Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Side 24
“1 * 24 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 Fókus DV ■v ~ ( % b. Ég hef mikinn metnaö til að ná langt I vinnunni. c. Ég er meö lista yfir kosti sem karlmenn . veröa að upp-Æ fylla. Allar viljum við komast að leyndarmálinu á bak við löng og farsæl ástarsambönd. Hvaða leið ferð þú í vali á maka og hvað er það sem kemur í veg fyrir að samband ykkar þróist á þann hátt sem þú vonaðir í upphafi. Lælurðu stjórnasl af höfðinu eða hjartanu? 1. Merktu við þá möguleika sem eiga við þig. a. Ég er fljót aö falla fyrir einhverjum. b. Ég treysti skoöunum minum varð- andi karlmenn. c. Ég elska aö gefa kærastanum margar og dýrar gjafir. d. Ég tel mikilvægt að treysta á eðlis- hvötina. 2. Merktu 1 til 5 við Kverja fullyrð- ingu. 5 þegar þú ert mest sammála. a. Ég þykist komast i tilfinningalegt uppnám i rifrildum. b. Ég gefstrákum séns þótt ég viti lit- ið um þá. c. Ég er ekki nógu ánægö í vinnunni. d. Þaö er óraunhæft að ætlast til að maöur sé meö allt á hreinu þegar maöur er ungur. 3. Heldur þú að ástarsamband krefjist mikillar vinnu? a. Allt þarfnast vinnu efþað á aö heppnast vel. b. Smá vinnu. c. Ekki efþið eigið að vera saman. 4. Hversu langt fram í tfmann hugs- arðu þegar þú hittir einhvern fyrst? a. Nokkra tlma - þar til viö erum komin i rúmiö. b. Nokkrar vikur...mun vinum mlnum líka vel viö hann? c. Mörg ár...þar til við göngum upp aö altarinu. 5. Berðu kærastann þinn saman við þfna fyrrverandi? a. Nei, allir eru einstakir. b. Stundum. Efaöstæðurnar eru þær sömu. c. Auðvitað. Maður lærir afreynsl- 6. Hvenær enda sambönd þfn vana- lega? a. Þegar ég held fram hjá. b. Þegar ég get ekki lengur ímyndað mér að við eigum framtíð saman. c. Þegar ég fæ á tilfinninguna að sambandið muni ekki virka. 7. Svaraðu með já eða nei a. Ég hrifst afpersónuleika karl- d. Það er mér mikilvægt að vinum mínum og fjölskyldu líki vel við kærastann minn. 8. Merktu við þær fullyrðingar sem passa við þig a. Ég hætti að vera ástfangin mjög snögglega. b. Ég vona að ég geti breytt kærast- anum þannig að hann sé alveg eins og ég vil hafa hann. c. Fyrstu kynni eru mjög mikilvæg. d. Ég er frekar fljótfær. manna. Svona reiknarðu stígin þín: 1. liður: Hver kross er eitt stig 2. liöur: Leggðu saman allar tölurnar 3.liður:a)l b)2c)3 4. liður: a)3 b)2 c) 1 S.liður:a)3b)2c)1 6.liður:a)3 b)1 c)2 7. liður: Eitt stig fyrir hvert nei 8. liður: Eitt stig fyrir hvern kross Útkoma Meira en 40 stíg - Þú stjórnast algjörlega af hjartanu Þú ert algjör spennufikill og elskar öfgar. Skyndikynni og brjáluð rifrildi eru daglegt brauð hjá þér. Þú skiptir reglulega um maka og reynir oft við stráka sem eru þegar á föstu. Þú átt á hættu að vaða út i dauðadæmd sambönd og færð mjög fljótt leiö á strák- um. Þetta gerir þaðað verkum aðþú nærð sjaidan að vera með þeim sama lengur en I þrjá mánuði. Dæmi um manneskju sem stjórnast 100 % afhjartanu er kona sem verður ástfangin affanga sem situr i lífstið- arfangelsi fyrir einhvern skelfilegan glæp. Hún neitar að hugsa um hvað hann gerði þvi ekkert má trufia ástina. Flestar konur sem stjórnast algjörlega afhjartanu lækn- ast afþví um þrítugt. Þessar konur lifa hratt og hafa gaman aflífinu. 