Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 13 Tískulögga fónsa íslenska sendinefndin samanstendur af nokkrum vel völdum aðilum sem hafa mikla reynslu af keppninni. Gísli Marteinn Baldursson er að lýsa keppninni í fimmta skiptið, Vignir úr írafári tók þátt í fyrra og Svavar Örn, sem fer út sem sérlegur tískuráðgjafi Jónsa, hefur V V V oftar enekki verið ís- lensku keppendun- um innan handar. Menn hafa verið að velta því fyrir sér af hverju Svavar Örn, sem venjulega sér um öll útlitsmál á Stöð 2, sé með í för en ekki einhver reynd förðunardama frá RÚV, t.d. Ragna Fossberg. Reynsla Svavars af keppninni vegur þó þungt og þess vegna mun hann hafa orðið fyrir valinu frekar en einhver annar. Sigurvissir Svíar Sænska ríkissjónvarpið er þegar búið að bóka Globen- höllina til þess að halda Eurovision-keppnina að ári. Svíar eru sannfærðir um að Lena Philipsson fari alla leið sem kemur svo sem heim og saman við spár þar sem hún er víða í þremur efstu sætunum. RÚV hefur hins vegar ekki pantað neina höll svo vitað sé enda eru menn á þeim bænum ekki að spila til sigurs. Raunar segja menn að Markús örn hafi verið á barmi taugaáfalls árið 1999 þegar Selma var nærri sigri en keppni af þess- ari stærðargráðu þykir fullstór biti fyrir Ríkissjónvarpið. Tómas hjálpar hundum Tómas Þórðarson, kepp- andi Dana í Eurovision, fór í gær í innkaupleiðangur á götumarkaði í Istan- búl. Þar kom hann auga á mann sem var að selja gælu- dýr og fór það eitthvað fyrir brjóstið á honum. „Þeir hugsa greini- lega ekki alveg eins og við heima. Maðurinn var bara með öll dýrin saman í einu búri. Ég var alvarlega að spá í að kaupa öll dýrin svo ég gæti tekið þau með mér til Danmerkur. Þar myndu þau hafa það miklu betra," sagði Tómas sem keppir í undanúrsUtunum Eurovision í kvöld. ísland færist upp töfluna hjá nokkrum veðbönkum þessa dagana. Jónsa var víða spáð tólfta sæti en er nú kominn upp í það níunda hjá nokkrum veðbönkum. Reyndar fóru Bosníumenn í fýlu á blaðamannafundi á mánudag þegar þeir héldu að Jónsi væri að gera grín að þeim. Þrátt fyrir það er Jónsi á góðri leið með að verða vinsælasti keppandinn. ^lónsi móðgar Bosníumenn ísland samt á uppleið Eurovision-hópurinn er smátt og smátt að stimpla sig inn hjá blaðamönnum í Tyrklandi. Jdnsi flutti lag Bosníu á blaða- mannafundi á mánudag við góðar undirtektir allra nema Bosn- íumanna. Nú spá Danir okkur sigri en hafa litla trú á sínum manni, Tómasi Þórðarsyni. „Við höfum heyrt út undan okkur að blaðamönnunum þyki við vera skemmtilegasti hópurinn," sögðu talsmenn Eurovision-hópsins við DV í gær. Danskir fjölmiðlar virðast allt í einu hafa misst trúna á sínum keppenda, Tómasi Þórðarsyni, sem keppir í undanúrslitum í kvöld. Þess í stað hafa þeir, ásamt mörgum öðr- um, tekið ástfóstri við Jónsa. Ganga sumir það langt að spá honum sigri en sænska stúlkan, Lena Philipsson, þykir einnig líkleg. Bosnía grætur „Það var samnorrænn blaða- mannafundur í gær og var salurinn þétt setinn, fleiri hundruð manns og allt gekk vel. Daginn áður var líka blaðamannafundur þar sem Jónsa var hrósað fyrir fallegt vaxtarlag og var hann hvattur til að fara úr að ofan eða syngja þess í stað lag. Það kom mér á óvart að Jónsi kaus frekar að syngja og varð framlag Bosníu fyrir valinu," segir Sveinn Rúnar Sig- urðsson, höfundur íslenska lagsins. „Þetta lag inniheldur einhvern vit- lausasta texta sem sögur fara af og ekki skemmir fyrir hvernig hinn bosníski Deen ber þetta fram: „I’m late, I’m straight, I’m loosing my