Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2004, Blaðsíða 19
DV Sport MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLl2004 19 íhier'o ipgswpjjpggsw f»ví Klárir í slaginn Pat Fen/on sést hér I aulu vesti aðstoða leikmenn sína á skotæfingu á KR-vellinum. Hann kveðst hæfilega bjartsýnn fynr leik- DV-myna GVM K’>.i ■H||p ina gegn KR-ingum. KR tekur á móti írska liðinu Shelbourne í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. DV Sport tók tal af Pat Fenlon, knattspyrnustjóra Shelbourne. Fenlon hefur verið á landinu frá því um helgina þar sem hann fylgdist með leik KR og Fylkis í Landsbankadeildinni. Ætlum að nyta okkur veikleika KR-inga „KR eru mjög svip- aðir að getu og ég hafði búist við og það eru nokkrir mjög góðir einstak- lingar íliðinu. En þeir hafa sínar „Ég býst við tveimur jöfnum leikjum og tel bæði lið eiga helm- ingsmöguleika á að komast áfram í næstu umferð. KR er með gott lið en það er mikilvægt að við náum að skora og ef við náum því tel ég okkur vera í góðum málum fyrir seinni leikinn á frlandi," segir Pat Fenlon, framkvæmdastjóri írska liðsins Shel- bourne sem KR-ingar taka á móti á Laugardalsvellinum í kvöld. Shelbourne hefur verið besta lið írlands um árabil og er sem stendur langefst í úrvalsdeildinni í landinu. Liðið er eingöngu skipað atvinnu- mönnum og jafnvel þó að írsk knattspyrna sé ekki hátt skrifuð í Evrópu má gera ráð fyrir að KR-rng- ar þurfi að sýna allar sína bestu hlið- ar í leikjunum gegn Shelbourne ætli þeir sé að fara áfram. DV Sport leit við á æfingu hjá lið- inu í vikunni og ræddi við Fenlon, sem hefur verið hjá Shelbourne ( ails átta ár; fyrstu fimm sem leik- maður liðsins en síðustu þrjú sem knattspyrnustjóri. Þó að Fenlon hafi verið í fullu fjöri á æfingunni sem liðið átti á KR-vellinum á þriðjudag, þá spilar hann ekki með liðinu og hefur aldrei gert á sínum stjóraferli. „Nei, líkaminn er langt ffá því að leyfa mér það," segir Fenlon hlæj- andi, sem er nú samt ekki nema 35 ára gamall. Það var greinilega mjög gaman hjá leikmönnum liðsins á æfingunni sem DV Sport leit inn á hjá liðinu í vikunni, mikið grín og og mikið glens og greinilega létt yfir hópnum. „Okk- ur þykir skemmtilegt héma á íslandi og við hlökkum mikið til leiksins. Þessi leikmannahópur hefur verið nánast óbreyttur sl. þrjú ár, menn þekkjast vel og inn á milli em grallar- ar sem er ekkert heilagt. Það er ailtaf mikið hlegið á æfingum okkar." Sé möguleika í KR-liðinu. Fenlon var staddur á KR-velhn- um um helgina og fylgdist með leik KR og Fylkis, en lokatölur þar urðu sem kunnugt er 1-1. Þá gerði Fenlon sér einnig ferð á leik FH og KA. „Af því sem ég hef séð em gæðin í ísl- enskri knattspyrnu mjög svipuð þeim sem við höfum á írlandi. Ég býst við tveimur mjög erfiðum leikj- um gegn KR-ingum.“ Hvað fannst þér um KR-liðið? „Þeir em mjög svipaðir að getu og ég hafði búist við og það em nokkrir mjög góðir einstaldingar í liðinu. Við vomm einnig með njósn- ara í leiknum þeirra gegn FH í síð- ustu viku og þá léku þeir með annað leikkerfi en gegn Fylki. Svo þetta er greinilega fjölbreytt lið og verður forvitnilegt að sjá hvernig þeir spila gegn okkur. En allir stjórar geta séð veikleika í öllum liðum. Ég er viss um að þjálfari KR sér hvar við erum veikastir alveg eins og ég sé ýmsa möguleika gegn KR sem við ætlum að prófa í leiknum. Þeir hafa sínar veiku hliðar og þær ætlum við að nýta okkur. Ég vil samt ekkert fara nánar í hverjir þeir veikleikar em.“ Hvemig munuð þið fara inn í leikinn? „Við fömm í leikinn til að vinna hann. Það er ekki í eðli míns liðs að spila varnarleik - að fara inn í leiki með því hugarfari að verja stigið sem við höfúm áður en leikurinn hefst. Við horfum til leiksins eins og um venjulegan deildarleik sé að ræða og við munum spila okkar bolta. Við emm miklu meira sóknar- veiku hliðar og þær ætium við að nýta okkur." lið en varnarlið og ætlum að reyna að skora mark á útivelli. Við erum með fljóta vængmenn og marka- hæstu menn írsku deildarinnar svo að við eigum að geta skorað mörk.“ Býst við hörðum slag Shelboume verða án þriggja lyk- ilmanna í leiknum gegn KR, manna sem „em ávallt í byrjunarliði okkar" eins og Fenlon orðar það. „En ég veit að KR-ingar em einnig án sterkra manna svo að það virðist vera jafnt með liðum hvað það varðar. KR hafa góða reynslu af Evrópukeppni, em meistarar síðustu tveggja ára hér á íslandi og ég veit til þess að þeir hafa verið að spila undir getu það sem af er tímabilinu. Við emm klárlega að fara að spila við hörkulið," segir Fenlon. Leikurinn hefst kl. 20 í kvöld og fer fram á Laugardalsvellinum. Síð- ari leikurinn fer fram á írlandi að viku liðinni. vignir@dv.is „Við förum í leikinn til að vinna hann. Það er ekki í eðli míns liðs að spila varnarleik og við ætlum að reyna að skora mark á útivelli".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.