Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Side 3
DV Fyrst og fremst MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLl2004 3 Sýningin Söngvaspé geröi stnrmandi Inkku Songvaspé Hér er Raggi Bjarna ásamt hljómsveitsinni og þeim sem þátt tóku ísýn- ingunni Söngvaspé. A innfelldu '\ rnyndinni er Raggi i dag. Það var mikið fjör í danshúsinu Glæsibæ á fyrstu árum síðasta áratugar er Ragnar Bjarnason söngvari og félagar settu þar upp sýninguna Söngvaspé. Gamla myndin í dag er frá október 1992 og sýnir hópinn er stóð að sýningunni. „Ég var að skemmta í Glæsibæ ásamt hljómsveit minni á þessum tíma og það var næstum alltaf fullt hús,“ segir Ragnar Bjarnason betur þekktur sem Raggi Bjarna. „í framhaldi af því ákváðum við að setja þessa sýningu upp og er óhætt að segja að hún hafi gert stormandi lukku á staðnum." Ragnar fékk til liðs við sig Ríó Tríó, Ómar Ragnarsson og Gamla myndin EvuÁsrúnu söngkonu og gekk sýningin í Glæsi- bæ fram eftir vetri. „Þetta var þrælgott lið sem við fengum með okkur, bullandi húmor í sýn- ingunni og eftir á spillti ekki fyrir að mjög stórt dansgólf var á staðnum," segir Raggi Bjarna. Aðspurður hvort hann sé enn viðloðandi „bransann" segist kappinn vera hræddur um það. „Ég var núna síðast um helgina á Bolungarvík með þeim Ómari Ragnars, Magga Kjartans og Birgittu Haukdal," segir hann. „Annars á ég sjötugs- afmæli nú í haust og held jafnframt upp á 50 ára afmæli mitt sem söngvari. Af því tilefni ætía ég að gefa út plötu með fjölda gestasöngvara þar sem gömlu vinsælu lögin mín verða flutt með stæl," segir Raggi. Spurning dagsins Hvað dreymdi þig í nótt? Ætlar að láta drauminn rætast „Mig dreymdi ekkert í nótt, en í síðasta draumnum sem ég man eftir var ég að þvælast í útlöndum að borða góðar kökur í sól og góðu veðri. Ég fer til Berlínar Iseptember og ætla þá að láta drauminn ræt- ast." Ragnheiður Eiríksdóttir tónlistarmaður „Égheldað mig hafi dreymt nafnið Sigurð og þá er það fyrirsigri. Afþví ég er svo mikið I hægra orkusviðinu dreymirmig mikið drauma sem hafa forspárgildi eða hafa ein- hverja praktíska þýðingu strax næstadag." Benedikt Lafleur listamaður og útgefandi „Mig dreymir svo skrýtna drauma, til dæmis nýverið að ég hefði verið að taka viðtal við leik- ara I New York og allt fór úrskeiðis. En ég las einhvers staðar að 90% drauma fólks eru neikvæðir og trúi því vel." Marcie Hume blaðamaður og ritstjóri „Þetta ereinn affáum dög- um sem ég get ekki munað það. Ég man þetta fyrsta andartakið þegar ég opna augun, I morgun mundi ég bara ekki eftir neinu." Jón Aðalsteinn Bergsveins- son sagnfræðinemi „Mig dreymir svooftsvo skemmtilega en í nótt vakn- aði ég þegar maðurinn minn hrökk upp. Hann hafði dreymt að hann væri í rosafínu matarboði og tónleik- um niður í bæ að fá sér franskar, enhann borðar aldrei franskar." Kristrún Kristófersdóttir myndlistarkona Draumfarir þykja stundum vísbending um framtíðina. Margir telja sig geta lesið í drauma sína, en aðrir hreinlega muna ekki drauma sína. Rauðvarð sólinsæla Móðuharðindi Séra Jón Steingrímsson er frægur í íslenskri sögu sem eldklerkurinn en þegar Skaftáreldar stóðu sem hæst þótti samtímamönnum hans augljóst að hann hefði stöðvað hraunflaum að kirkjunni á Klaustri með prédikun sinni í „eldmessunni" einni saman. Sönnu nær mun þó að það sem bjargaði kirkjunni var að hún stóð uppi á hól. En Jón er jafnmerkur fyrir því, hann skrifaði frábæra sjálfsævisögu og lýsingar hans á eld- unum og síðan móðuharðindunum í kjölfarið eru einstæðar. En Jón orti líka kvæði um hörmungar og kallaði Angurvöku. Þar eru meðal annars þessi erindi: Afeiðum að oss sendi eld, sem hingað vendi, fjórtán bæi upp brenndi og blómleg undirlendi, ákaft áfram renndi, eftirskildi hraun og sker. Herrann Jesús hjátpi mér. Býsn sú biðja kenndi og beturguði hlýða. Sendi oss drottinn sigurinn fríða. Rauð varð sólin sæla, sands féll yfir pæla, brennisteins vatn og bræia, bliknaði fold og dæia, skepnur veina og væla, villtar dóu þar og hér. Herrann Jesús hjálpi mér. Svoddan Sorgargæla sáran jók oss kvíða. Sendi oss drottinn sigurinn fríða. Um sumarið sjaldan sáum sól fýrir mökkum háum með ódaun ofurþráum, askan sat á stráum, frá sagt varla fáum, hvað fjölguðu ýmsar mannraunir. Herrann Jesús hjálpi mér. Eldurínn aurnum gráum yfír oss gerði hýða. Sendi oss drottinn sigurinn fríða. Helstríð hörmunganna hiutum þvílíkt kanna, segja kann eg hið sanna um sóknarminna granna, afhálf-fímmhundruð manna hundrað tæpt hér eftir er. Herrann Jesús hjálpi mér. Sumir í sælu ranna, sumir komnir víða. Sendi oss drottinn sigurinn fríða. Ég er ekkert rosa- lega hrifínn af raunveruleikan- um en þaS er samt eini staður- inn þar sem mað- ur fær almenni- lega að éta. -Groucho Marx Þeir er frændur Tónlistarmaðurinn 9 fanginn * Hákon Eydal sem situr i gæsluvarðhaldi vegna hvarfs Sri Rahamawati, þriggja barna einstæðr- ar móður frá Indónesíu, og Ingimar Eydal heitinn tónlistar- maður og kennari eru bræðrasynir. Ingimar var f hópi þekkt- ustu og vinsælustu tónlistarmanna hér á landi. Hann hóf að spila fyrir dansi aðeins þrettán ára gamall. Hann lék með eigin hljómsveit um langt árabil (Sjallanum. Hákon, sem er múrari að mennt, er sonur Birgis Eydal prentara. Faðir Ingimars var Hörður Eydal, starfsmaður Mjólkursamlags KEA á Akureyri. Birgir og Hörður voru synir Ingimars Eydal, kennara og ritstjóra Dags á Akureyri, og Guðfinnu Jónsdóttur. Hafnarfirði CHESTERFISLD ÞJÓNUSTA RflGnfiR BJORnsson ehf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.