weight". Það ædaði því allt um koll að keyra þegar Jónsi söng lagið af mikilli innlifun," segir Sveinn. Blaðamönnum þótti þetta uppátæki mjög skemmti- legt ef frá eru taldir aðilar frá , Bosm'u sem ; á litu á þetta :j™ sem mikla móðgun við j land og þjóð. j Það er því 1 óhætt að full- yrða að Bosnía muni ekki gefa okk- ur stig þegar að sjálfri keppninni kemur þar sem þarlendir fjölmiðlar hafa gert mikið veður út af meintri móðgun. Tómas fámáll „Ég hef ekkert rætt við bosn íska hópinn enda heldur hann sig bara út af fyrir sig. Múnder- ingarnar sem þeir eru í hafa aftur á móti vakið kátínu. Að- alsöngvarinn Deen mætti t.d. í loðnum blettatígursbuxum, krókódílaskóm og kafloðnum hvítum jakka í gær. Honum finnst þetta bara flott en ég held að ég hafi séð svona teppa- búta einhvers staðar," segir Sveinn Rúnar um Bosníu mennina. „Lena frá Sví- þjóð er hins vegar mjög hugljúf og söngkonan frá Mónakó líka. Ég hef aftur á móti lítið talað við Tómas Þórðarson þar sem hann er mjög fá- máll maður," segir Svenni sem kann annars vel við sig í Tyrklandi. „Það er búið að vera 30 stiga hiti og sól alla dagana. Við áttum frí frá æf- ingum í gær og nýttum tímann til að fara á markaðstorg og í sigl- ingu um Bosporus- sundið. Svo var sam- norrænn blaða- mannafundur sem ? gekk vel eins og hinir fyrri," segir Sveinn sem er ásamt þeim Svavari Erni tískusér- fræðingi, Vigni úr íra- fári, Jónsa, Gísla Marteini og fleirum í Istanbúl. Síð- ar í kvöld fara undanúr- slitin fram þar sem tíu ^ þjóðir munu tryggjasérsæti í úrslitun- um sem verða á laugardag. agust@dv.is Jonsi Söng lag Bosniu fyrir blada menn og héldu margir að verid væri að gera grín að þvi lagí. Jónsi á blaðamannafundi Hefursungið sig inn í hjörtu blaðamanna sem og annarra. Hann er á góðri leið með að verða vinsælasti keppandinn. Deen Keppandi Bosniu tók ekki vel i flutning Jónsa á lagi hans. Fjölmiðlar i Bosniu hafa mikið fjallað um málið þannig að við megum ekki eiga von á stigum frá þeim á laugardag. Úkraínski keppandinn, íslandsvinurinn Ruslana, gerir allt vitlaust í heimalandinu vegna ummæla sinna um samkyn hneigða. Hún stendur þó föst á sínu. Ætlar í sumarbúöir fyrir samkynhneigða Úkraínski keppandinn Ruslana eyddi miklum tíma áður en haldið var til Tyrklands í að kynna sig meðal annarra þjóða. Kom hún t.d. hingað til lands yfir páskana og hélt tón- leika sem lítið fór fyrh og þá hélt hún lika til Hollands. Þar gerði hún meha en að skoða túlípana því hún lofaði aðstand- endum sumarbúða fyrir ungt samkynhneigt fólk að troða upp hjá þeim síðar í sumar. Þegar frétth af því bárust heim til Úkraínu ætlaði allt að verða vitlaust. „Það er sorglegt að úkra- ínska þjóðin, sem hefur mikla löngun til að ganga í Evrópu- sambandið, skuli ekki hafa samúð með samkynhneigðum. Evrópusambandið hefur styrkt þessar sumarbúðir sem hafa það að markmiði að auka skilning á þeim vanda sem samkyn- hneigðh standa fyrh. Að landar mính skuli ekki sætta sig við að samkynhneigt fólk sé til og að það sé alveg eins og annað fólk er bara fáránlegt. Úkraína þarf að hætta þessum fordóm- um,“ sagði Ruslana sem ætlar ekki að láta skoðanh samlanda sinna koma í veg fyrir heimsókn hennar í sumarbúðh sam- kynhneigðra í Hollandi í sumar. Ruslana og Davfð Davið Odds- son hitti Ruslönu i Úkralnu fyrr á árinu. Nú hefur hún sent Úkrainu- mönnum tóninn fyrir að vera með fordóma I garð samkynhneigðra. Davið hefur eflaust freett Ruslönu um frjálsiyndi á fundi þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.