30 tíl 39 stíg - Þú stjórn- ast 75 % af hjartanu, 25 % afhöföinu Þú ert fljótfær og gerir hlutina án þess að hugsa um afleiðingarnar. Þú ert líkleg til að sofa hjá á fyrsta stefnumóti og telur að lífið væri leiðinlegt efþú tækir ekki sénsa. Þú lætur stjórnast af aðstæðunum I stað þess aö stjórna þeim sjálf. Þegar hversdagsleikinn hefur tekið við áttu á hættu að gefast upp og fiýja með ein- hverjum nýjum. Þú verðurað nýta alla þlna krafta til að nota höfuðið þegar sambandið er komið á alvarlegt stig. Rödd skynseminnar verður háværari eftir þvisem þú eldist og þú ferð að gera þér beturgrein fyrir afleiðingum gerða þinna. Spurðu sjálfa þig nokkurra stórra spurn- inga. Erhann sá sem þú hélst að hann væri? Ertu raunverulega hamingjusöm? 21 tíl 29 stía - Þú stjórn- ast jafnt afhöfðinu og hjartanu Þetta er besta blandan. Hjartað dregurþig að einhverjum en hugurinn segirþér hvort þú eigir að haida sambandinu áfram og hvortþið eigið að vera saman áfram. Það er nauðsynlegt að vera ástfangin i byrjun en þegar lengra liðurer skynsemin mikitvæg, sérstaklega I rifrildum. Best er að nota hjart- að til að draga þig áfram en hugann til að spá i hvort þú sért ekki á réttri braut. Þeir sem stjórnast 50 % afhjartanu og 50 % af huganum eiga möguleika á löngum og far- sælum samböndum. Ef upp kemur togstreita eru meiri möguleik- ar á að hjartað sigri. 8 tíl 20 stíg - Þú stjórnast ------afhoföi ------------------- 75% i afhjartanu Ymu og 25 % Þúmunt ekki byrja að leita þér að karl- manni fyrr en allt annað er komið á hreint. Margar konur sem stjórnast meira afhöfð- inu missa af skemmtuninni. Efþér líkar vel viö einhvern er alltafmöguleiki á að vinátt- an þróist. Þótt þú finnir einhvern sem fellur inn i for- múluna þína gætiýmislegt komið upp á. Þótt hann fullnægi öllum þínum kröfum gætineistinn einfaldlega ekki veriö tilstað- ar. Ástin veröur aö vera grunnurinn. Ekki gera lltið úr tilfinningum þinum þótt allir dýrki hann, hann sé í frábæru starfi og liti fullkomlega út. Reyndu að ná jafnvægi og ekki leyfa höfð- inu að ráða öllu þvi þá áttu enga mögu- leika á farsælu sambandi. Minna en 7 stíg - Þú læt- ur höfuöiö stjorna öllu Hefurðu einhvern timann gert eitthvað án þess að framkvæma rannsókn á efninu fyrst? Konur sem stjórnast algjörlega af höfðinu spá I öllum atriðum varðandi mögulega maka þótt ekkert hafi enn gerst. Miklar llkur eru á að að þú hafir ferðast mikið og sért menntuð sem þýðir aðþú gerir þér grein fyrir að möguleikarnir eru margir. Passaðu þig á að missa ekki aföllu fjörinu. Með því að takmarka valmöguleikana ertu að takmarka tækifærin á að hitta einhvern. Efþú eyðir öllum timanum i að spá I hlutina verður langur tími þartil þú nærð þér i mann. Eftir þvisem viö eldumst verðum við klárari og öðlumst meira sjálfstraust. Smekkurinn og forgangsröðunin breytist. Reyndu að lifa lifinu. Hermdu eftir einhverri sem er and- stæðan við þig. Þegar tækifæri gefast ímynd- aðu þér hvað sú manneskja myndi gera i stöðunni og gerðu eins. PeteTownshend hjólar í Michael Moore eftir að hafa neitað honum um lag í Fahrenheit 9/11 Hagar sér sjálfur eins og Bush Það bættist í óvinahóp kvik- myndaleikstjórans Michaels Moore á dögunum þeg- Michael Moore Vopnaður mynda- véiogbyssu. m ar hann gagnrýndi Pete Townsh- end gítarleikara The Who fyrir að gefa sér ekki leyfi til að nota lagiö Won’t Get Fooled Again í Fahren- heit 9/11. Tovvnshend svaraði fyrir sig á heimasíðu sinni og sagði að ástæðan væri