Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004
Fréttir DV
Hvað þýðir
þetta fyrir
fjölmiðlana?
Stöð 2
Verður
svipt leyfi
til útsend-
inga í júní
2006 ef ekki verður breyting
á eigendahópi móðurfé-
lagsins.
RÚV
Frumvarp-
ið hefur helst
þau áhrif að
vera beint
gegn helsta
samkeppnisaðila Ríkisút-
varpsins enda hafa for-
svarsmenn RÚV lýst stuðn-
ingi við frumvarpið. Frum-
varpið hefur engin bein
áhrif á starfsemi RÚV og
stöðu þess á íslenskum fjöl-
miðlamarkaði.
Skjár 1
Breytinga- ■
tillögur alls-
herjarnefndar
Alþingis gera
það að verkum að frum-
varpið hefur engin áhrif á
Skjáinn eins og staðan er í
dag. Eigendur Viðskipta-
blaðsins, sem kemur út
tvisvar í viku, mega áfram
eiga hlut sinn í Skjá einum.
Morgunblaðið
Frumvarpið hefur ekki
bein áhrif á
starfsemi
blaðsins. Það
kemur þó í
veg fyrir að
Morgunblaðið
geti haslað sér völl í út-
varps- eða sjónvarpsrekstri
sem er eitthvað sem
nokkrum sinnum hefur
komið til tals á meðal eig-
enda Morgunblaðsins og
Árvakur tekið þátt í.
DV
Má ekki vera
lags sem einnig
miðla en getur
líkt og áður
birt það sem
blaðið kýs,
innan laga og
reglna. Lög
um fjölmiöla munu ekki
stöðva gagnrýna umíjöllun
DV um íslenska og erlenda
ráðamenn. Fjölmiðlalögin
munu þýða að eigenda-
tengsl mega ekki vera milli
DV og Stöðvar 2 og að leysa
verður upp móðurfélagið
Norðurljós.
Fréttablaðið
Má ekki vera í eigu fé-
lags sem
einnig á ljós-
vakamiðla.
Fjölmiðlalögin
munu þýða að
eigendatengsl
mega ekki vera milli Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2 og að
leysa verður upp móðurfé-
lagið Norðurljós.
í eigu fé-
á ljósvaka-
Forseti getur einn sti
Halldór Blöndal forseti Alþingis segir að fjölmiðlafrumvarpið verði rætt í striklotu
og ekkert annað mál tekið fyrir á meðan. Sigurður Líndal lagaprófessor, sem ásamt
fjölda annarra telur frumvarpið enn brjóta gegn stjórnarskrá, telur að forsetinn
eigi að koma til landsins vegna málsins. Davíð og Halldór himinlifandi með breyt-
ingarnar en stjórnarandstaðan telur breytingarnar engu breyta. Álit tveggja nefnda
þingsins tilgangslaus.
„Mér finnst að hann eigi að vera á
landinu hvort sem hann kýs að stað-
festa lögin eða ekki,“ segir Sigurður
Líndal, prófessor emeritus um Ólaf
Ragnar Grímsson, forseta. Sigurður
segir að málið sé svo mikilvægt að
sínu mati að forseúnn eigi að vera á
landinu við lokaafgreiðslu þess. For-
seti er fjarverandi til laugardags en
áformað er að afgreiða fjölmiðlafrum-
varpið sem lög í síðasta lagi á föstu-
dag. I fjarveru forseta staðfesta hand-
hafar forsetavalds lögin, þeir Davíð
Oddsson, forsætisráðherra, Halldór
Blöndal, forseti þings og Markús Sig-
urbjörnsson, forseti Hæstaréttar.
Nægir að tveir af þremur staðfesti lög-
in.
DV greindi frá því á mánudag að
Ólafur Ragnar íhugi að neita að stað-
festa lögin og skjóta þeim til þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Þegar hefur verið þrýst
á forsetann að bregðast þannig við en
fjarvera hans getur sett strik í reikn-
inginn. Hann er nú í Mexíkó en verður
á föstudag viðstaddur brúðkaup
danska krónprinsins, nema hann
svari kalli og láti sig vanta við brúð-
kaupið. Sigurður telur að frumvarpið
sé eitt fárra mála í 60 ára sögu lýðveld-
isins sem henti mjög vel til að láta
reyna á þann öryggisventil sem forset-
inn hefur til að skjóta umdeildum
málum til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mikill meirihluti þjóðarinnar er
andvígur fjölnúðlalögunum ef marka
má skoðanakannanir. Nýverið gerði
Gallup könnun sem sýndi að tveir af
þremur fslendingum em á móti því og
í könnun sem Fréttablaðið birti í gær
sýnir sig að ríflega 80% þjóðarinnar
em andvígir lagasetningunni.
