Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2004, Síða 17
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST2004 1 7
poki frá O’NeilI kostar
til dæmis 2.990 kr. í
stað 4.990 kr. áður og
töskur fyrir yngstu
börnin kosta aðeins
890 kr. Tilboð á skóla-
töskum standa tii 10.
ágúst eða á meðan birgðir endast.
• Það er ekki of seint að skella sér í
útOegu og verslunin Útilíf stendur
nú fyrir útsölu á tjöldum. Afsláttur-
inn er frá 40% og upp í 70% og
tjöldin er að finna í Tjaldalandi við
Úmferðarmiðstöðina.
Fylgstmeð stefnumótum
Nýstárleg þjónusta er nú í boði á Englandi
fyrir fólk sem fer á stefnumót með einhverj-
um sem það þekkir ekki. Fólk skráir sig í þjón-
ustuna og laetur vita hvar stefnumótið fer
fram og síðan aftur þegar stefnumótinu er
lokið. Hafi ekkert heyrst frá viðkomandi f 72
stundir gerir fyrirtækið fjölskyldu og lögreglu
viðvart. Hugmyndin að baki þessari þjónustu
er að auka öryggi fólks, einkum kvenna, en
samkvæmt nýlegri könnun kemur f Ijós að
þriðjungur kvenna segist ekki upplýsa neinn
um „fyrsta stefnumót" með karlmanni. Kon-
um þykir það vandræðalegt, sérstaklega ef
stefnumótið reynist klúður.
I>V hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu alla virka daga.
Hvað kostar
fijótasigling?
fslenskar ævintýraferðir/
Destination lceland, Reykjavík
Sigling á Hvítá 5.900 kr.
Ævintýraferðir,Varmahlíð *
Sigling á Blöndu , 4.500 kr.
Sigling á vestari Jökulsá 4.900 kr.
Sigling á austari Jökulsá 7.900 kr.
Ferðaþjónustan Bakkaflöt,
Varmahlíð
Sigling á vestari Jökulsá 4.800 kr.
Sigling á austari Jökulsá 7.800 kr.
Flúðasiglingar, Árnesi
Sigling á Þjórsá 5.900 kr.
Sigting á Markarfijóti 7.900 kr.
Sigling áHólmsá 7.900 kr.
Bátafólkið ehf, Reykjavík
Sigling á Þjórsá 5.900 kr.
Sigiing á Markarfljóti 7.900 kr.
Sigling á Hólmsá 7.900 kr.
Sigling á Hvitá 12.500 kr.
Tilboð eru i gangi á öllum stöðum fyrir
stærrihópa.Einnig erýmislegt innifalið i
verði; nesti og sundferðir til að mynda.
Inflúensa og
geðklofi
Ef ófrfsk kona smitast af inflú-
ensu á fyrstu mánuðum með-
göngunnar aukast Kkur á því að
bamiö þjáist af geðklofa síðar á
ævinni. Þetta er niðurstaða rann-
sókna bandarískra vísindamanna.
Þeir skoðuðu sextíu og fjórar flöl-
skyldur og komust að því að
hættan á því að afkvæmið greind-
ist með geðklofa á fullorðinsaldri
jókst sjöfalt ef móðirin hafði feng-
ið flensu á fyrstu þremur mánuð-
um meðgöngunnar. Hættan jókst
hins vegar þrefalt ef móðir smit-
aðist á milli sjöttu vflcu með-
göngu og þeirrar átjándu. Hins
vegar kom í ljós að engin hætta
reyndist vera fyrir hendi ef móð-
irin smitaðist eftir flmmta mánuð
meðgöngu.
Árni Valdi Bernhöft ætlar að lifa á bústi í 30 daga. Hugmyndin að ævintýrinu kvikn-
aði vegna myndarinnar Super Size Me þar sem Morgan Spurlock lifði á McDonald’s-
fæði í 30 daga. Næringarfræðingur segir einhæft fæði af þessu tagi aldrei æskilegt.
REGLURNAR
1. Ekkert val, engar sérþarfir. Má bara
borða það sem er á matseðlinum.
2. Verður að þekkjast boð um stærri
skammta.
3. Engar afsakanir. Verður að borða
hvern hlut á matseðlinum a.m.k. einu
sinni.
