Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 Fréttir DV Anette Cummings, 25 ára sænsk stúlka, hefur orðið fyrir áreiti starfsmanna á KeflavíkurfLugvelli ellefu sinnum þegar hún hefur komið hingað til lands. Á sunnudaginn var hún sökuð um að bera á sér fíkniefni og sagt að hypja sig heim ef henni geðjaðist ekki að aðferðum tollvarða. Hún og íslenskur kærasti hennar segja að rasismi sé landlægur við landamærin. Irakarfá Saddam Saddam Hussein, fyrr- verandi harðstjóri í írak, og æðstu embættismenn verða framseldir til íraka áður en bráðabirgðastjórn verður mynduð í landinu í lok júní. Um eitt hundrað embættismenn eru nú í haldi hernámsliðsins. Sal- em Chalabi, yfirmaður stríðsglæpastólsins vegna íraks, staðfesti þetta í gær og sagði réttarhöld yfir mönnunum hefjast í byrj- un næsta árs. Stríðsglæpa- dómstóllinn hefur þegar tilnefnt dómara og sak- sóknara. Ákærur hafa þó ekki verið lagðar fram og ekki er heldur víst að Saddam verði meðal þeirra fyrstu sem leiddir verða fýrir dómara. Hvergi meiri viðskiptahalli Efnahags- og framfara- stofnunin (OECD) spáir því að hagvöxtur hér á landi verði 3,8% í ár og 4,9% á næsta ári, en stofnunin birti uppfærða spá í gærmorgun. OECD segir að umtalsverður halli sé orðinn á viðskiptajöfn- uði en hækkun gengis krónunnar ásamt framleiðnivexti hafi haldið verðbólgu lágri. Spáir stofnunin því að viðskipta- hallinn fari upp í 8,7% af landsframleiðslu á næsta ári og að verðbólgan verði þá 3,5% eða um prósentu- stigi yfir verðbólgumark- miði Seðlabankans. í engu öðru aðildarríki stofnunar- innar mun viðskiptahallinn verða meiri á því ári. Þingmenn í boðsferð? Oddur Ástráðsson formaður Ungra vinstri grænna „Ég bauðst til að setja handfarangur minn í gegnumlýsingu og ekkert athugavert fannst. Engu að síður kom tollvörður aðvíf- andi og skipaði mér að koma í bakherbergi. Þegar ég spurði hvers vegna, sagði hann mér að koma strax. Þar var öskrað á mig,“ segir Anette Cummings, 25 ára sænsk stúlka, sem hefur verið búsett hér á landi í rúmt ár. Anette starfaði áður sem bókari á alþjóðaflugvellinum í Stokkhólmi og þekkir verklag þar. Þrátt fyrir að hafa aldrei verið stöðvuð á erlendum flugvöllum hefur hún verið stöðvuð af tollvörðum á Keflavíkurflugvelli í 11 af 12 komum sínum hingað til lands. Eina skiptið sem hún var ekki stöðvuð hafði farangur hennar tafist og kom ekki með fluginu. Á sunnu- daginn kom hún með flugi frá Kaup- mannahöfn og var ein stöðvuð af hundrað manna farþegahópi. „Þegar ég hafði verið færð inn í yfirheyrsluherbergið mátti ég ekki setjast niður. Ég bauð tollverðinum að rannsaka allan farangur minn en hann gerði það ekki. Ég spurði hann hvort hann væri að leita að fíkniefn- um og sagði honum að finna fíkni- efni og slá í gegn,“ segir Anette. Tollvörðurinn greip ummælin á lofti og hreytti í hana: „Þú sagðist vera með fíkniefni." Var þá annar tollvörður kallaður til. „Hún viður- kenndi að hafa fíkniefni," sagði fyrri tollvörðurinn við þann seinni. Þeir neituðu að gefa upp nöfn sín þegar Anette spurði um þau. Anette hélt áfram að spyrja hvað þeir vildu henni og hvers vegna hún væri stoppuð í hvert skipti sem hún kæmi til landsins. „Seinni tollvörð- urinn stóð 10 sentímetra frá mér og öskraði framan í mig með fingurinn á lofti," segir hún. „Ég sagði honum að benda ekki á mig og spurði hann hvers vegna hann öskraði. Þá sagði hann: Þú getur farið aftur heim ef þetta hentar þér ekki," segir Anette, sem var ráðlagt af seinni tollverðin- um að passa sig áður en hann lét sig hverfa. Anette bað fyrri tollvörðinn um yfirmanninn en hann sagðist „Ég sagði honum að benda ekki á mig og spurði hann hvers vegna hann öskraði. Þásagðihann: Þú getur farið aftur heim efþetta hentar þér