Málið keyrt áfram með svipu
Halldór Blöndal forseti Alþingis
hefur í samráði við ríkisstjórnina
ákveðið að fjölmiðlaffumvarpið verði
keyrt í gegn í nánast
einni striklotu og boðað að frumvarp-
ið verði að lögum fyrir vikufok, hvað
sem tautar og raular.
Halldór lýsti því yfir í gær á fundi
með formönnum þingflokka að engin
önnur mál yrðu tekin fyrir á þingi fram
að samþykkt fjölmiðlafnunvarpsins
og að alls óvíst væri að frumvarpið
færi aftur til allsherjamefndar milli
annarrar og þriðju umræðu.
Kristján L. Möller, starfandi þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
segir að Halldór hafl lýst því yfir að
umræðan sem hófst síðdegis í gær
myndi halda áffam svo lengi sem
þurfa þyrfti og yrðu kláruð um leið og
mælendaskrá tæmdist. „Hann sagði
jafnffamt að ef umræðan kláraðist í
nótt (sem leið) þá færi atkvæða-
greiðsla um málið og vísan til þriðju
umræðu fram þá um nóttina og þing-
menn ræstir út til þess. Hann sagði að
þriðja umræða yrði tekin upp í beinu
framhaldi af því. Ég spurði sérstaklega
eftir því hvort málið yrði virkilega ekki
tekið til nefndar milli annarrar og
þriðju umræðu, eins ogyfirleitt er gert
ef um er beðið, en það var ekki á hon-
um að skiljast að það yrði gert. Hann
lýsti því þvert á móti yfir að málið yrði
keyrt í gegn og sagði að það yrði eina
málið á dagskrá þar til því yrði lokið -
engin önnur mál sett á dagskrá. Ég
spurði sérstaklega út í störf mennta-
málanefndar og efnahags- og við-
skiptanefndar vegna þessa og það
kom fram sú túlkun að rími þessara
nefnda væri liðiim."
Klárað í vikunni
Kristján sagði því ljóst að umsagn-
ir ffá menntamála- og efnahags- og
viðskiptanefndum þingsins skiptu
engu máli fyrir stjómarliðana.
„Guð einn veit hvernig formenn
þessara nefnda bregðast við þessu,
þeir Pétur H. Blöndal
og Gunnar I.
Birgisson, enda erfitt að ráða í hvað
stjórnarþingmenn em að hugsa í
dag."
Magnús Þór Hafsteinsson, þing-
flokksformaður Frjálslyndra, staðfest-
ir skilning sinn á boðskap forseta
þingsins. „Hann sagði að málið yrði
klárað í vikunni. Ég túlka umræðumar
þannig að það sé reiknað með þriðju
umræðu og lokaatkvæðagreiðslu um
málið jafnvel á fimmtudag. Alténd er
miðað við að málið verði afgreitt sem
lög frá Alþingi fyrir lok vikunnar. Á
meðan yrðu önnur mál ekki tekin á
dagskrá."
Höftin skilyrt við þá stærstu
Meirihluti allsherjarnefndar leggur
fram breytingatillögur í 6 liðum við
fjölmiðlaffumvarp ríkisstjórnarinnar
og er ljóst að talsmenn rfldsstjórnar-
flokkanna em himinlifandi með ár-
angurinn og telja sig hafa komið til
móts við allar gagnrýnisraddir.
Meirihlutinn leggur m.a. til að tak-
mörkun á veitingu útvarpsleyfis til
markaðsráðandi fyrirtækis miðist við
meira en tveggja milljarða króna veltu,
en þó þannig að slikt fyrirtæki megi
eiga allt að 5% af eign í fýrirtæki með
útvarpsleyfi, að hámark frests frá út-
varpsréttarnefhd til fyrirtækis að
koma eignarhlutfalli í lag verði lengd-
ur úr 60 í 120 daga og að sett sé inn
ákvæði sem nauðsynlegt sé til „að
verjast því að óvinveitur aðili sem ekki
uppfýllir skilyrði útvarpslaga kaupi sig
inn í útvarpsfýrirtæki til þess eins að
eyðileggja rekstrargmndvöll slfks fyr-
irtækis."
Davíð ánægður með verkið
„Ég er mjög ánægður með þetta
fmmvarp, eins og því hefur verið
breytt. Það hefur verið hlustað á þær
athugasemdir sem fram komu við
fýrstu umræðu í þinginu
og í nefndinni,
Halldór Blöndal Forsetiþings ætlar að keyra málið í
gegn og allt annaðá að vikja, segir Magnús Þór
Hafsteinsson. Lög fyrir vikulok.
