Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2004, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Ráðherrastóll
á faraldsfæti
Ráðherrastóll Eysteins
Jónssonar var sendur frá
Djúpavogi fyrir síðustu
helgi til að hægt væri að
nota hann við innsetningu
Ólafs Ragnars Grímssonar í
embætti forseta íslands. Að
því er segir á vef Djúpa-
vogshrepps er stóll Eysteins
einn af flmm gömlum ráð-
herrastólum sen enn eru
mikið notaðir við sérstakar
athafnir og heimsóknir.
Stólinn sé sá eini sem lán-
aður hafi verið út fyrir veggi
Alþingis og sé geymdur í
ráðherrastofu Eysteins í
Löngubúð á Djúpavogi.
Skriftsofa Alþingis hafi kall-
að eftir stólnum af þessu
sérstaka tilefni.
Handónýtt
Háskólasetur
Komið hefur í ljós að
hús Háskólaseturs í Sand-
gerði er svo iila farið að það
þarfnast algerrar endur-
byggingar. Samkvæmt
frumdrögum og kostnaðar-
áætíun mun endurgerð
hússins ekki kosta minna
en að byggja nýtt hús, eða
um 15 milljónir króna. Bæj-
arráð Sandgerðis samþykkti
að ráðast í framkvæmdina.
Bærinn hyggst taka lán til
að mæta kostnaði þar til
peningar fást frá ríkinu sem
greiðir leigu fyrir húsnæðið.
Dregið í
tombólu
Ástþórs
Dregið var í happdrætti
til styrktar framboði Ást-
þórs Magnússonar 30. júní
síðastliðinn. Það var lýð-
ræðishreyfingÁstþórs sem
stóð fýrir happdrættinu og
segir Ingibergur Sigurðsson
formaður hreyfmgarinnar
að dregið hafl verið úr öll-
um miðunum fimm þús-
und sem í boði voru. Ein-
ungis seldust fimmtíu mið-
ar. í aðalvinning var
Porsche-jeppi að verðmæti
fjórar milljónir og kom
hann upp á miða númer
253. „Vinningshafi jeppans
hefur ekki ennþá gefið sig
fram,“ segir Ingibergur.
Hann sagði jafnframt að
bfllinn kæmi ekki til lands-
ins fyrr en vinningshafinn
kæmi í ljós.
Fíkniefnalögreglan hefur lagt hald á þrjú kíló af sterku amfetamíni sem smyglað
var til landsins með Dettifossi. Halldór Guðmundsson skipstjóri er sleginn yfir
fréttunum, finnst sem svartur blettur hafi fallið á skip sitt og treystir þvi og trúir
að áhöfnin sé ekki viðriðin málið. Fikniefnalögreglan hafi aldrei leitað i skipinu og
þvi hljóti eitrið að hafa fundist i gámi.
Halldór Guðmundsson
skipstjóri Sleginn yfir am-
fetamínsmyglinu - blettur
fallinn á skip hans.
E&JE il #S?fira
Ásgeir Karlsson Yfirmaður fíkniefnalögr-
eglunnar þögull sem gröfin.
„Þetta er ekki gott fyrir mig eða áhöfnina. Nafn skipsins hefur
verið svert," segir Halldór Guðmundsson, skipstjóri á Dettifossi,
eftir að ljóst varð að skipið hafði verið notað til að smygla þrem-
ur kílóum af amfetamíni til landsins. Efnið mun hafa verið mjög
sterkt og í háum „gæðaflokki".
„Það hefur enginn talað við mig.
Ég hef alla mína vitneskju um þetta
mál úr fjölmiðlum. Hitt er víst að
fíkniefhalögreglan leitaði aldrei í
skipinu mér vitanlega þannig að
eftúð hlýtur að hafa fundist í gámi
sem kominn var í land. Annað er
óhugsandi," segir skipstjórinn og á
honum er að heyra að smyglmálið
leggist þungt á hann. HaÚdór vill
ekki trúa því að skipverjar eigi hlut
að máli. „Þetta eru allt gamlir félagar
og ég hefði orðið var við ef eitthvað
óeðlilegt hefði verið í gangi. Þarna
hljóta viðskiptavinir skipafélagsins
að vera að verki en það breytir ekki
þeirri staðreynd að bletturinn fellur
á skipið," segir Halldór.
Fátt um svör
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
eftiadeildar lögreglunnar, verst allra
frétta af málinu nema að am-
fetamínkflóin þrjú hafi komið til
landsins með Dettifossi: „Við erum
að rannsaka málið og gefum ekkert
upp á þessu stigi," segirÁsgeir.
- Var amfetamínið falið um borð?
„Því svara ég ekki.“
- Var það falið ígámi?
„Því svara ég heldur ekki," segir
yfirmaður fíkniefnalögreglunnar.
