Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Síða 20

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1982, Síða 20
Guðjón Þorkelsson, f. 29. júlí 1953 í Rvik. Foreldrar Þorkell múrari þar, f. 26. febr. 1924, Guðjónsson bónda Jóhannssonar og kona hans Pálína, f. 10. apríl 1925, d. 18. nóv. 1977, Bergsveinsdóttir bónda í Gufudal, Gufudalssveit, Finnssonar. Stúdent MT 1973, próf í líffræði frá HÍ 1977, M.Sc. próf í matvælafræði frá University of Leeds 1981. Aðstoðarsérfr. á Rann- sóknastofnun landbúnaðarins 1977—80 og sérfr. á sama stað frá 1981. Maki 30. ág. 1980, Helga kennari, f. 24. okt. 1955 í Rvík, Sigurmundsdóttir Jónssonar og konu hans Eddu Kristjáns- dóttur. Barn Sigurmundur, f. 21. febr. 1981 í Rvík. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 15. mars 1982. H. G. Friðrik Ólafsson (V 1982), f. 24. júlí 1953 á Akranesi. Foreldrar Ólafur Jafet skip- stjóri og netagerðarmeistari í Rvík, f. 26. nóv. 1925, Elíasson skipstjóra Bene- diktssonar og kona hans Jóna Ágústa fatahönnuður, f. 8. júní 1924, Viktorsdóttir verkstjóra Björnssonar. Stúdent VÍ 1975, próf í byggingaverkfræði frá HÍ 1982. Verkfr. í Verkfræði- stofu Stefáns Ólafssonar hf. frá 1982. Maki 26. des. 1982, María Múller hjúkrunarfræðingur, f. 31. maí 1953 í Rvík, dóttir Leifs H. Múller skrifstofumanns þar og konu hans Birnu Sveinsdóttur skrifstofustjóra hjá Pósti og síma í Rvík. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 15. mars 1982. H. G. Sigurður Magnús Magnús- son, f. 12. nóv. 1953 í Rvík. Foreldrar Magnús fram- kvæmdastjóri þar, f. 28. júní 1908, Magnússon Magnússonar og kona hans Kristín Thorarensen, f. 16. ág. 1908, dóttir Boga Thor- arensens. Stúdent MH 1973, cand. scient. próf í eðlisfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1981. Forstöðumaður Geislavarna ríkisins frá 1981. Maki 7. sept. 1974, Dröfn meinatæknir, f. 11. febr. 1953 í Rvík, Guðmundsdóttir skipstjóra þar Ibsens og konu hans Sesselju ritara Guðnadóttur. Barn Sesselja, f. 7. maí 1981 í Khöfn. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 29. mars 1982. H. G. Haukur Garðarsson (V 1979), f. 9. ág. 1954 á Tumastöðum í Fljótshlíð, Rang. Foreldrar Garðar skógarvörður á Selfossi, f. 22. nóv. 1919, Jónsson dýralæknis þar Pálssonar og kona hans Móeiður, f. 12. maí 1924, Helgadóttir versl- unarmanns frá Birtingaholti Ágústssonar. Stúdent MR 1974, próf í byggingaverkfræði frá HÍ 1979 og frá DTH í Khöfn 1982. Kennari við Gagn- fræðaskóla Akureyrar 1974—75. Verkfr. við virkjun Hrauneyjafoss 1980 og í Verkfræðistofu Skúla Jóhannssonar frá 1982. Maki 5. des. 1981, Ragnhildur Guðrún hjúkrunarfræðing- ur, f. 28. ág. 1951 í Rvík, Guðmundsdóttir sölustjóra í Lands- smiðjunni Finnbjörnssonar og konu hans Jónínu Þorsteins- dóttir prófasts í Vatnsfirði, ís. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 29. mars 1982. H. G. Birgir Jónsson (V 1982), f. 28. maí 1946 í Stykkishólmi. Foreldrar Jón Trausti aðal- bókari í Rvík, f. 9. febr. 1920, Kárason formanns í Presthúsum, Vestm., Sig- urðssonar og kona hans Bjarghildur Soffia blaða- maður, f. 28. maí 1920, Stefánsdóttir Lýðs náms- stjóra í Rvík Jónssonar. Stúdent MR 1966, B.Sc. Hons. próf í jarðfræði frá University of Manchester 1969, M. Sc. próf í mann- virkjajarðfræði frá University of Durham 1971. Mannvirkja- jarðfræðingur hjá Raforkudeild, síðar Vatnsorkudeild Orku- stofnunar frá 1971. Maki 14. sept. 1968, Dagrún viðskiptafræðingur, f. 6. mars 1946 í Eyvindarmúla í Fljótshlíð, Rang., Þórðardóttir bónda þar Auðunssonar og konu hans Njólu Jónsdóttur. Börn 1) Inga Guðrún, f. 10. júlí 1968 í Rvík, 2) Hjalti, f. 29. mars 1973 s.st. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 7. apríl 1982. H. G. 68 - TÍMARIT VFÍ 1982

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.