Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Side 9

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Side 9
vesturlandi fyrir um 650 árum. Þegar og ef eldvirkni byrjar þar aftur, þarf úrkoman að aukast að því marki sem ríkti fyrir lok 14. aldar. Það mundi taka sinn tíma og veðurþjónusta mundi fylgjast með alvarlegri úrkomuaukn- ingu. Hún mundi væntanlega standa yfir í ár eða aldir. Virkni mundi svo væntanlega hefjast í Brennisteinsfjöll- um, þar sem henni lauk á 14. öld. Og þetta svæði er í 700 til 800 metra hæð norður frá Kieifarvatni. Engin yfirvof- andi hætta ógnar úr þeirri átt. Einstöku menn lýsa því yfir í dag- blöðum, að búast megi við eldgosi hvenær sem er einhversstaðar á fyrrum eldvirkum svæðum í nánd við þéttbýl svæði, t.d. Reykjanesi. Þettaeru getgát- ur, sem ekki styðjast við fræðilegar rök- semdir. SMÁSKJÁLFTARUNUR Á ELDSTÖÐVUM OG HVERA- SVÆÐUM Á ýmsum eldstöðvum, eins og t.d. í suðaustanverðum Mýrdalsjökli (Kötlu- svæði) eru algengar smáskjálftarunur af stærðunum 2—3 Richter-stig. Slíkar smáskjálftarunur eru stundum túlkaðar sem aðdragandi eldgosa og geta og verið það. Aðrar slíkar runur geta stafað af sprengisuðu í goshver. Loks má gera ráð fyrir að með öðrum eða báðum þessara flokka megi skýra svokallaða þrýsti- púlsa eins og þeir koma fyrir við gufu- virkjun á Kröflusvæði, og virðist sprengisuða eiga betur við en fyrri tilraun mín til skýringar á þrýstipúlsum á Kröflusvæði (smb. TVFÍ 65. árg. 4. h. 1980). Um sprengisuðu í goshver er Geysir í Haukadal gott dæmi. Suðan kemur þá sem sprenging eftir um 5—6° yfirhitun. Skjálfti kemur, þegar vatns- massinn, sem lyftist, fellur aftur niður á vatnsflötinn. Áætlun á lyfta vatnsmass- anum og rishæðinni, bendir til að skjálftar séu sambærilegir við smá- skjálftana í Kötlurununum, og séu þá ekki endilega aðdragandi eldgoss. Hins vegar má benda á dæmi um hið gagn- stæða, og átti það sér að vissu leyti stað um eldgosið í Öskju 1961. Þar sást fyrst, að hveralína með N—S stefnu var farin að myndast. Mjög öflug gufugos rifu síðan upp lausagrjót og stækkuðu með því vídd sprengigíganna, uns línan, sem þeir mynduðu, varð það veik, að hún gaf sig. Þó ekki þannig að hún breyttist í hraunflóðasprungu, heldur flæddi hraun upp um venslaða (konjúgeraða) AV-sprungu, sem virðist því hafa opnast dýpra en NS-sprungan, sem er þó venjulega stefnan á gossprungum á Norðurlandi. ÁHRIF NORÐANÁTTAR Á SUÐURSTRÖNDINA Hér mætti bæta við atriði, sem endurspeglar veðurfar, en það er stærð öldunnar sem berst að ströndinni. Stór- ar öldur aka sandi og möl að strönd, svo að strandlínan færist fram, en smáar öldur tæra úr ströndinni, svo að strand- línan færist innar. Hafaldan við Suður- ströndina er nú á tímum alla jafna af SA eða SV og flytur efni langs með strönd- inni. En við langvarandi norðanátt á Suðurlandi tærir aldan ströndina, og af því getur leitt veruleg hörfun strand- línunnar. Fróðlegt dæmi um þetta er saga kirkjunnar að Mið-Arnarbæli aust- an við (fyrrum) eystra mynni Holtsóss. Aðstaða til útróðra virðist framan af hafa verið góð þarna við innsiglinguna í Holtsós, og þarna var nokkur byggð og kirkja. Til er máldagi hennar, talinn vera frá 1179, og virðist sjór þá ekki vera farinn að ganga á landið. En að því kemur þó brátt, og er kirkjan flutt und- an sjó um 1340, að talið er (8). Þetta má túlka sem þráláta norðanátt upp úr miðri 12. öld, en það er í samræmi við kalt veðurfar um og eftir 1100, eins og Heklugosið um 1104 ber og vitni um. Á 19. öldinni ber ásókn sjávar á ströndina vitni um norðanátt, en þá eru til beinni heimildir um tiltölulega kalda veðráttu. BREYTILEIKI VEÐURFARSINS Varla þarf að undirstrika hvað veður- far er breytilegt hér á landi. Veðurstofa íslands notar sem viðmiðun meðaltöl skeiðsins 1931 —1960, hvort sem um er að ræða frávik árs eða ákveðins mán- aðar. Fjöldi áranna, sem meðaltalið er byggt á, eða frávik frá þvi, er til marks um breytileika veðursins. Auðvitað hefur og veðurfar verið mjög breytilegt hér á fyrri öldum, þótt framvindan hafi verið vissum megin- reglum háð. Slíkur breytileiki er hins- vegar alltof óreglulegur til þess að unnt sé að segja til um hann í einstökum dráttum. Aðeins meginatriði framvind- unnar er hægt að rekja. TILVITNANIR (1) Trausti Einarsson, 1977: Problems in Geology and Geophysics, Part I, Greinar VI, Vís. ísl. p. 1 —139. Sjá aðallega kafla III, The time correlation between climatic periods and volcanism and seismicity of Iceland. (2) Trausti Einarsson, 1978: Vatnsþrýstingur í lóð- réttum sprungum og gjám. TVFÍ 63. árg. 2. hefti. (3) Haukur Jóhannesson, 1978: Þar var ei bærinn, sem nú er borgin. Náttúrufr. 47 (1947) p. 129—204. (4) Þorvaldur Thoroddsen, 1925: Die Geschichte der islándischen Vulkane. Kbh. Danska Vísindafélagið. (5) Sigurður Þórarinsson, 1974: Saga lands og lýðs. Sambúð lands og lýðs í ellefu aldir. S. 29—97, Bókmenntafélag og Sögufélag. (6) Þorleifur Einarsson, 1968: Jarðfræði: Saga lands og bergs. (7) Guðmundur Kjartansson: Hekla, Árbók Ferðafél. ísl. 1945, útg. 1946, s. 129. Kafli um jökla á Heklu, p. 129. (8) Trausti Einarsson, 1966: Suðurströnd íslands og myndunarsaga hennar, s. 12. Tímarit Verk- fræðingafélags íslands. Veitt aöstoð: Sveinbjörn Björnsson prófessor og Markús Á. Einarsson veðurfræðingur lásu upphafsgerð handrits og bentu mér á endurbætur. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Ennfremur vil ég geta þess, að heimildasafnið varðandi Vatnajökul, sem Sigurður Þórarinsson prófessor leggur fram í grein sinni í Sögu Islands, kom sér vel og sparaði mér tímafreka heimildaleit. TÍMARIT VFÍ 1982 — 57

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.