mínútur. VALUR: Mörk (skot): Árný ísberg 8 (9), Sig- uriaug Rúnarsdóttir 6(13/1), Arna Grímsdóttir 4 (5), Elfa Björk Hregg- viðsdóttir 4 (6), 3 (5), Ágústa Edda Björnsdóttir 2/1 (6/2), Díana Guðjónsdóttir 1/1 (2/1), Anna María Guðmundsdóttir 1 (1), Gerður Beta Jóhannsdóttir 1 (10). Varin skot: Berglind fris Hansdóttir 18/1 (50/4)36%. Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Sigur- laug 2, Arna 2, Árný, Elfa, Anna \ M). Vítanýting: 2 af 4 vítum (50%). Fiskuð víti: Ágústa, Gerður, Árný, Sigurlaug, Hafrún. Brottvísanir: 10 mínútur. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (4) Gaeði leiks: 5 Áhorfendur: 270 Best á vellinum: Birgit Engl ÍBV sóknarleikinn fyrir fimmtudaginn," sagði Aðalsteinn en hann vill ekki meina að ÍBV-liðið sé orðið þreytt. „Allt tal um þreytu orsakar þreytu. Við erum ekkert þreytt, heldur erum við rétt að byrja og við ætium okkur að halda áfram. Það er enginn þreyttur í svona leikjum." jg> Kristinn Friðriksson tekur við Grindavík Ograndi verkefni Kristinn Friðriksson, sem þjálfað hefur Tindastól á Sauðárkróki undanfarin fimm ár, skrifaði í fyrradag undir samning um að þjálfa Uð Grindavíkur í Intersport-deildinni í körfuknattleik næstu þrjú árin. Kristinn, sem tekur við af Friðriki Inga Rúnarssyni, sagði í samtali við DV Sport í gær að hann hefði ekki átt von á því að fara að þjálfa í Grindavík enda hefðu hlutirnir gerst hratt á síðustu dögum. „Grindavík er mjög spennandi félag, með mikinn metnað og gott vinnuumhverfi og ég tel að ég sé tilbúinn til að takast á við það verkefni að stýra liði sem ætlar sér ekkert nema titla. „Þetta er ögrandi verkefni og hluti af áskoruninni að fara til liðs sem ætlar sér að berjast um titla. Við viljum vinna í það minnsta einn titil á ári og sættum okkur ekki við minna,“ sagði Kristinn sem ætlar sér að spila með Grindavíkurliðinu á næsta tímabili ef skrokkurinn leyfir. „Vonandi hef ég ekki sagt mitt síðasta orð sem leikmaður en það verður bara að koma í ljós þegar nær dregur tímabihnu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.