Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Page 3
DV Fyrst og fremst FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST2004 3 Ljóstvistar, örbylpr og kafbátar Glatt var á hjalla hjá Birni Agnarssyni, doktorsnema í eðlisfræði, þegar blaðamann bar að garði í byggingu Raunvísindastofnunar, VRIII, við Háskóla ís- lands. Björn vinnur að ræktun hálfleiðandi efria sem munu í fram- tíðinn nýtast í gagnageymslutækni framtíðar, örbylgjusam- skiptum og framleiðslu á bláum ljóstvistum. „Þetta hljómar kannski flókið en þetta er skemmtilega ein- falt,“ segir Bjöm og útskýrir: „Það sem við erum að gera er að rækta örþunnar húðir sem hafa ákveðna eðlisfræðilega eiginleika sem að lokum geta gert okkur það kleift að minnka orkuþörf raftækja. Til dæmis verður í framtíðinni hægt að hanna nýjar gerðir af ljósaperum sem munu endast miklu lengur og nota miklu minni orku en þekk- ist í hefðbundnum ljósaperum í dag. Einnig mun tæknin nýtast við að koma mun meiri gögnum fýrir á hörðum diskum í tölv- um, sem og á venjulegum geisladiskum. Við höfum verið að vinna við þetta hér í VRIII, síðast liðinn tvö ár, í samstarfi við aðra eðlisfræðinga á Norðurlöndum og þetta verkefni mun lík- lega vara í önnur fjögur, fimm ár.“ Tækið sem Bjöm vinnur nú við að koma saman líkist helst kafbáti og nær kostnaður langt í einn slíkan. Tækið, sem er gjöf frá Tækniháskólanum í Stokkhólmi, kostar litlar 50 milljónir króna. 3S3SS 'nWM* ' Spurning dagsins Trúir þú á óhefðbundnar lækningar? Ekki rétt í mínu tilfelli „Óheföbundnar lækningar geta alveg dtt rétt á sér en það þarfmiklu meiri fræðslu svo þær skili þvísem til er ætlast. Þær eru tískufyrirbrigði og einmittþess vegna þarfað fræða fólk. Sjálfnýtti ég mér þær ekki þvíég hefþá trú að sú lyfjagjöf sem ég fékk I minni meðferð við krabbameini hafi verið nákvæmlega reiknuð út frá mínu og því ekki rétt að taka eitthvað sem ekki vitað hvernig virkaði með lyfjunum." Margrét Frímannsdóttir aíþingis- maður „Já, verður maðurekkiað gera það? Ég hefnotað hómópatalyf en er ekki viss hvortþau hafa virkað eða ekki því líkaminn læknarsig oftsjálfur. Eflaust myndi ég leita í óhefðbundnar lækningar efég yrði alvarlega veik og hefði ekki önnur úrræði." Hildur Björg Jónasdóttir há- skólanemi „Þaðersvo ótalmargt sem ekki rúmast innan okkarrík- isrekna heil- brigðiskerfis. Sumthefur gagnast vei, annað ekki. Ég trúi á það sem lætur fólki líða betur. Er ekki sama hvaðan gott kemur?" Þórunn Hrefna Sigurjóns- dóttir bókmenntafræðingur „Já, ég hef sjálfur farið til hnykkjara og það virkaði mjög vel. Ég heflíka farið I höfuðbeina - og sþjald- hryggsmeðferð og leið mjög vel á eftir." Elvar Valdimarsson nemi „Já, en ég hef ekki prófað það sjálfen þeirsem standa mér nærrihafa reyntþað með góðum árangri. Sjálfmyndi ég hiklaust leita utan heilbrigðis- kerfisins efég sæi mér hagí því. Ég hefbara verið svo hraust að ég hefekki þurft á lækningum að halda." Dagrún Davíðsdóttir nemi Fram kom í DV í gær að níu af hverjum tíu krabbameinssjúkra leiti óhefðbundinna lækninga.Sigurður Björnsson krabbameins- læknir sagðist hvetja sjúklinga til að gera allt sem þeir teldu koma að gagni