Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Qupperneq 14
ætti þessi verðmunur ekki að fara yfir
50%, þ.e. að stóriðjan greiði orkuverð
sem nemur a.m.k. 65% af verði til
almenningsveitna. Þetta er m.a. dregið
upp á 4. mynd.
STAÐSETNING MEIRIHÁTTAR
IÐJUVERA
Á vegum iðnaðarráðuneytisins hefur
frá því haustið 1980 starfað svokölluð
Staðarvalsnefnd um iðnrekstur, sem
fékk það hlutverk að kanna, hvar helst
komi til álita að reisa iðjuver í tengslum
við nýtingu á orku- og hráefnaauðlind-
um landsins. Auk ráðuneytisins eru í
nefndinni fulltrúar tilnefndir af
Náttúruverndarráði, heilbrigðisráðu-
neyti, byggðadeild Framkvæmdastofn-
unar og Orkustofnun, en verkefnisstjóri
ráðinn af nefndinni hefur verið Pétur
Stefánsson, verkfræðingur. Á vegum
þessarar nefndar hefur þegar verið
unnið mikið brautryðjendastarf og
verið haft samband við fjölmarga aðila,
m.a. sveitarfélög víða um land.
Nefndin hefur unnið annars vegar að
almennum athugunum á forsendum
fyrir meiriháttar iðnaði á fjölmörgum
stöðum á landinu og hins vegar að sér-
stökum athugunum vegna einstakra
iðnaðarkosta samkvæmt beiðni ráðu-
neytisins.
Ég vil aðeins minna á verkefni
nefndarinnar með því að bregða hér
upp myndum 5 og 6 er snertir starfssvið
hennar, en um þessar mundir er nefndin
að ljúka skýrslu um almennar athuganir
á sínum vegum og í sumar sendi nefndin
ORKUFREKUR IÐNAÐUR
MEGINFORSENDUR
STAÐARVALS
VINNUMARKAÐUR
íbúafjöldi, atvinnuskipting,
vinnusókn, ástand og horfur
HAFNARSKILYRÐI
hafnir og aðstaöa til hafnar-
gerðar fyrir skip stærri en 4000
DWT
LANDRÝMI
verksmiðjulóð, þróunarmögu-
leikar byggðar
ORKA
fjarlægð frá meginflutningskerfi
fjarlægð frá stórvirkjunum
5. mynd.
STADIR ■
© HELGUVÍK
© VOGASTAPI
© vatnsleysuvIk
© straumsvIk
© GELOINGANES
© GRUNDARTANGI
© iarsk6gsströno
© ARNARNESHREPPUR
© GLÆSIBÆJARHR.
© þorlKkshöfn
62 — TÍMARIT VFÍ 1982