Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Page 19

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Page 19
William Thomas Möller (V 1982), f. 21. febr. 1954 í Rvík. Foreldrar Agnar Möller skrifstofumaður þar, f. 3. des. 1929, sonur Will- iams Thomasar Möllers póststjóra í Stykkishólmi og kona hans Lea Möller, f. 4. jan. 1929, dóttir Lárusar hafnarvarðar í Stykkishólmi Elíassonar. Stúdent VI 1974, próf í hag- og rekstursverkfræði frá TU Berlin 1981. Verkfr. i kerfisþróunardeild IBM í Berlin 1981. Forstöðumaður flutningatæknideildar Eimskipa- félags íslands hf í Rvík frá 1981. Maki 7. ág. 1976, Bryndís A/aría, f. 27. febr. 1954 í Rvík, Tómasdóttir Péturs fjármálastjóra Skipaútgerðar ríkisins í Rvík Óskarssonar og konu hans Karitasar Markúsdóttur E. Jensen. Barn Tómas Möller, f. 23. mars 1979 í Berlin. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 15. febr. 1982. H. G. frá 1982. Sigurður Lárus Hólm Guð- mundsson (V 1979) f. 28. maí 1955 í Stykkishólmi. Foreldrar Guðmundur Karlsson og Jóhanna, f. 16. sept. 1926, Lárenzinusdóttir Michaels sjómanns í Stykk- ishólmi Jóhannessonar. Stúdent MR 1975, próf í byggingaverkfræði frá HÍ 1979 og frá DTH í Khöfn 1981. Verkfr. hjá Lands- virkjun sumarið 1979, hjá Orkustofnun 1981—82 og hjá Vatnaskilum hf í Rvík Maki 12. apríl 1980, Jóhanna, f. 13. júní 1954 á Ólafsvík, Bárðardóttir ökukennara þar D. Jenssonar og konu hans Áslaugar Aradóttur Bergmanns sjómanns þar Einarssonar. Barn Jóhann Ari, f. 16. des. 1980 í Khöfn. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 1. mars 1982. H.G. Gautur Þorsteinsson (V 1981), f. 24. mars 1958 í Rvík. Foreldrar Þorsteinn skrifstofumaður í Kópa- vogi, f. 6. okt. 1928, Guð- jónsson húsvarðar Eiríks- sonar og kona hans Stein- gerður, f. 7. júní 1928, Þor- steinsdóttir bónda og rithöf- undar á Úlfsstöðum, Hálsa- sveit, Borg., Jónssonar. Stúdent MT 1977, próf í byggingaverkfræði frá HÍ 1981. Verkfr. hjá Almennu verkfræðistofunni hf. í Rvík frá 1981. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 1. mars 1982. H. G. Sigráa Helgasóttir, f. 11. mai 1945 í Rvík. Foreldrar Helgi Jósep kennari við Stýrimannaskólann þar, f. 17. nóv. 1915, Halldórsson bónda á Kjalvararstöðum í Reykholtsdal Þórðarsonar og kona hans Guðbjörg, f. 17. okt. 1920, Guðbjarts- dóttir bónda að Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi Kristj- jánssonar. Stúdent MR 1965, B.Sc. Hons. próf í stærðfræði og tölfræði frá The University og Liverpool 1969, M.Sc. próf frá sama skóla í tölfræði og tölvufræði 1976. Sérfr. við Raunvísindastofnun háskólans og síðar Reiknistofnun háskólans 1974—80. Sérfr. við Rann- sóknastofnun landbúnaðarins frá 1977. Ritstörf: Undirstöðuatriði Fortran IV málsins, kennslubók, Reiknistofnun háskólans 1976 og 1981, Mixed Grazing on Lowland Bogs in Iceland, Proceedings of Workshop on Mixed Grazing, Galway, Ireland 9.—10. sept. 1980, bls. 20—31. Uppgjör beitartilraunanna, Ráðunautafundur 1981, bls. 9—12, útg. Búnaðarfélag íslands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Maki 7. okt. 1967, Ari Arnalds rafmagnsverkfr., f. 15. des. 1944 í Rvík, sonur Þorsteins Arnalds framkvæmdastjóra þar og konu hans Guðrúnar Arnalds dóttur Hallgríms A. Tulin- íusar. Börn 1) Þorsteinn, f. 5. sept. 1972 í Edmonton í Kanada, 2) Guðbjörg Halla, f. 24. febr. 1982 í Rvík. Sigrún og bræðurnir Guðbjartur og Sigfús Örn Sigfússynir verkfræðingar eru systrabörn. Sigrún er systir Áslaugar konu Nicholas J. G. Hall verkfr. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 1. mars 1982. H. G. Gísli Georgsson (V 1982), f. 27. des. 1954 í Rvík. For- eldrar Georg framkvæmda- stjóri þar, f. 25. apríl 1913, d. 20. febr. 1979, Lúðvíks- son Sigurðar útgerðarmanns á Norðfirði Sigurðssonar og kona hans Guðlaug Lára, f. 11. júlí 1920, Jónsdóttir skipstjóra í Rvík Magnús- sonar. Stúdent MR 1974, próf í eðlisfræði frá HÍ 1978, próf í eðlisverkfræði frá DTH í Khöfn 1981. Verkfr. í eðlis- fræði- og tæknideild Landspítalans í Rvík frá 1981. Maki 21. júlí 1979, Erla Sólveig fótasérfræðingur, f. 16. júní 1957 í Rvík, Óskarsdóttir Lárusar húsgagnasmiðs þar Ágústssonar og konu hans Elínar fulltrúa Kjartansdóttur. Gísli er bróðir Lúðvíks S. Georgssonar, eðlisverkfræðings, en þeir bræður og Bergsteinn Gizurarson verkfr. eru systkina- synir og þeir bræður og Björn Ingi Sveinsson verkfr. eru systrasynir. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 1. mars 1982. H.G. TÍMARIT VFÍ 1982 — 67

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.