Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Blaðsíða 29
DV Fókus MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 29 > Kateíþað heOaga Hollywood-stjarnan Kate Beckinsale gekk í það heilaga um helgina. Leikkonan, sem er þrítug, giftist kærastanum sín- um og kvikmyndaleikstjóranum Len Wieseman. Vinkonur Kate sáu um að gæsa leikkon- una og létu hana ganga um í verka- mannagalla. Um kvöldið breytti hún um stíl og var í glæsilegum kjól eftir hönnuðinn Veru Wang. Leikkonan á eina dóttur úr fyrra hjónabandi og var hún brúðar- mey. Kate og Len hittust við tök- ur á vampírumyndinni Und- erworld árið 2002. Þá voru þau bæði í öðrum samböndum og byrjuðu ekki að vera saman fyrr en á síðasta ári. Missti stjórn á sér Áflog brutust út milli lífvarða rapparans 50 Cent og áhorfenda á ldúbbi í Springfield um helg- ina. Rapparinn missti stjóm á skapi sínu þegar einn áhorfenda kastaði vatni á hann og henti sér á hóp að- dáenda. Eftir að lögreglan náði að stoppaáflog- in dreif rapparinn sig aftur upp á sviðið og kláraði lagið en dreif sig síðan út. Lögreglan rannsak- ar nú hvort skothríð eftir tón- leikana tengist rapparanum. Tveir voru handteknir og einn slasaðist. Sæti söngvarinn úr strákahljómsveitinni Blue, Duncan James, er farinn að leika í kvikmynd- um.Vinirsöngvarans segja hann ekki ætia að ranka við sér einn daginn og uppgötva að hljóm- sveitin sé buin að vera og hann atvinnulaus. Fyrsta hlutverk hans er í róman- tískukvikmyndinniThe Truth About Love þar semhannleikurámóti Jenntfer Love- Hewítt. „Duncan er fyrrverandi fyrirsæta svo hann er laus við alla feimni og ekki þarf að minn- ast á hversu glæsilegur hann er," sagði talsmaður söngvarans. Fallega leikkonan Scarlett Johansson er veik fyrir eldri mönnum, en hún er sjálf 19 ára. Fyrst var það Bill Murray en nú leikarinn Benicio Del Toro. eCkl?ZJ°h*™°n. ':«°rln,ennverða ekki eftirsóknarverðír fyrr fertugsaldurinn.'- Benicio DelToro Leikarinner aöaRegaÞekkturfiröa^na undiraugunum.Aðnrgesttr voru forviða yfir Scarlett að sýna honum áhuga. Hin 19 ára Scarlett Johansson hefur viðurkennt að hafa átt ástar- fund með Benicio Del Toro í hótel- lyftu. „Við vorum ekki komin úr lyft- unni þegar lostinn tók völdin," sagði leikkonan hreinskilin í viðtali. Parið vakti mikla furðu viðstaddra á Ósk- arsverðlaunahátíðinni. „Ólíkara fólk er ekki til. Hún er svo falleg en hann þekktastur fýrir baugana undir aug- unum. Það er ekki hægt að segja að hann sé myndar- legur," sagði vitni. Parið gekk að lyft- unni í faðm- lögum og skeytti ekkert um augngotur gestanna í kring. Kunnug- ir segja hana hafa boðið leik- aranum, sem er 37 ára, upp á herbergi sitt. Annað vitni sagði lyfturnar pínulitlar og eld- gamlar. „Ég þori varla að nota þær, hvað þt stunda kynlí þarna inni." Scar- lett hefúr áður viðurkennt að hún laðist að eldri mönnum en hún var meðal annars skotin í meðleikara sínum úr Lost in Translation, hinum 53 ára Bill Murray. „Karlmenn verða ekki eftirsóknarverðir fyrr en á fer- tugsaldri," sagði leikkonan. Dansað til að gleyma Þvílíka djöflasnilld hef ég sjaldan séð. Það hlaut að vera eitthvað ynd- islegt við þessa ræmu fyrst að höf- undar South Park tileinka