Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 Fréttir 0V Veiddu þýsk- an kafbát Danskur togari „veiddi" þýskan kafbát á dögunum. Togarinn var við veiðar á Skagerak, skammt frá Hirtshals, þegar kafbátur- inn flæktist í trollinu. Bát- urinn var tilneyddur að koma úr kafi og kom þá í ljós aflinn. Kafbáturinn er þýskur og var við æfingar ásamt 70 öðrum skipum frá 16 ríkjum Atlantshafs- bandalagsins. Enginn slas- aðist í óhappinu en áhöfn kafbátsins mun hafa orðið skelkuð í atganginum. Fjórtán ára á stolnum jeppa Um helgina hafði lögreglan á Hvolsvelli afskipti af 14 ára göml- um ökumanni er ók stórri jeppabifreið eftir Suðurlandsvegi í Rangárþingi eystra. Lögreglan stöðvaði hinn barnunga ökumann við hefðbundið eftirlit og kom þá í ljós aldur hans. Maradona dópaður Yfirvöld einkasjúkra- hússins í Buenos Aires sem hýsir fótboltahetjuna Diego Armando Maradona dópuðu kappann niður eftir að hann tók reiðikast á dögunum. Hann vildi snúa aftur til Kúbu, þar sem hann hefur búið síðustu fjögur árin. Fidel Castro Kúbuleiðtogi hafði flugvél reiðubúna til að sækja Maradona ef hann vildi snúa aftur en læknar leyfa honum ekki að fara. Maradona er hjartveikur og berst við kókaínfíkn sína, sem hefur veikt hann and- lega og lfkamlega. Matthíasdóttir Vala Matt er lífsglöð og hvers manns hugljúfi. Smitandi hlát- ur hennar lætur engan ósnort- inn og hún kann að gleðjastá eigin forsendum. Vala hall- mælir aldrei neinum og er sjálfri sér samkvæm I gleði lífs- ins sem hún nýturáeigin for- sendum og án hjálparefna. Brynjar Valdimarsson var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að reka spilavíti við Suðurgötu. Þá er honum gert að greiða hálfa milljón í sekt auk þess sem gerðar eru upp rúmar fimm milljónir af reikningum hans. Brynjar hefur þegar áfrýjað málinu og segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur galna. Sex milljónir í sekt og fangelsi n skilorði ivrir rekstur spilawlis „Ég ætla að áfrýja þessu, er reyndar búinn að því, það var gert á staðnum. Þetta er alveg galinn dómur og ekki rökstuddur mikið, bara vitnað í skýrslu lögreglumanna. Jón [Magnússon lögmaður] sagði að þessi dómur væri tabú eins og hann er settur fram," seg- ir Brynjar Valdimarsson sem nýverið var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir rekstur spilavítis við Suðurgötu í Reykjavík. Dólmurinn hljóðar upp á fjög- urra mánaða skilorðsbundinn fang- elsisdóm og fimm hundruð þúsund króna sekt. Að áuki er Brynjari gert að sæta upptöku á alls rúmum fimm milljónum sem hann átti á þremur reikningum og til viðbótar upptöku til ríkissjóðs á fimm spilaborðum, spilapeningum og spilastokkum. í dómnum kemur fram að í júní 2002 fóru þrír lögreglumenn að Suð- urgötu 3 í Reykjavík til að kanna hvort upplýsingar um að þar væri ólöglegt spilavíti ættu við rök að styðjast. Þeir tóku hver um sig út 5000 krónur af debet- og kreditkort- um sínum og settust við eitt rúllettu- borð sem þar var en auk þess var annað rúllettuborð í húsakynn- unum auk þriggja spilaborða þar sem „21" var spilaður. Á staðnum voru um 15 til 20 manns og var veitt áfengi til þeirra sem voru að spila. Lögreglumennirnir höfðu á því orð að þjónustan hafi verið frábær. Hús- Black Jack Lögreglan lagði hald á tvö rúl- lettuborð og þrjú Black Jack-borð. Auk þess var lagt hald á rúmar fimm milljónir af reikningum sem skráðir voru á Brynjar. þessu leit var svo gerð í september þetta sama ár í framhaldinu og rekstur klúbbsins stöðvaður. Framburður ákærða var á þá leið að þarna hefði verið um einkaklúbb að ræða, félagsskap manna sem veðjuðu sín á milli. Hann minnti á að lögreglumennirnir hefðu aðeins