í baráttunni við sjúkdóminn. Hetja eða hrappur? Skotasaga Árið 7 995 var kvik- mynd um skosku þjóð- hetjuna Rob Roy MacGregor frumsýnd um veröld víða. Liam Neeson túikaði þennan Hróa hött Skota, þann sem Daniet Defoe mærði og sir Walter Scott. Skot- ar hafa lengi talið hann hafa stolið frá ríkum tii að gefa fátækum og mikinn baráttumann gegn kúgun enskrar herraþjóðar á skoskum þegnum sínum. John Hurt túlkaði Montrose, markreifan illa og enska, sem iánaði Rob Roy fé tii kaupa á nautpeningi gegn veði i skika hetjunnar. Enn meira illmenni enskt og gestur markgreifans, Tim Roth, stal fénu svo Rob Roy og fjölskylda máttu yfirgefa jörð sína i örbirgð. En hér fer, eins og jafnan, tvennum sögum fram. Margreifinn afMontrose hyggst nota Rob Roy i baráttu sinni gegn markgreifanum af Argyll, neyða Rob til saka Argyll um að vera jakobita, stuðningsmann Jakobs II Stewarts Skotakóngs um hríð. Margreifinn af Montrose er meira fyrir enskan kóng. En MacGregorar voru allir Jakobítar og Rob Roy þverneitar og er hundeitur um allar heiðar. En réttlætið sigrar að tokum, Rob Roy sigrast á iilfyglinu afMontrose og lifir frjáis og ham- ingjusamur með konu og sonum til æviloka eða 63 ára aldurs. Sagan endurskoðuð Snemma á árinu kom út bók um Rob Roy MacGregor eftir heiðursprófessor við háskóla ínkti Andrésar á Skotlandi. >avid Stevenson segir Rob 'oyhafa verið iitið annað •n svikara, njósnara og irapp hinn mesta. Sagn- fræðingurinn segist agn- dofa yfir uppgötvunum sin- um á þjóðskjalasöfnum Skotlands, sérstakiega þeim sem benda til að Rob Roy hafi þjónað tveimur herrum, barist í fremstu víglínu um leið og hann seidi enskum stjórnvöld- um uppiýsingar um jak- obíta og umsvifþeirra. Aðeinu leyti hafí hann svo verið á undan sinni samtið; sjáifur líkti hann sér ótt og títt við Hróa hött til að smlða ímynd. Hann hafí þar að auki ekki verið eltur uppi vegna hvarfs á peningum og veðs Ijörð heldur hafí hann sjálfur undirbúið gjaldþrot sitt samviskusamlega, fært eignir sínaryfír á ættingja með skipulögðum hætti en Montrose komist að hinu sanna. Stevenson segirRob Roy segir greindan mann og skemmtilegan en ekki segist hann treysta honum yfir þröskuid. VITS ER ÞÖRF ÞEIM SEM VÍÐA RATAR. -HÁVAMÁL Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur og eiginkona Þórarins Eidjárn rithöfundar á bróður í listinni. Kjartan Ólafsson tónskáid er bróðir hennar enhann hefur einkum fengist við nútímatónlist og er menntaður í Hollandi. WWW.MENNTAVEfURINN.IS Auglýst er eftir umsóknum um nám til verslunarprófs* á félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskiptabraut eða um einn eða fleiri námsáfanga til verslunarprófs* Sótt er um á vefsíðu Ijarnámsins en þar eru einnig allar nánari upplýsingar. *Verslunarpróf er tveggja ára nám og eftir tvö ár til viðbótar eru nemendur brautskráöir og hafa þá lokið stúdentsprófi. Fjarnám við Verzlunarsköla Íslands Skólinn hefúr um nokkurt skeið lagt mikinn metnað í undirbúning vandaðs fjarnáms. Allt námsefni er framleitt fyrirfram og miðlað til nemenda um internetið í formi texta, hljóðs og hreyfimynda. sErkenni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.