Bryndís Hlöðversdóttir
Óboðlegur aðdragandi að
lagasetningu.
Friðrik prins og Mary heitkona hans.
Brúðkaup þeirra á laugardag getur skipt
sköpum í íslenskri sögu.
þannig að þeir sem í raun vilja breyt-
ingar og tryggja stöðuna, þeir ættu að
vera ánægðir," segir Davíð Oddsson
forsætisráðherra aðspurður um hið
breytta frumvarp.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra er á sama máli. „Ég tel að þessar
breytingatillögur lagi frumvarpið
mjög mikið og er það lfldegra en áður
til að ná fram þeim markmiðum sem
að var stefnt."
Og Bjarni Benediktsson, formaður
allsherjarnefndar, segist ánægður:
„Þessum breytingatillögum er einmitt
sérstaklega ætlað að koma til móts við
þær athugasemdir sem gerðar vom
við frumvarpið, eins og það lá fýrir.
Það er mikil samstaða í meirihlutan-
um um að gera þessar breytingar."
Bryndís Hlöðversdóttir, einn full-
trúa minnihlutans í allsherjarnefnd, er
á öðm máli.
„Þessar breytingatillögur breyta
engu varðandi þær alvarlegu athuga-
semdir sem hafa komið fram, bæði
hvað varðar stjómarskrána og EES
reglur. Þær
Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson - Ánægðir með
breytingartillögur. Kemur ihlut Davíðs að staðfesta eigin lög
efforseti kemur ekki til landsins.
Norðurljós bentu á afleiðingar Qölmiðlafrumvarps fyrir Skjá 1
Breytingarnar bjarga Skjá 1 en drepa Norðurljós
„Hafi einhver vafi leikið á því
áður að frumvarpið væri klæðskera-
sniðið til að knésetja Norðurljós, þá
er það núna kristalltært," segir Sig-
urður G. Guðjónsson framkvæmda-
stjóri Norðurljósa um breytingatil-
lögur meirihluta allsherjarnefndar
við tjölmiölafrumvarpið. „Davíð
Oddsson hefur nú látið setja inn
IKEA-ákvæði til að Hagkaupsbræð-
ur sleppi með fjárfestingu sr'na í Skjá
einum. Það þýðir að fyrirtæki eins
bææsimm
og IKEA sem er markaðsráðandi og
er með 1,8 milljarða ársveltu, geti
haldið áfram að eiga í Skjá einum.
Að sama skapi sleppur fslandsbanki
með tæplega 5% Iflut sinn t Skjá ein-
um,“ segir Sigurður. Hann segir að
lögfræðingar Norðurljósa hafi bent á
það á fundi með Allsherjarnefnd í
fýrradag að Skjár einn gæti ekki
fengið endurnýjun á útvarpsleyfi
sínu miðað við lögin. Þá hafi verið
farið af stað og gerðar breytingar til
að laga frumvarpið ennþá betur að
Guörún Árný Karlsdóttir söngkona: „Ég er að leggja lokahönd á verkefni hér í Listaháskóla
Islands en nú er fyrsta árinu mínu í skólanum að Ijúka. Verkefnið gengur út á að leggja mat
á þá áfanga sem ég hefstundað. Annars liggur það helst á hjá mér að anda djúpt og slaka
á fyrir sumarið. Það litur út fyrir að ég muni hafa nóg fyrir stafni þetta sumar."
Norðurljósum. „Það er kristaltært af
hálfu löggjafans að frumvarpinu er
beint gegn einu fyrirtæki og nú er
ekki lengur vafi á því þar sem áður
var reynt að dulbúa það sem al-
mennar leikreglur."
„Það er ótrúlegt að Framsóknar-
flokkurinn lárí hafa sig út í það að
Halldór Ásgrrmsson og viðskipta-
ráðherra hans verði látnir drepa
Norðurljós skömmu fyrir kosning-
arnar 2007. Halldór verður settur í
hlutverk böðulsins," segir Sigurður.
Hann segir að breytingar á gildis-
tíma frumvarpsins sýni að Davíð
Oddsson fari að tilmælum Jóns
Steinars og sé sniðið til að bregðast
við harðri bótakröfu sem Norður-
ljós geti komið fram með.
;. ... ?
Sigurður G. Guðjónsson
„Hafi einhver vafi leikið á þvi
áður að frumvarpið væri klæð
skerasniðið til að knésetja
Norðurljós, þá erþaðnúna
kristaltært."