Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2004, Qupperneq 19
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ2004 19
NBA. Hann lék alls níu leiki auk þriggja leikja gegn landsliði Kína og fékk mikið lof
mnahópi liðsins fyrir komandi leiktíð í NBA-deildinni.
leikmaður sem getur líka spilað sem
skotbakvörður og lítill framherji.
Best lék ekki mikið með liðinu í fyrra
og Harris er nýliði sem á eftir að
sanna sig á meðal þeirra allra bestu,
reyndar rétt eins og Jón Arnór.
Möguleikar okkar manns eru þannig
þó nokkrir og aldrei að vita nema að
hann verði varaleikstjómandi Dallas
á næstu leiktíð.
Jón Arnór segir að síðasta ár hafi
reynt mikið á þolrifin, allur tími var
nýttur í einstaklingsæfingar og hann
spilaði h'tið sem ekki neitt.
„Þetta var mjög erfitt og mig
langar ekki að fara inn í annað svona
ár. Og ég viðurkenni það alveg að
maður var ekki nógu glaður á
stundum. En ég vona að ég fái
sénsinn í ár þó svo að það verði
kannski ekkl þannig að ég fái eins
margar mínútur og ég vil.“
Ertu ekki bara í ofgóðu liði?
„Jú, það má segja það. Þetta
hefur verið sagt við mig áður og það
er spurning hvað
en líka mjög skemmtilegt. En nú fæ
ég smá tíma til að slappa af, fara í
sund og spila golf,“ segir Jón sem
kveðst vera kominn með golfbakteríu
á háu stigi þrátt fyrir að vera
tiltölulega nýbyrjaður.
„Ég hef verið að leika mér í þessu
með öðmm leikmönnum liðsins.
Michael Finley spilar mikið golf og ég
tók einn hring með honum. Hann
vann mig auðveldlega," segir Jón afar
hreinskilnislega. „Eg er ekki svo
góður en þetta er allt að koma."
í kringum mánaðamótin ágúst-
september hefjast síðan æfingar með
aðalliðinu á fullu og að öllu óbreyttu
verður Jón Amór í þeim hópi. Áður
en NBA-keppnisú'mabilið hefst síðan
í lok október verður komið í ljós
hvernig framtíð Jóns Arnórs hjá
félaginu verður háttað. Um hana er
ómögulegt að spá í dag.
vignir@dv.is
Það fer afskaplega
vel um mig hjá
Dallas og það væri
rosalega erfitt að
fara eitthvað
annað. En ég vil
spila og maður
verður ekki
fullkomlega
ánægður fyrr en
það gerist."
maður gerir."
Kæmi til greina að skipta um lið?
„Já, það kæmi til greina. Sam-
ningurinn minn er þannig upplagður
að Dallas myndi ekki tapa svo mikið
á því fjárhagslega að láta mig fara ef
ég vildi. En það fer afskaplega vel um
mig hjá þeim og það væri rosalega
erfitt að fara eitthvað annað. Þetta
em frábærir þjálfarar, frábærir
leikmenn og frábær borg. En ég vil
spila og maður verður ekki
fullkomlega ánægður fyrr en það
gerist," segir hann.
Undirritaður ýjaði að því að
slakara lið á borð við Los Angeles
Lakers myndi henta Jóni og hann
væri vel til þess fallinn að hafa hemil
á vandræðagemsanum Kobe Bryant.
„Nei, veistu ég held að það ráði
enginn við hann,“ segir Jón Amór og
er greinilega ekki hrifinn af
tilhugsuninni.
Kominn í golfið
Eftir erfiða töm í sumardeildinni,
þar sem liðið lék 9 leiki á 13 dögum,
er Jón Arnór kominn heim til íslands
í mánaðarfrí.
„Þetta vom tveir mánuðir þar sem
við æfðum fimm tíma á dag og
spiluðum þess á milli. Þetta var erfitt
Jón Arnór Hefur bullandi
sénst á að komast í aðallið
Dallas Mavericks eftir góða
leiki I sumardeild NBA.
Grindvíkingar gerðu góða ferð í Árbæinn og kræktu sér í mikilvægt stig
Fimm leikir Fylkis án sigurs
Fylkismenn og Grindvíkingar
skildu jafnir, 1-1, á Fylkisvelli á
mánudagskvöld. Aðstæður vom
ekki ákjósanlegar, strekkingsvindur
setti sitt mark á leikinn enda var
hann kaflaskiptur. Gestirnir vom
mun betri í fyrri hálfleik og hefðu
getað farið með meira forskot til
búningsherbergja. í seinni hálfleik
var allt annað að sjá til Fylkismanna,
sem vom rænulausir á löngum köfl-
um í þeim fyrri, og þeir fengu færin
til að klára leikinn en það tókst ekki.
