Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2004, Qupperneq 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ2004 7 7 Aukinn niður- skurður á LHS „Þetta leggst ekki vel í okkur," segir Einar Odds- son, formaður starfs- mannaráðs Landspítala - háskólasjúkrahúss, að- spurður um enn einn nið- urskurðinn hjá spítalanum. Stjórnvöld hafa boðað að nú þurft að skera niður um allt að einum milljarði króna. „Við höfum haft, eins og við lýstum yfir í vor, miklar áhyggjur af því hvernig LHS kemur út úr þessu og hvaða áhrif þessi sparnaður hefur á þjónustu við sjúklinga. Það er þegar búið að fara í þá þætti sem beinlínis var hægt að fara í og skoða, hagræða og skipuleggja betur. Það er þegar ljóst að ekki hefur verið, að hluta til, hægt að uppfylla þær sparnaðar- kröfur sem gerðar voru,“ segir Einar. Holdris á tíu mínútum Nýtt stinningarlyf veitir Viagra nú harða sam- keppni. Hér er á ferðinni lyfið Levitra sem sagt er virka á aðeins tíu mínútum á meðan Viagra tekur klukkustund að virka. Síð- arnefnda lyfið virkar hins . vegar í allt að fimm stundir. LJm sjö hundruð menn með risvandamál tóku þátt í rannsókn á Levitra og staðfestu margir að sögn hraðvirkni lyfsins. „Tíu mínútur eru vissulega skammur tími en við heyrðum líka að mönnum þætti ekki síðra að taka stinningarlyf að morgni sem virkar þegar líður á daginn,“ sagði Francesco Montorsi, prófessor í Mílanó, sem fór fýrir rann- sókninni. Vinnslustöðin vinnurá Afkoma Vinnslustöðvar- innar á fyrsta fjórðungi var góð og nokk- uð betri en Greining ís- landsbanka hafði vænst. Hagnaður á tímabilinu nam 213 milljónum kr. og dróst saman um 45% frá sama tímabili í fyrra sem skýrist fyrst og fremst af 206 millj- ón kr. neikvæðri sveiflu í fjármagnsliðum. Hagnaður fyrir afskriftir á fjórðungn- um nam 473 miíljónum kr. og bætist um 56 milljónir kr. frá því í fyrra. Veltan jókst lítillega og var 1.203 milljónir kr. Hugmyndir nefndar landbúnaðarráðuneytisins mæta mótstöðu Lágmarksverði á kjöti mótmælt „Það hefur ekki verið tekið mark á okkar gagnrýni,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasam- takaima. í skýrslu sem Ámi Vilhjálms- son hæstaréttarlögmaður og Eiríkur Tómasson lagaprófessor sömdu fyrir landbúnaðarráðuneytið leggja þeir til að landbúnaðarráðherra fái heimild til að setja lágmark á heildsöluverð á kjöti og fleiri búvörum. Bændasamtökin hafa gagnrýnt til- lögur Eiríks og Áma. Segja að heimild til setja lágmarksverð eigi aðeins að nýta í neyð. „Við höfum einnig gagn- rýnt að heimildin beinist að heild- söluverði," segir Haraldur. ,Að okkar mati væri það betra fyrir neytendur að miðað væri við fram- leiðsluverð í þessum efnum." En fleiri em ósáttir við hugmyndir landbúnaðar- ráðuneytisins. Frjálshyggju- félagið sendi frá sér fréttatil- kynningu í gær þar sem þeir segja hugmyndir um opin- bera verðstýringu á kjöti komnar úr fortíðinni. Frjáls verðmyndun skapi mesta velmegun fyrir almenning. „Á sama tíma og hið opin- bera vill ýta undir verðsam- keppni á hinum frjálsa markaði em uppi hugmyndir um að ríkið standi fyrir verðsamráði, sem væri ólöglegt Haraldur Bene- diktsson formaður Bændasamtak- anna Gagnrýnir hug- myndir nefndarinnar. og fordæmt ef einkaaðilar stæðu fyrir því. Verðsamráð einkaaðila er meira að segja skárra en verðstýring ríkis- ins, því enginn er skyldugur til að taka þátt í því,“ segir í ályktun Frjíílsiiyggjufélags- ins. ÓlafurFriðriksson, ráðu- neytisstjóri hjá landbúnað- arráðuneytinu, segir að til- lögurnar séu komnar beint upp úr greinargerðinni sem unnin var fyrir ráðuneytið. Eins og komið hafi fram hjá Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra er málið í athugun. „Það er hins vegar ekki á döf- inni að leggja þessar hug- myndir fyrir þingið í bráð,“ segir Ólafur. simon@dv.is Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra Frjálshyggjufé- lagið mótmeelir tillögu um lág- marksverð. Stjörnumáltíð + CD Eurovisionlagid + Kariokiútgáfa *McXL + CD=1.099.- i’m lovin’ it McDonald's Kringlunni, Smáratorgi og Suðurlanásbraut iít

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.