Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ2004 Sport DV * Framherjinn Eiður Smári Guðjohnsen ber höfuð og herðar yfir aðra íslenska knattspyrnumenn og iþróttamenn yfirleitt hvað varðar laun. Samkvæmt heimildum DV er bilið á milli hans og annarra leikmanna enn að breikka því nýi samningurinn sem honum hefur verið boðinn og hann skrifar væntanlega undir á föstudaginn er mun betri en sá gamli. Eiður Smári með milljón á dag Eiður Smári Guðjohnsen mun skrifa undir nýjan ijögurra ára samning við Chelsea í vikulokin. Þetta staðfesti Arnór, faðir Eiðs Smára og umboðsmaður hans, og sagðist vonast til að skrifað yrði undir samninginn á föstudaginn. Samningur Eiðs Smára er mun betri en gamli samningurinn sem hann skrifaði undir í fyrra og gerir Eið Smára að langlaunahæsta íþróttamanni íslands fyrr og síðar. Arnór vildi í samtali við DV ekki tjá sig eitt aukatekið orð um launahlið samningsins og sagði hann algjört trúnaðarmál. DV hefur hins vegar áreiðanlegar heimildir fyrir því að Eiður Smári muni fá að minnsta kosti sjö milljónir í vikulaun (55 þúsund pund) en sú tala gæti farið upp í 8,5 milljónir (65 þúsund pund) ef samninga- viðræðumar ganga vel. Eiður Smári mun því tvöfalda laun sín frá gamla samningnum og verða lang- launahæsti íslenski knattspyrnu- og íþróttamaðurinn frá upphaifi. Eiður verður því með rúma eina milljón á dag, alla 365 daga ársins, laun sem hinn íslenski almúgamaður á sjálfsagt erfitt með að ímynda sér. Arnór sagði að þessi nýi samningur hefði verið á teikniborðinu nokkuð lengi og byrjað hefði verið að ræða samninginn í mars. Nýtum meðbyrinn „Þeir hafa verið mjög ánægðir með strákinn enda hefur hann sýnt mikla þolinmæði þrátt fýrir að hafa ekki alltaf fengið að njóta sannmælis hjá Claudio Ranieri. Forráðamenn liðsins voru meðvitaðir um það og það var allan tímann ljóst að hann var inni í framtíðaráformum félags- ins. Hann er á góðu skriði þessa dagana og vissulega ber þetta samningstilboð það með sér að þeir hafa mikla trú á honum. Hann er með góða stöðu og það er um að gera að nýta sér það,“ sagði Arnór sem er að ganga frá sínum fyrsta samningi sem umboðsmaður og DV hefur hins vegar áreiðanlegar heimildir fyrir því að Eiður Smári muni fá að minnsta kosti sjö milljónir í vikulaun (55 þúsund pund) en sú tala gæti farið upp í 8,5 milljónir (65 þúsund pund) ef samningaviðræðurnar ganga vel. ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrstu tilraun. Fyrsti samningurinn „Þetta er fyrsti samningurinn sem ég geng frá einsamall en að sjálfsögðu munu lögfræðingar fara yfir samninginn áður en hann verður endanlega kláraður. Ég hef unnið að mörgum samningum ásamt breskum samstarfsfélögum mínum. Það slitnaði hins vegar upp úr samstarfi okkar fyrir skömmu og því er ég einn á báti núna. Það voru engir umboðsmenn í gamia daga þannig að ég hef góða reynslu í samningamálum þó vissulega hafi þeir samningar ekki verið af sömu stærðargráðu og þessi," sagði Arnór í samtali við DV í gær. Sonurinn gullgæs Það er alveg ljóst að Arnór Guðjohnsen getur lifað hinu þokka- legasta lífi af því að koma fram fyrir hönd sonar síns á tveggja til þriggja ára fresti og semja við fótboltafélög, hvort heldur sem það er Chelsea eða eitthvað annað félag. Samkvæmt tölum frá Englandi fá umboðsmenn leikmanna yfirleitt 10% af launum íeikmanna fyrir sína vinnu. í tilfelli Amórs fær hann því 145,6 milljónir fyrir snúð sinn á þessum fjórum árum, 2,8 milljónir á mánuði eða 100 þúsund kall á dag fyrir að leiða soninn í gegnum langar og strangar samninga- viðræður. oskar@dv.is í tilfelli Arnórs fær hann því 145,6 milljónir fyrir snúð sinn á þessum fjórum árum, 2,8 milljónirá mánuði eða 100 þúsund kall á dag fyrir að leiða soninn í gegnum langarog strangar samn- inga- við- ræð- ur. Góð laun EiðurSmári Guðjohnsen skrifar væntaniega undir nýjan fjögurra ára samning við Chelsea á föstudaginn. Samkvæmt heimildum DV mun Eiður Smári fá helmingi hærri laun en áður en þau voru svo sem ágæt fyrir. Þaðþarf varla að taka það fram að hann er langlaunahæsti /slenski íþróttamaðurinn í dag. Reuters Unnið hjá stóru körlunum Valter di Salvo sá um að halda ieikmönnum Lazio f formi er Sven-Göran Eriksson stýrði liðinu. Hann mun gera silkt hið sama hjá Man. Utd þar sem Sir Alex Ferguson er knattspyrnustjóri. Man. Utd ræður manninn sem David Beckham sagði ástæðu þess að hann var ekki í nógu góðu formi á EM Kemur United í form en ekki Becks Sir Alex Ferguson, knattspymu- stjóri Man. Utd, réð í gær líkams- ræktarþjálfarann Valter di Salvo til félagsins en Salvo þessi komst í heimsfréttirnar fyrr í sumar er David Beckham kenndi honum um að vera ekki í nógu góðu formi á EM. Þessi ákvörðun Fergusons er kjaftshögg fyrir Beckham enda gaf Beckham þá einu ástæðu fýrir slöku formi á EM að Di Salvo hefði ekki unnið vinnuna sína. Það er Carlos Queiros að þakka að Di Salvo fékk starfið hjá United en Queiros var verulega ánægður með störf hans hjá Real Madrid er hann þjálfaði liðið í fyrra. Queiros var reyndar rekinn frá Real eftir tímabilið en Ferguson bauð honum starf aðstoðarmanns hjá United en Queiros gegndi því starfi áður en hann fór til Real. Di Salvo hefur reyndar verið í sárum eftiryfirlýsingu Becks í sumar en nýja starfið ætti að hressa hann við. Lélegur atvinnumaður Það er óhætt að segja að þessar yfirlýsingar Beckhams eftir Portú- gal leikinn hafi vakið athygli en hann sagði orðrétt að hann hefði verið í miklu betra formi hjá United. Þessi yfirlýsing fór ekki vel í Queiros sem ásakaði Beckham í kjölfarið um að vera lélegur atvinnumaður sem leitaði alltaf að ódýrum afsökunum til þess að hylma yfir lélegt líkamsástand. Meira að segja Luis Figo, félagi Beckhams hjá Real Madrid, var hissa á þessari afsökun Beckhams og sagði hana reyndar vera tóma vitleysu. Figo benti á að hann hefði æft nákvæmlega eins og Beckham allan veturinn en samt hefði hann verið í toppformi á EM. Di Salvo er ítalskur og er mikils virtur í heimalandi sínu fyrir að koma sífellt með nýjar hugmyndir og að þora að innleiða eitthvað nýtt í líkamsþjálfun knattspyrnumanna. Til þess notar hann nýjustu tækni og á því var hann byrjaður er hann sá um að halda mönnum í formi hjá Lazio en þá stýrði Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, félaginu. henry@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.