Guðmundur Valur Sigurðsson
tók nýlega við Grindavíkurliðinu og
þetta var annar leikur liðsins undir
hans stjórn en báðir hafa leikirnir
endað 1-1.
„Við ákváðum að byrja með vind-
inn í bakið og pressa stíft hátt uppi á
vellinum og reyna að koma þeim að-
eins á óvart. Síðan vomm við auðvit-
að að vona að það myndi lægja með
kvöldinu en það gerðist nú ekki. Lið-
ið spilaði vel í fýrri hálfleik og við
vomm óheppnir að skora ekki nema
eitt mark. Síðan bökkuðum við of
mikið í síðari hálfleik en það var ekki
á dagskránni. Það vill þó oft gerast
nánast ósjálfrátt þegar lið er með
forskot. Ég er hins vegar ánægður
með strákana en við þurfum að fara
að klára leikina," sagði Guðmundur
Valur Sigurðsson.
Þurfum að skoða okkar mál
Þorlákur Árnason, þjálfari Fylkis-
manna, var ekki sáttur með niður-
stöðuna og sagði jafnteflin orðin
alltof mörg í sumar.
„Vindurinn hafði mikið að segja í
þessum leik en heilt á litið fengum
„Við þurfum að fara
að klára leikina."
við töluvert fleiri færi en þeir og átt-
um að kiára dæmið. Fyrri hálfleikur
var slakur hjá okkur en sá seinni
mjög góður en við þurfum nú að
setjast niður og skoða okkar mál ef
við ætlum okkur að gera alvöru at-
lögu að FH-ingum - það vantar enn
smá uppá,“ sagði Þorlákur.
sms@dv.is
Jói Kalli hjá
Leeds
Landsliðsmaðurinn
Jóhannes Karl Guðjónsson,
sem er loksins orðinn laus
allra mála hjá Real Betis, er
til reynslu hjá Leeds United,
sem féll úr ensku
úrvalsdeildinni í vor.
Jóhannes spilaði æfingaleik
með liðinu gegn Darlington
í gærkvöldi sem var ekki
lokið áður en blaðið fór í
prentun og getum því ekki
greint frá því hvemig
framganga hans var.
Ferguson
planarfrí
Alex Ferguson, ffam-
kvæmdastjóri Man-
chesterUnited, greindi
frá því í gær að hann
ætlaði að gefa nokkrum
af sínum lykilmönnum
tveggja vikna ffí í des-
embermánuði til að
forðast ofþreytu hjá
þeim í lok tímabilsins.
Fríinu verður dreift á
mismunandi tímabil í
mánuðinum til að koma
í veg fyrir að allir lykil-
mennimir verði fr á á
sama tíma. „Um er að
ræða leikmenn sem tóku
þátt í EM í Portúgal,"
sagði Ferguson er hann
greindi ffá ákvörðun
sinni.
FH - ÞÓR/KA/KS 1-1
9. umferö. - Kaplakrikavöllur -19. júll
Mörkin:
1-0 Lind Hrafnsdóttir 21.
skot úr teig Sigrfður
1-1 Guðrún Viðarsdóttir 33.
skalli úrteig frákast
Boltar FH:
Sigriður Guðmundsdóttir
Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir ©
Guðrún Sveinsdóttir @
Kristín Sigurðardóttir @
Boltar Þór/KA/KS:
Guðrún Viðarsdóttir @
MargrétVigfúsdóttir @
Alexandra Tómasdóttir @
Tölfræðin:
Skot (á mark): 9-11 (6-6)
Varin skot: Þóra 5 - Sandra 4.
Horn:11-1 Rangstöður: 0-0
Aukaspyrnur fengnar: 6-11.
BEST Á VELLINUM:
Sigríður Guðmundsdóttir, FH
K O N U R
LANDSBANKADEILD ^
Staðan:
Valur 9 8 1 0 32-4 25
ÍBV 9 6 2 1 47-7 20
KR 9 6 2 1 37-10 20
Breiðablik 9 4 0 5 19-23 12
Stjarnan 9 1 4 4 11-28 7
Þór/KA/KS 9 1 4 4 9-30 7
FH 9 §| 2 6 7-44 5
Fjölnir 9 1 1 7 4-20 4
Markahæstar
Margrét Lára Viðarsdóttir, (BV 18
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 12
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 10
Olga Færseth, IBV 10
Guðlaug Jónsdóttir, KR 8
Elín Anna Steinarsdóttir, IBV 7
Erna B. Sigurðardóttir, Breiðablik 7
Kristín Ýr Bjarnadóttir, Val 6
Erla Hendriksdóttir, Breiðablik 6