Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Qupperneq 9
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 9
Fékk sér eyru
eins og Spock
Ungur Kínverji kom
fegrunarskurðlæknum í
Nanjing verulega á óvart
með því að vilja fá
eyru eins og Spock,
ein persónan í Star
Trek-þáttunum,
hefur. Hann sagðist
vera orðinn leiður á
sínum eigin eyrum
og vildi fá athyglis-
vert lag á þau. Lækn
ar reyndu að fá hann ofan af
þessu uppátæki en hann var
harður á sínu og aðgerðin
var framkvæmd.
Tilhugalíf í
verslunum
Verslunarmiðstöðvar
eru rómantískustu staðirnir
í Mexíkó þessa stundina,
samkvæmt könnun dag-
blaðsins Cronica. Þær hafa
það fram yfir aðra staði að
það er ffítt inn og þú getur
dvalið þar eins lengi og þú
vilt. Framkvæmdastjóri
stórmarkaðar í Santa
Monica segir að mikill
íjöldi af pörum hafi náð
saman í versluninni. Ein
kona sem fann ástina sína
við grænmetisborðið segir
að þetta sé kannski að fara
úr böndunum. Fólk sé farið
að mæta spariklætt í mat-
arinnkaupin.
Kaþólska kirkjan í Austurríki er í uppnámi eftir að mikið magn af barnaklámi og
myndir af ungum prestum í kynlífsathöfnum fannst í prestaskóla rétt hjá höfuð-
borginni Vin. Krafist er opinberrar rannsóknar á málinu en allt að 40.000 klám-
myndir fundust í tölvukerfi skólans
„Alltsem hefur að
gera með kynvillu og
klám á ekkert erindi í
prestaskóla."
BarnÉlám finnst i
austurmkum prestaskóla
Kaþólska kirkjan í Austurríki er í uppnámi eftir að upp komst um
mikið magn af barnaklámi og myndum af ungum prestum í kyn-
lífsathöfnum í tölvukerfi prestaskóla rétt utan við höfuðborgina
Vín. Málið komst í hámæli nú í upphafi vikunnar en mun hafa
verið á vitorði forráðamanna skólans undanfarið ár.
Alls fúndust yfir 40.000 klám-
myndir í St. Poelten-skólanum og
hafa stjómvöld sem og yfirmenn
kaþólsku kirkjunnar í landinu krafist
opinberrar rannsókn á málinu. Bisk-
upinn sem skólinn heyrir undir, Kurt
Krenn, hefur neitað að segja af sér í
kjölfar málsins og segir að um
„bamalegan hrekk" sé að ræða. Sam-
kvæmt frétt frá fréttaþjónustunni
Associated Press í Vín mun fundur
hafa verið haldinn í yfirstjóm skólans
nú á mánudag og í kjölfar hans sagði
skólastjórinn Ulrich Kuechi af sér
ásamt aðstoðarskólastjóra sfnum
Wolfgang Rothe.
Kela við kennara
Það var hið virta fréttatímarit Profil
sem greindi fyrst frá málinu og birti
myndir sem sýndu unga presta ásamt
kennurum sínum að kyssast og kela
og í nokkrum tilfellum vom þeir þátt-
takendur í kynsvalli og kynlífsleikjum.
Bamaklámið, hins vegar, kom að
mestu frá vefsíðum í Póllandi.
Hannes Jarolim, talsmaður stjóm-
arandstöðunnar í Austurríki, hefur
hvatt innanríkisráðherra landsins til
að hefja glæparannsókn í málinu hið
fyrsta. Saksóknarinn í Vín, Walter
Nemec, segir að lögreglan sé nú að
kanna tölvugögnin sem lagt hefúr ver-
ið hald á en þau sýni prestsefnin „í
klámfengnum senum með kennurum
sínum" eins og hann kemst að orði.
Hrekkur - ekki kynvilla
Austurríska biskupasambandið
hefur gefið út yfirlýsingu þar sem seg-
ir að nákvæm innri rannsókn muni
fara fram í málinu. „Allt sem hefur að
gera með kynvillu og klám á ekkert er-
indi í prestaskóla," segir meðal annars
í yfirlýsingu biskupanna.
Krenn biskup, sem þykir íhalds-
samur kaþólikki, sagði í samtali við
austum'ska sjónvarpið að hann hefði
séð myndir af kennurum skólans í
kynlífsathöfnum með nemendum
sínum en lýsti þeim sem velútfærðu
hrekkjabragði sem „hefði ekkert að
gera með kynvillu" eins og hann orð-
aði það.
Þessi léttúðugu viðbrögð hans
vöktu mikla reiði og hneykslan um allt
landið en meirihluti landsmanna er
kaþólskrar trúar. „Að safiia bama-
klámi er ekki hægt að afgreiða sem
hrekk," segir Thomas Huber, einn af
meðlimum Græna flokksins á þingi.
Aðspurður hvort hann myndi
segja af sér svaraði Krenn einfaldlega:
„Nei."
o BYRGID >
V
'íJisC®
DAVÍÐS ÖLL KVÖLD
15. - 18. Júlí
UPPLÝSINGAR í SÍMA 846 9782