Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2004, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. JÚU2004 Fréttir DV Tveir nýir staðir í Eyjum Fyrir fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær lágu þrjú bréf frá sýslumannin- um í Vestmannaeyjum vegna óska um veitinga- leyfi. Tvö þeirra voru vegna nýrra veitingastaða en það þriðja frá ÍBV vegna þjóð- hátíðar. Bæjarráð sam- þykkti leyfin fyrir veitinga- staðina Bjössabar og Dríf- andann tímabundið tii eins mánaðar. Athygli vekur að Bjössabar og Drífandinn eru staðsettir hlið við hlið á Bárustíg 1 og 2. Eyjar.net greina frá. Stuldur í sundlaug Um miðjan dag á laugardag tilkynnti kona um þjófnað, en hún var stödd í Sundhöllinni við Barónstíg. Konan fór frá búningsklefa tU laugar en snéri við eftir um 10 mínútur. Þá kom í ljós að brotist hafði verið inn í búningsskáp konunnar og þaðan stolið þrem myndavélum og tveim greiðslukortum ásamt veski. Áað rífa Austur- bœjarbíó? Heimir Már Pétursson upplýsingafulltrúi „Nei, Austurbæjarbíó á aö fá aö standa. Það er alltoflítið eftir afhúsum í borginni sem eiga einhverja sögu. Þeim hef- ur fækkaö mikiö undanfarin ár. Borgin hefur ekki efni á aö missa enn eitt sllkt né hefur miðbærinn sem slíkur efni á að tapa þeim menningarverð- mætum sem eru fólgin I Aust- urbæjarbíói." Hann segir / Hún segir „Mín skoðun er sú að eigi að vernda húsiö. Ég tel að í tilfell- um sem þessum sé það sorg- legt ef stundarhagsmunir fái að ráða þegar menningar- söguleg verðmæti eru í húfi. Austurbæjarbíó á sérmerki- lega sögu vegna allra þeirra tónieika sem þarhafa verið haldnir, klassískir, jass, rokk og allt þar á milli. Mjög margir borgarbúar eiga ógleyman- legar minningar úr þessu húsi og þvl á það að fá að standa." Kolbrún Halldórsdóttir aiþingismaður Grundvallarágreiningur er milli Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða, og Hannesar Smárasonar stjórnarformanns um hvert félagið eigi að stefna og er tíma- spursmál hvenær allt fer upp í loft. Hannes og Jón Helgi Guðmundsson, fyrrver- andi tengdafaðir hans, eru á öndverðum meiði í kjölfar skilnaðar Hannesar og Steinunnar, dóttur Jóns Helga. Hannes vill afskrá félagið af markaði og búta það niður en stjórnendur vilja halda áfram á sömu braut og undanfarið. Hjónaskilnaður kallar fram uppnjör hjá Flunleiöum Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, gæti misst helminginn af eignarhlut sínum í félaginu þegar skilnaður hans og Steinunnar Jónsdóttur gengur í gegn. Þá fengi Jón Helgi Guð- mundsson, faðir Steinunnar, yfirráð yfir hlutnum og næði með því ráðunum í stjórn félagsins. Ef svo færi yrði Hannes að gefa upp á bátinn áætlanir um að taka Flugleiðir af markaði og selja öll hlutdeildar- og dótturfélög. Mikil togstreita er milli æðstu stjórnenda Flugleiða um það hvert fýrirtækið eigi að stefna. Hannes Smárason stjórnarformaður og Sigurður Helgason forstjóri eru á öndverðum meiði og geta illa unn- ið saman. Jón Helgi Guðmunds- son, forstjóri BYKO, keypti ráðandi hlut í Flugleiðum fyrr á árinu, með Hannesi, sem þá var tengdasonur hans, stendur með Sigurði. Stjórn félagsins skipt- ist í ólíkar fylkingar og kaldhæðni örlaganna hagar því þannig að fyrrverandi tengdafeðgar, og nú- verandi viðskiptafélagar, standa í forystu hvors hóps fyrir sig. Hannes stokki upp nú eða aldrei Heimildarmaður sem þekkir til sagði að eina leiðin fyrir Hannes ef hann vildi ná fram uppstokkun á Flugleiðum, væri að skipta um stjórnendur í félaginu á meðan hann hefði enn stjórnina í eig- endahópnum. Það þýðir að Hann- es yrði að nota stjórnarmeirihlut- ann sem hann hefur nú, til að reka Sigurð Helgason forstjóra. Annar heimildarmaður efast um að Hannes hafi þann styrk sem | þyrfti til að knýja fram breyting- ar. Hugmyndir Hannesar eru þær að taka Flugleiðir af mark- aði, búta það niður og gera flugreksturinn að hagkvæmri ™ rekstrareiningu. Það myndi þýða að allsherjaruppstokkun yrði á félaginu, dótturfé- lög og hlutdeild- arfélög seld, og stefnunni breytt frá því sem fyrri stjórnir og núverandi stjórnendur hafa markað á undan- fömum árum. Hannes mun halda því fram að gengi bréfa í félaginu gæti hækkað mikið með því að breyta um kúrs. Forstjóri á móti uppstokkun Þessu em Sigurður Helgason og aðrir stjórnendur alfarið á móti. Þeir hafa nú eignast tíu prósenta hlut í fyrirtækinu og hyggjast jafn- vel eignast meira. Liður í því að þróa félagið áfram í samstarfi stjórnar og stjórnenda var þegar Oddaflug ehf. keypti tæplega 40 prósenta hlut í félaginu. Sá hlutur er nú um 33 prósent sem skiptist jafnt á milli tengdafeðganna fyrr- verandi. Þótt Oddaflug sé enn til sem fé- lag um hlutafjáreign Jóns Helga og Hannesar í Flugleiðum, er ein- ungis tímaspursmál um hvenær því verði skipt upp Ofaní það gæti hlutur Hannesar rýrnað um helming vegna búskipta í skilnaðarmáli hans og Steinunnar Jónsdóttur, dóttur Jóns Helga. Þegar ' þeim skiptum er lokið, * verður Jón Helgi með stærri hlut í stjórninni sín megin. íslandsbanki með Sigurði Eftir að Baugur og Feng- ur seldu sína hluti í Flugleið- um til Saxhóls og Byggingafé- lags Gunnars og Gylfa, var talað um að Hannes væri með yfir- höndina í stjórn Flugleiða. Menn hliðhollir honum urðu of- aná í kapphlaupinu um hverjir fengju að kaupa hlut- inn. Þrir sitja í Hugmyndir Hannesar eru þær að taka Flug- leiðir afmarkaði, bútaþað niðurog gera flugreksturinn að hagkvæmri rekstr- areiningu. stjórninni fyrir Oddaflug, Hannes, Jón Helgi og Hreggviður Jónsson. íslandsbanki á tíu prósenta hlut í Flugleiðum sem bankinn fékk í gegnum stóru uppskiptin í ís- lensku viðskiptalífi þegar Kol- krabbinn var leystur upp í fýrra- sumar. Vangaveltur hafa verið uppi um hvoru megin íslands- banki væri í valdabaráttunni í Flugleiðum. Benedikt Sveinsson situr fyrir hönd þessa eignarhlutar í stjórn Flugleiða. Hann var áður stjórnarformaður og stendur við bak Sigurðar Helgasonar. Bróðir Benedikts, Einar Sveinsson er enn- fremur stjórnarformaður íslands- banka. kgb@dv.is Varðskip ekki orðið diskótek eftir þriggja ára bið Draugaskipið Thor safnar hafnargjöldum Fyrrverandi varðskipið Thor ligg- ur enn yfirgefið við höfn íÆgisgarð- inum og hefur legið þar frá því í júní 2001. Skipið Thor var gert upp árið 1999 og síðan breytt í veitingastað sem stóð í Hafnarfjarhöfn um tíma við mjög takmarkaðar vinsældir. At- hafnamaðurinn Ingvar Þórðarson keypti skipið eftir að veitingarekst- urinn fór í vaskinn. Hann ætlaði að hagnast á því að senda Thor til út- landa og reka diskótek um borð. Að sögn hafnamálastjórnar er skipið 615 brúttótonn og kostar sól- arhringurinn við höfnina 4,2 krónur á brúttótonnið. Ingvar og félagar hans em því búnir að þurfa að borga um það bil 3 milljónir í hafnargjöld á þessum tíma. Skipið átti fyrir löngu síðan að fara til heitari landa og hala inn peninga. Að sögn kunnugra hefur Ingvar ekki ennþá fengið tilskilin leyfi til framkvæmdanna og því skal skipið standa þarna enn um sinn. „No komment," sagði athafna- maðurinn þegar DV spurði hann hvenær diskótekinu yrði hleypt af stokkttnum. Hann neitaði sem sagt að tjá sig nokkuð um málið. Thor Ingvar Þórðarson hefurenn ekki komiö gamla varöskipinu sínu I fjörið I heitu löndunum. í vændi á efri árum Margar vændiskonur em á aldrinum 40 til 50 ára þegar þær selja sig í fyrsta sinn. Þetta kemur fram í könnun á „nuddstofum" í í Danmörku. Fjórðungur vændiskvenna er yfir 30 ára þegarþær byrja að selja sig og töluverður fjöldi er að nálgast fimmtugsaldurinn þegar þær selja sig í fyrsta sinn. Þessar niðurstöður koma á óvart og seg- ir Hanne Petersen félagsráðgjafi að hún hefði haldið að óreyndu að því eldri sem vændiskonurnar væm því erfiðara ættu þær með að lokka kúnna til sín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.