„Þetta eru allt gamlir
félagar og ég hefði
orðið var við efeitt-
hvað óeðlilegt hefði
verið í gangi. Þarna
hljóta viðskiptavinir
skipafélagsins að
vera að verki en það
breytir ekki þeirri
staðreynd að blettur-
inn fellur á skipið.
Döpur áhöfn
Skipverjar um borð í Dettifossi
eru miður sín vegna málsins lflct og
skipstjórinn:
„Ég veit ekkert um máhð. Þú
verður að finna einhvem annan en
mig. Ég hef ekki hugmynd um hvort
einhver í áhöfninni er viðriðinn
málið," segir Garðar Hallur Sigurðs-
son vélstjóri. Ríkharður Sverrisson
stýrimaður tekur í svipaðan streng:
„Þetta kemur mér í opna skjöldu. Og
Steinþór Hreinsson háseti deilir
áhyggjum sínum með öðmm skip-
verjum: „Ég ætla að vona að enginn
úr áhöfninni eigi hlut að máli."
Vandi allra skipafélaga
Haukur Már Stefánsson, for-
stöðumaður skipa-, rekstrar-, og
tæknideildar Eimskips, segir óþægi-
legt fyrir félagið að lenda í málum
sem þessum:
„Við búum á eyju og skipaferðir
em ein algengasta smyglleiðin til
landsins. Við emm að berjast við
þetta eins og öll önnur skipafélög.
Við verðum að taka á þessu máli
þegar í ljós kemur hvemig það er
vaxið," segir Haukur Már sem eins
og Halldór skipstjóri vissi fátt um til-
vist amfetamínsins um borð í Detti-
fossi. Haukur sagði Eimskip ráða
fólk til starfa lflct og önnur fyrirtæki
án þess að kanna sérstaklega hvort
viðkomandi hefði áður tengst fíkni-
efnum. Hins vegar væri ljóst að í
ráðningarsamningum væri gert
ráð fyrir að menn væm allsgáðir
við störf og stæðu ekki í smygli á
ólöglegum varningi.
Dettifoss er eitt af sjö skipum
Eimskips, smíðað 1995 og tekur
14.664 brúttótonn. Skipið lá í gær
við festar í Sundahöfn þar sem verið
var að lesta það fyrir næstu ferð sem
vonandi á eftir að ganga betur en sú
síðasta. Það vonar í það minnsta
Halldór Guðmundsson skipstjóri
sem stendur í brúnni, hálfbeygður
yfir tíðindum dagsins.
r-ttm i &«masaamii
New York Times íjallar um forsætisráðherra
Veikindi Davíðs í heimsfréttirnar
Heimspressan fylgist með líðan
Davíðs Oddssonar. New York Times
greinir þannig frá veikindum forsæt-
isráðherra undir fýrirsögninni:
„íslenskur leiðtogi jafnar sig eftir
skurðaðgerð" (Iceland Leader
Recuperating from Operation).
Greint er frá þróuninni i veikindum
Davíðs, allt frá því að farið var með
hann í ofboði í sjúkrabfl á sjúkrahús
þann 21. júlí vegna magakvala. í
framhaldi af því var gallblaðran fjar-
lægð og æxli greint í hægra nýra.
New York Times vitnar í Margréti
Hilmisdóttur á skrifstofu forsætis-
ráðuneytisins sem segir líta mjög vel
út með að Davíð jafni sig. í fréttinni
kemur jafnframt fram að Davíð hafi
setíð manna lengst í stóli forsætis-
ráðherra í Evrópu og að veikindi
hans hafi aftrað því að hann gæti
verið viðstaddur þriðju innsetningu
Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti
forseta Islands. Jafnframt er greint
frá því að Halldór Ásgrímsson sé nú
starfandi forsætísráðherra í fjarveru
Davíðs sem og að Halldór muni taka
við af Davíð í næsta mánuði.
Leiðrétting
í ffétt um vefldndi Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra í gær
var missagt að miltað hefði verið
tekið úr Davíð í fyrri aðgerðinni.
Það er rangt og beðist er velvirð-
ingar á þessum leiðu mistöJcum.
Davíð Oddsson Veikindi hans hafa vakið
athygli heimspressunnar en New York Times
greinir frá því að veikindi hans hafi aftrað
honum frá að vera viðstaddur innsetningu
Ólafs Ragnars Grímssonar I embætti forseta
Islands.
Hvað liggur á?
Helga Árnadóttir viðskiptaf ræðingur „Mér liggur á að kynna mínar áhersiur og fram-
boð til formanns Heimdallar; að reyna að virkja sem flest ungt fóik innan félagsins og
vinna að hugsjónum mínum um frelsi einstaklingins og minni afskipti ríkisvaldsins.
Þetta er það sem er helst á döfinni hjá mér. Nóg að gera. Svo er ég lika að bíða eftir íbúð
sem ég var að kaupa. Ætli mér liggi ekki á að flytja inn I hana."