komist inn vegna þess að þeir nefndu til mann sem væri félagi. Guðmundur Sveinsson er eitt vitn- anna, framkvæmdastjóri klúbbsins, og hann talaði um að ef eitthvað hefði staðið eftir sem gróði þá hafi hann farið alfarið í endurbætur á húsnæðinu að Suðurgötu. Engin leynd hafi hvílt yfir félagsskapnum og markmið félagsins hefði verið að gera mönnum kleift að stunda veð- mál og peningaspil innan ramma laganna. Brynjar sem og Guðmund- ur höfnuðu því alfarið að Brynjar hafi haft af því atvinnu að stjórna starfseminni í niðurstöðu dómsins hafnað og vísað til mikillar veltu þó ekki liggi fyrir nákvæmar töl- ur um hagnað. Fyrir liggur, segir í dómi, að velta á reikningi ákærða sem stofnaður var í apríl 2001, var 12 millj- ónir króna á | árinu 2001 en 47 millj- ónir á árinu 2002. Brynjar gerir ráð fyrir því að málið verði tekið fyrir í Hæstarétti ein- hvern tíma í haust án þess að vita það þó með vissu. jakob@dv.is Bæjarráð í Fjarðabyggð Alþingismenn á Hilton-hóteli í boði Atlanta Ráðuneyti hjálpi til við leyndarhjúpinn Bæjarráð Fjarðabyggðar neitar enn að aflétta trúnaði að lögfræðiáliti sem unnið var fýrir bæinn vegna útleigu á Egilsbúð. Deilur hafa verið vegna útleigunnar þar sem samkeppnisaðilar telja sér mismunað við það að leigutaki Egils- búðar fái kostakjör við útleiguna. Á bæjarráðsfundi á mánudag var lögfræðiálitið loks afhent Magna Krist- jánssyni, fulltrúa minnhluta Sjálfstæð isflokks, eftir að hann sagðist ekki geta greitt atkvæði um drög að nýjum samningi í Egilsbúð. Þá hafði álitið legið fyrir í 40 daga án þess að Magni fengi aðgang að því. Eftir að Magni fékk lögfræði- álitið í hendur óskaði hann þess að trúnaði vegna skjalsins yrði aflétt. Þvf var tekið fálega af bæjarráði sem samþykkti að vísa af- greiðslu samningsins tíl bæjarstjómar. Ennfremur var samþykkt að leita lið- sinnis rfkisvaldsins til að halda lög- fræðiálitinu áfram leyndu: „Bæjarráð samþykkir jafnframt að leitað verði sem fyrst álits lögfræðings félagsmálaráðuneytisins á rétti sveitar- félagsins til að halda trúnaði á skjalinu og meðferð þess," segir í fundargerð bæjarráðs Fjarðabyggðar á mánudag. Hið umdeilda og ofur við- | kvæma lögfræðiálit er unnið af ' Eiríki Jónssyni á lögfræðistof- unni Landslögum í Reykjavík. Smári Geirsson Formaður bæj- arráðs i Fjarðabyggð. Borqaði fyrir konuna í boðsferðinni „Ég greiddi fyrir konuna mína og við sáum sjálf fyrir ferðum mínum á Englandi," segir Guðjón A. Kristjáns- son, formaður Frjálslynda flokksins, um boðsferð á vegum flugfélagsins Atlanta sem hann þáði ásamt Guð- mundi Hallvarðssyni, formanni sam- göngunefndar Alþingis, ogÁstu Ragn- heiði Jóhannesdóttur, alþingismanns Samfylkingarinnar. Meðal annars var dvalið á Hilton-hóteli þar sem gestim- ir þáðu gistingu og veislu. Tilgangur ferðarinnar var að fagna með Atlanta- mönnum opnun flugskýlis í borginni Shannon á írlandi. Guðjón segir að ferðin hafi verið gagnleg. „Við fengum ýmsar gagnlegar upp- lýsingar sem ég vona að rnuni nýtast í framtíðinni. Við í Frjálslynda flokkn- um höfum lýst því að við höfum áhuga Guðjón A. Kristjánsson Þáði boðAtlanta um ferð til Irlands og Englands. á að byggja upp svona aðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Einnig kynnú ég mér varahlutaþjónustu AÚanta," segir Guðjón. Aðrir nefndarmeim samgöngu- nefndar afþöklcuðu boðsferðina og sumir töldu ekki væri við hæfi að lög- gjafar fæm í slfkar boðsferðir á vegum hagmunaaðila. DV hefur heimildir fyrir því að innan Samfylkingarinnar og Frjálslynda flokksins hafi verið uppi efasemdir um að rétt væri að þiggja umrædda boðsferð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.