henni heilan þátt og að notendur Internet movie database velja hana sem næst lélegustu mynd allra tíma. Ég iðaði í skinninu að fá að sjá hana og ég varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum þegar ég og félagarnir fjölmenntum í Smárann. Sagan setur fram afar fallega mynd af fátækrahverfum Los Angel- es þar sem gengi útkljá mál sín með því að dansa hvort gegn öðru í fé- lagsmiðstöðvum og félagarnir Dav- id og Elgin (Omarion og Houston), sem vinna fyrir salti í grautinn með því að dreifa eiturlyfjum, eru félagar í ósigrandi krúi. Einn daginn fá þeir áskorun frá tveimur hvítum drengjum frá Orange County um að keppa um 5000 dollara. Éinn úr hópi Davids og Elgins svíkur þá og dansar með vondu hvítu strákunum og það verður til þess að hetjurnar okkar tapa. Sárir og vonsviknir reyna þeir að vinna upp peningana sem þeir töpuðu og þegar David er að gera hosur sínar grænar gagnvart systur Elgins verður Elgin fyrir árás og stór sending af eiturlyijum sem hann var með er stolið. Ekki nóg með það að nú skuldi hann eiturlyfjabaróninum stórfé heldur var hann barinn svo illa að hann getur ekki dansað eða spilað körfu. Hann kennir svo David um hvernig fór fyrir sér og slitnar upp úr vinskapnum í kjölfarið. En það er von um bjartari daga þegar þeir komast á snoðir um risadanskeppni þar sem heilir 50.000 dollarar eru í verðlaun og tækifæri til þess að koma fram í eld- heitu myndbandi með Lil’ Kim. Endar þetta svo allt saman í svo svakalegu dansatriði að þvílíkt og annað eins hefur varla sést síðan Breakiní 2: Electric Boogaloo. Leikstjórinn og handritshöfund- urinn Chris Stokes, sem skemmti okkur síðast með hinni „stórkost- legu“ House Party 4, ber fram ótrú- lega barnalega heimsmynd þar sem eiturlyfjasalar þurfa ekki að horfast í augu við eyðileggingarmátt dópsins eða afleiðingar þess að stunda jafn ólöglegt athæfi og það virðist öllum vera sama um að þessar tvær per- sónur skuli stunda þessa vinnu. Öll- um er reyndar alveg sama um sög- una enda endast þau atriði varla meira en fimm mínútur í senn, rest- in er dansatriði þar sem persónur kastast fram og aftur og reyna að toppa andstæðingana í flottheitum. Maður fær alveg grænar bólur og veltist um af hlátri við að sjá þessa You Got Served Leikstjóri: Chris Stokes Aðalhlutverk: Omarion, Marques Houston, Jennifer Freeman, Christopher Jones og Robert Hoffman ★ ★★ Ómar fór í bíó „leikara", sem eru reyndar meðlim- ir í R&B grúbbunum B2K og IMX, fara með línur og reyna að vera í sál- arkreppu og það er alveg augljóst að þeir voru ekki valdir út af leikhæfi- leikum þeirra. Ég er í svolitlum vanda varðandi stjörnugjöf. Þetta er frábært dæmi um mynd sem er svo léleg að hún verður skemmtileg og ég hef sjaldan hlegið jafn mikið í bíó. Á ég að dæma hana sem kvikmyndaverk, handrit og svoleiðis því ef svo er þá fær hún feita hauskúpu, eða á ég að dæma hana út frá skemmtanagildi? Ég held að ég verði hreinlega að hvetja fólk til þess að fara að sjá þessa mynd til þess að geta orðið vitni að þessari örgustu snilld þannig að hún fær heilar þrjár stjörnur. You Got Served er tvímælalaust fyndnasta mynd ársins og það er vonandi að framhaldið You got ser- ved 