ekki." sjálfur vera yfirmaðurinn. Kári Gunnlaugsson, tollstjóri á Keflavík- urflugvelli, segist ekki hafa verið viðstaddur þegar Anette var stopp- uð í tollinum. Hann tjáir sig ekki um einstök mál. „Við munum fara yfir málin og gefa okkar skýringu til okk- ar yfirvalda. Ég kannast ekki við að við veljum fólk eftir litarhætti eða öðru slíku til þess að leita. Við höf- um ekki verið sakaðir um það í toll- gæslunni að vera rasistar. Það hefur verið lögð rík áhersla á að vinna af fagmennsku og taka ekki ákveðna þjóðþætti eða þjóðflokka sérstak- lega fyrir. Við byggjum oft okkar leit á leitarhundum og hundarnir eru litblindir til dæmis, þeir þekkja ekki muninn á svörtum eða hvítum," segir hann. Ómar Grétarsson, fisksali í Reykjavík, erkærastiAnette. Honum þykir það ömurlegt að kærasta hans mæti fordómum í hvert skipti sem hún kemur til landsins. „Þegar ég kom með henni í flugi seinast spurðu landamæraverðirnir mig hvaðan hún væri. Ég sagði þeim að spyrja hana sjálfa. Þá var hún tekin sérstaklega fyrir, beðin um skilríki og svo framvegis en ég var látinn í friði. Það blasir við að hún er aðeins stöðvuð af því að hún er dökk," seg- ir hann. Sýslumaðurinn á Keflavík- urflugvelli hefur einu sinni beðið hana afsökunar á framferði landamæraverða, en þau segja ekk- ert hafa breyst við það. Anette segist íhuga að hætta að koma til landsins. „Vandamál mitt er ekki landið heldur landamærin. Þetta eru fyrstu kynni útlendinga af íslandi. Mér þykír það sorglegt að rasismi sé það fýrsta sem fólk upplif- ir hjá starfsmönnum við landamær- in og fýrstu fulltrúum þjóðarinnar. Af hverju hef ég aldrei verið stoppuð á öðrum flugvöllum?" jontraustítgídv.is „Auðvitað er það ekki eðlilegt að atþingismenn þiggi risnu af einkafyrirtækjum. Slíkt dregur úr trúverðugleika þeirra." Hann segir / Hún segir „Boðsferðir eru á gráu svæði. Ég tel þó að þingmenn geti í flestum tiivikum metið það sjálfir hvort þiggja beri slík boð." Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri á Raufarhöfn Össur segir umboðsmann fella dóm yfir Birni Samfelld Össur Skarphéðinsson, formað- ur Samfylkingarinnar, sagði emb- ættisfærslur Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra valdhroka og vísaði til skipunar Björns á Ólafi Berki Þorvaldssyni í Hæstarétt og viðbrögð ráðherra við gagnrýni umboðsmanns Alþingis. í utandag- skrárumræðu í gær sagði Össur að álit umboðsmanns Alþingis væri: „...samfelld rassskelling frá upphafi til enda í garð ráðherra." Björn Bjarnason aftur á móti tók fram í málsvörn sinni að hann teldi ástæðu til að skoða alvarlega ábendingar umboðsmanns Alþing- is. Björn tók þó fram að Hæstiréttur hefði talið alla umsækjendur um stöðuna hæfa og að skipun sín rassskelling hefði verið á málefnalegum for- sendum. Þá telur Björn ekki rétt að breyta fyrirkomulaginu á skipun hæstaréttardómara eins og Össur hafði spurt hann um. Davíð Oddsson forsætisráðherra tók þátt í utandagskrárumræðunni og kom vini sínum dómsmálaráð- herra til varnar. Segir Davið m.a. að sér virðist sem þingmenn hefðu ekki kynnt sér álit umboðsmanns nægilega vel. Steingrímur J. Sigfús- son, formaður VG, segir að embætt- isfærsla dómsmálaráðherra hafi hlotið almenna fordæmingu og fall- einkun enda um brot á lögum að ræða. Guðmundur Árni Stefánsson, Samfylkingunni, segir að röksemdir ráðherra fyrir embættisveitingunni séu í besta falli kattar- þvottur og að koma þurfi þessari ríkisstjórn frá í hvelli. Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, seg- ir að ráðherra hafi ekki brotið lög og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingunni, segir að ummæli ráðherra í málinu beri vitni um valdhroka og óskammfeilni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.