ekki sú að hann væri fylgjandi stríðinu í írak, sem hann þó viðurkenndi að hann væri, heldur frek- ar að hann treysti ekki á áreiðanleika myndar- innar og að hann teldi Moore vera yfirgangs- saman og ruddalegan. „Þegar ég var fyrst spurður, vissi ég ekkert um hvað Fahrenheit 9/11 fjallaöi. Ég hafði ekki sannfærst eftir að hafa horft á Bowling for Columbine og efaðist stórlega um áreiðanleika hennar. Þegar ég síðan fékk að vita um umfjöll- unarefnið í þessari mynd var ég 90% viss um að lagið væri ekki það rétta í myndina. Mér líkar það mjög illa að vera lagður í einelti og að vera dreginn niður í svaðið fyrir það eitt að láta þennan mann ekki fá það sem hann vill. Mér sýnist út frá því hvern- ig hann hagar sér að hann sé ekki svo ólíkur þeim valdamikla manni sem hann fjallar um í heimilda- mynd sinni. Það verður ærið verk- efni fyrir hann að sannfæra mig um að maður vopnaður kvikmynda- tökuvél geti breytt heiminum á ár- ang- ursríkari hátt en maður vopnaður gítar." Hálf öld frá dauða Fridu Kahlo Mexfkóska myndlistarkonan Frida Kahlo lést í Mexíkóborg 13. júlí árið 1954, 47 ára að aldri. Þess er nú minnst í borginni með bóka- útgáfu, myndlistarsýningum og minjagripasölu. Frida og eiginmað- ur hennar, Diego Rivera, lágu ekki á stjórnmálaskoðunum sínum og um tíma var einkar kært með henni og Leon Trotsky, sem dvaldi í útlegð í Mexíkó. Frænka Fridu, Isolda Penedo Kahlo, hyggst halda upp- boð á skartgripum hennar, sjölum og sólgleraugum og þykir mörgum sárt að vinstrisinnaður lista- maðurinn sé nú gerður að fómarlambi aug- lýsingamennsku, gróða og markaðs- hyggju. Frænkan ætlar einnig að senda frá sér nýja bók um Fridu þar sem m.a. kemur fram að Rivera hafi hjálpað henni yfir í móðuna miklu þar sem hún lá meðvitundarlaus af völdum verkja- lyfja. Kahlo lenti ung í umferðarslysi og bar þess aldrei bætur. Saknar Chandlers mest Fyrrum vininum Matt LeBlanc hefur hundleiðst við upptökur á nýja sjónvarpsþættin- um sínum því hann saknar gömlu félag- anna svo mikið. Leik- arinn segist óska þess að hann væri enn að vinna með Jenni- fer Aniston, Courteney Cox, Lisu Kudrow og David Schwimmer en hann saknar Matthew Perry, sem lék besta vin hans, langmest. „Fyrst þeg- ar við byrjuðum að taka upp horfði ég alltaf á hurðina í von um að Chandler kæmi inn." Skáldsög- ur í dag- blöðum Bandaríska dagblaðið New York Times hefur nú ákveðið að nota gamlar aðferðir til að auka auglýs- ingatekjur og draga að lesendur. Með hjálp BMW bílasala á stór New York svæðinu ædar blaðið að birta á einni viku í sérblaði, sígilda sögu F. Scott Fitzgerald, The Great Gats- by. Á tuttugustu öldinni var vinsælt að birta heilu skáldsögurnar í kaflaformi einu sinni á dag eða einu sinni í viku og margir af stærstu rit- höfundum bókmenntanna eins og Charles Dickens, Leo Tolstoy og Henry James, fengu verk sín fyrst gefin út í dagblöðum og tímaritum. Fitzgerald sem lést árið 1940 fékk tvær af sínum skáldsögum gefnar út í dagblöðum. Það voru bækurnar The Beautiful and the Damned og Tender is the Night. Talsmaður New York Times segir að blaðið muni í sumar einnig gefa út þrjár skáldsögur með svipaðri aug- lýsingaaðferð, Like Water for Chocolate eftir Laura Esquivel, Breakfast at Tiffany’s eftir Truman Capote og The Color of Water eftir James McBride.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.