2: The Empire Serves Back sé ekki langt undan. Ómar öm Hauksson Stjörnuspá Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri er fimmtugur í dag. „Ef hann leitar eftir við- skiptalegum árangri ætti hann að sleppa tök- um á fortíð sinni því hann er bundinn fortíð- inni mjög sterkum böndum, oft í gegnum skyldfólk jafnvel. | Honum er gefinn sá eiginleiki I að draga fólk að sér þó hann virðist jafnvel ekki hreyfa sig og kemur það sér vissulega i vel með hækkandi sól þeg- 1 ar viðskipti eru annars veg- I ar," segir í stjörnuspá hans. vv Vatnsberinni20.y<?fl.-7&/avj V\ ---------------------------------- Barnið í þér er auðsært en þú mátt aldrei efast um líðan þína þegar þú spyrð sjálfið hvert skal haldið kæri vatnsberi, hafðu þetta hugfast dagana framundan. H F\Skm\t (19.febr.-20.mars) Þú hefur mikinn viljastyrk, festu og næga greind til að vernda þig fyrir smávægilegum erfiðleikum sem koma í veg fyrir að þú upplifir þínar innstu þrár. T Hrúturinn I21.mm-19.april) Stærsta ástin í lífi þínu getur birst þegar minnst varir og þú löngu hætt/ur að leita. ( undirmeðvitund þinni forðastu vissa hluti og viðbrögð við þeim verða jafnvel að vana hjá þér. b NaUtið (20.april-20.mai) Hrein sköpun og frelsi bíður þín þegar þú hefur endanlega ákveðið innra með þér að upplifa af frjálsum vilja töfra ástarinnar og ekki síður tilveru þinnar. Þú ert minnt/ur á það hérna að þeir sem leita stöðugt að öryggi halda áfram að leita alla ævi án þess að finna það sem leitað erað. Tvíburarnir (21. maí-21.]úní) Þú upplifir ástina hér aföllum mætti og tekur jafnvel sjálfið og eigin lífsgildi til algerrar endurskoðunar. Skynjun þín og tilfinningar eru fyllri og opnari á þessum tímapunkti f lífi þínu. n '~7S K\M\m(22.júní-22.júli) Talan tveir sýnir að þú ert fær um að nota fegurð fortíðar tii að endur- skapa og upplifa nútíðina á réttan máta með þeim sem þú elskar kæri krabbi. LjÓnÍðí/l. júli- 22. ógúst) Þú ættir að tileinka þér að opna hjarta þitt og tjá tilfinningar þínar í sama mæli og hugmyndir þínar. Meyjan (21 agúst-22. septj Þú leitar án efa sannleikans þessa dagana. Þú getur gert það sem þér líkar ef þú aðeins hlúir að eigin til- finningum. Þú ert að sama skapi fær um að draga að þér það sem þú þarfn- ast. Q Vogin (23.sept.-23.okt.) Orðum þínum má treysta full- komlega og þú virðist ekki segja neitt nema þú meinir það. Þú býrð yfir sjálfs- öryggi og styrkur þinn gerir að verkum að enginn getur ráðskast með þig og tilfinningar þínar. TTl Sporðdrekinn (24.okt.-21.n6v.) Viðurkenndu tilfinningar þínar í stað þess að bæla þær niður því þegar þú gerir það geislar langar leiðir af þér sjálfsöryggi og reisn. / Bogmaðurinn (22.n0v.-21.deu Talan sjö segir að þú sért skrefi á undan öðrum sumarið framundan og látir það ekki á þig fá þótt innra með þér ólgi tilfinningar sem gætu lagst þungt á aðra. Yfirvegun ein- kennir þig hérna. z Steingeitin (22.des.-19.janj ___ Orkuflæði þitt er vægast sagt mjög öflugt en þú ættir að huga vel að smáatriðum líðandi stundar og hafa hugfast að stolt þitt er án efa tvíeggjað kæra steingeit. Þú ættir að nota það á jákvæðan hátt. m SPÁMAÐUR.IS r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.