4. Engin uppgjöf. Verður að borða
þrjár máltíðir á hverjum degi; morg-
un-, hádegis- og kvöldverð.
Þetta eru sömu reglur og Morgan Spur-
lock fór eftir þegar hann liföi á McDon-
ald's-fæði i 30 daga.
Árni Valdi Þegarlíða tekurátil
raunina má Valdi auk bústsins
borða heilsusamlokur og orku-
stangir og drekka ávaxtadjús,
grænmetisdjús og orkudrykki.
DV-mynd Vilhelm
9
Arni Valdi Bernhöft línuskautakennari og íshokkíleikmaður
byrjaði í fyrradag á 30 daga bústkúr en uppistaðan í bústi er
íslenskt skyr og ávextir.
„Mér lfður ljómandi vel, er svo-
lítið svangur náttúrulega, en þetta
er allt í góðum gír," sagði Árni
Valdi í gærmorgun þegar hann var
á leið í morgunmat. „Hugmyndin
að þessu ævintýri kom upp vegna
myndarinnar Super Size Me eftir
Morgan Spurlock, þar sem hann
borðaði aðeins McDonald’s-fæði í
heilan mánuð en myndin verður
sýnd hér á landi 25. ágúst. Ég var
spurður hvort ég væri til í að taka
þessari áskorun og ég sló til. Mig
langar að prófa hvernig mér líður
af bústinu og hvort ég get þetta
persónulega," segir Arni Valdi.
Hann ætlar að fylgja sömu fjórum
reglum og Spurlock fór eftir í sinni
tilraun.
Hollt fæði og óhollt
„Ég svaf svolítið lengi frameftir í
Hvort sem þú lifír á
hollu fæði eða óhöllu,
McDonald's eða bústi,
þá erþetta spurningin
um öfgarnar."
fyrradag þannig að ég
missti af morgun-
matnum. En um
tvöleytið fékk ég
mér Tropíkalbúst
og Berjabúst í
kvöldmat,"
Heilsusamlegt en alls
ekki æskilegt
Laufey Steingrímsdótt
Teiur liklegt að Árni Valdi,
þyngjast að toknum kúrni
„Þetta er auövitaö mjög heilsusamlegur matur en óneitanlega frekar ein-
hæft fæði eitt og sér,“segir Laufey Steingrímsdóttir, sviðsstjóri á Lýðheilsu-
stöð um bústkúrÁrna Valda.„Þar sem Árni Valdi ervæntanlega hraustur,
ungur maður er þó áreiðanlega ígóðu lagi fyrir hann að borðað svona í einn mánuð og hann á ef-
laust eftir að léttast töluvert og vonandi má hann við þvi. Þetta er áreiðanlega ágætismegrunarað-
ferð hjá honum, en þyngdarbreytingin verður þó varla varanleg, nema hann geri sérstakar ráðstaf-
anir eftir kúrinn. Reynslan sýnir að þyngdin feryfirleitt í fyrra horfjafnskjótt og fólk tekur upp fyrri
siði og fyrra mataræði eftir svo sérhæfðan kúr. Það hefur ábyggilega líka gerst með Spurlock sem
þyngdist á McDonald's-fæðinu. Hann hefur líkegast lést aftur þegar hann fór að lifa sínu venjuiega
lífi. Þetta er tímabundið ástand og menn leita aftur í fyrra horf/'segir Laufey.
Árni Valdi. í gær hóf hann
I svo tilraunina af krafti.
I „Ég ætla að byrja á búst-
I inu og sjá hvernig það fer í
mig og hvort ég fæ næga
! orku. Síðan fer ég í líklegast
í ávaxtadjúsinn og spelt-
brauðið eftir ein-
hverja daga en ég
ímynda mér að
þá verði ég orð-
inn nokkuð
svangur.
Sölvi Fannar
einkaþjálfari
í World Class
fylgist með mér
þennan tíma og
hann er mjög
spenntur fyrir því
að sjá hver niður-
staðan verður.
Flestum líkar vel
við bústið og finnst
það gott en það er
enginn sem hefur
prófað að lifa á því
eingöngu í 30 daga.
Hvort sem þú lifir á
hollu fæði eða óhollu,
McDonald’s eða bústi
þá er þetta spurningin
um öfgarnar. Og niður-
staðan verður bara niður-
staðan," segir Árni Valdi.