Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Blaðsíða 15
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 19.ÁGÚST2004 15 rgj@dv.is Einn af gestum Sigurjóns Sighvatssonar á Eiðum nú um helgina er Jessica Morgan, sýningar- stjóri frá Tate-safninu í London. Það var hún sem stóð á bak við glæsilega og lofaða sýningu Ólafs Elíassonar þar í vetur. Jessica hefur komið hingað í þrígang, enda í stóru verkefni fyrir Listahátíð í Reykjavík næsta vor. Mun hún stýra helsta viðburði hátíðarinnar, velja verk á stóra sýningu á samtímaiist, því allra nýjasta sem er að gerast, og fær til ráðstöfunar 15 söfn og sýningarsali í Reykjavík og nágrenni, Ak- ureyri og ísafirði. Mun tiltækið kosta á fjórða tug milljóna. Er Jessica komin langt í vali og verður fróðlegt fyrir landann að sjá hvaða íslensku myndlistarmenn sleppa inn um nálarauga frúarinnar frá Tate. Ragnheiður Gyða Jónsdóttir vaktar mannlíf og menningu. Önnur, kona serasetur mikinn svip a Listana tlO í vor verður sænska söngkonan Ann Sofie von Otter mezzosópran. Hún verður með Ijóðasöng í harmon- ikkuhúsinu á Melunum og mun það gleðja þá mikið sem unna Ijóðasöng, en hún hef- ur á síðustu misserum snú- ið sér að sænskum sönglögum við mikið lof, bæði Alvéen og sönglög frá síðari hluta síðustu aldar hafa ratað inn á söngskrá hennar. Hvað verður á dagskránni í Reykjavík í maí á næsta ári er lítið vitað. Við fylgj- umst með. Díva sem er í fréttum þessa dagana er Björk, Medúlla kemur út í næstu viku og á vefsiðu henn- ar má sjá að hljóðritið verður fáanlegt í ýmsum gerðum fyrir þá áhugasömustu. Orðrómur var á sveimi um að Björk mundi koma fram á ör- fáum hljómleikum í völdum borgum Evrópu, en talsmað- ur Smekkleysu hefur neitað því og segir ekkert hljóm- leikahald standa til í tilefni af útgáfu plötunnar. Það er því litil von til að hörðustu aðdá- endur, vinir og vandamenn heyri í vinkonu okkar fyrir jólin. Onustan um Atlantis Nú eru ekki liðnir tveir mánuðir síðan þýskur fræðimaður tilkynnti að hann hefði með hjálp gervi- hnattamynda fundiö minjar um hið forna Atlantis á Spáni sunnan- verðum. Á saltsléttum nærri Cadiz sæjust leifar mikilla bygginga. Á laugardaginn gerði svo sænskur landfræðingur heyrinkunn- ugt að hann hefði fundið Atlantis, á allt öðrum stað á hnettinum. Hann telur eldfornan grafreiti I Boyne-dal á Ir- landi ekkert annað en leifarþeirr- ar menningar sem þreifst áhinu löngu horfna landi. Griski heim- spekingurinn Platón var fyrstur manna til að lýsa Atlantis en sú frásögn varsannarlega ekki sjón- arvottar. Atlantis átti að hafa orð- ið flóðbylgju að bráð fyrir 12 þús- und árum en Platón lýsti samt at- vinnuháttum, stjórnarfari og þjóð- skipulagi landsins. Sænski land- fræðingurinn segir lýsingar hans koma heim og saman við írland en þýski fræðimaðurinn telur aug- Ijóst að lýsingar heimspekingsins eigi við rústirnar suður á Spáni. Ritúöl og iielgistQir í Hvalflrði Á morgun hefst norræn ráðstefna um trúarllfsfélagsfræði að Hótel Glym i Hvalfirði. Auk íslenskra sér- fræðinga er von á 34 erlendum gestum að rseða ýmsar hliðar fræöigreinarinnar en þeir koma líka inná helgisiðafræði, sál- gæslu og dauðann með félags- vísindalegri nálgun. Pétur Péturs- son guðfræðiprófessor við Híhefur haft veg og vanda afskipulagn ingu ráðstefnunnar og ætlar sjálfur aö fjalla um forfeður og þjóðar- Imynd - nálgun Islendinga á dauð- ann og lifið eftirþetta. Skoðana- kannanirsýna að Islendingar eru hefðbundiri trúnni en afkomendur spiritistanna fyrir öld eða svo virð- ast eygja I erfðavisindunum leið til eilífs lífs til handa sjálfum sér og forfeðrunum. Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Helena Jónsdóttir er dansari og dansahöfundur. Nú hefur hún tekið kvikmynda- vélina í sína þjónustu og skipað sér í fremstu röð höfunda dansstuttmynda í Evr- ópu. Helena opnar yfirlitssýningu á dansstuttmyndum sínum í Sýningarsal Orku- veitunnar á sunnudag. ^ ^ Mynduvelin uppahalds danslelaginn „Þama verða sýndar hátt í tíu dansstuttmyndir," segir Helena Jónsdóttir dansstuttmyndahöfund- ur. „Og ég reyni að hafa þetta sem fjölbreyttast. Myndirnar verða sýnd- ar bæði á sjónvarpsskjám og í myndvörpum en auk þess verður hægt að fá svolitla innsýn í vinnu mína við myndimar í gegnum skissur og handrit. Eftir margra ára reynslu við að dansa og semja dansa í leik- húsi og sjónvarpi og ótal störf kringum sýningar fannst mér sú margvíslega reynsla sem ég hafði orðið mér úti um koma saman þegar ég kynntist upptökuvélinni fyrir nokkrum árum," rifjar Helena upp. Dansað fyrir vélar „Þegar dansverk fyrir svið er samið," útskýrir Helena, „gerir mað- ur hreyfingamar stærri en ella og verkið er sýnt í einni heild. Með kvikmyndavélinni opnast aðrir möguleikar. Þá er hægt að ná meiri nálægð við hreyfingamar og auka þannig tjáningarmöguleikana. Vélin getur t.d. gert rennandi svitadropa að dans- hreyf- ingu. 1% nýrí llur grænt salat Ljúffengt meðlæti með gutrótum, kirsuberjatómötum og balsamic-satatsósu. vill að hann sé. Að þegar upp er staðið snýst hann fyrst og fremst um að vera fuÚkom- lega meðvitaður um hreyf- ingar sínar,“ segir Helena Jónsdóttir dansstutt- myndahöfundur. Auk fyrrgreindra verka Helen- u í Sýningarsal Orkuveit- unnar kynnir hún þar drög að nýjum verkum og erlendar dansstutt- myndir. Helena Jónsdóttir, höfundur danstuttmynda .pegar eggrýip upptökuvelina vai ems og bll tyrn reynsla kæmi I veliha'. keppa við leikhúsið og töfra þess, náiægðina við dansarann. Einmitt þess vegna er svo spennandi að vinna við kvikmyndavélina. Og heil- mikil danshönnun á sér líka stað í klippiherberginu. Eh'sabet Rólands- dóttir hefúr oftast klippt mínar myndir og ég kalla hana oft hinn danshöfundinn, hún semur ekki síð- ur dansana f klippingunni," segir Helena. Dansáhugi á íslandi Helena segir íslenska dansara og danshöfunda óþreytandi í að mennta sig um allan heim. „Svo koma þeir hingað heim, oftar en ekki með frábær verk, og sýna okkur. En íslendingar eru margir hálf ragir við danslistina, eiga kannski á ein- hvem hátt erfitt með að skilja dans- inn, að lesa úr dansverkunum. Halda að þeir hafi ekki lesið rétta bæklinginn eða farið á rétta nám- skeiðið. En þess þarf alls ekki. Það eina sem þarf er einlægur áhugi á að skoða og prufa. Þá sé ég, og hef upp- lifað með dansstuttmyndunum, að þær geta verið eins og litlar brýr, sýnt okkur að dansinn býr í öllum á einhvem hátt og að manni er alveg óhætt að hafa skoðun á því sem maður sér og upplifir. Mig langar að sýna fólki að dans er það sem maður Fundað um Tónlistarhús Fátt hefur frést afTónlistar- og ráðstefnu- höllinni á austurbakkanum i Gömlu höfn- inni frá i vor þegar tilkynnt var um fjóra áhugasama aðila, suma heimsfræga, sem vildu ná samningum um hönnun þessa mikla mannvirkis.A fundi f vor sem Samtök um tónlistar- hús héldu um stöðu mála kom fram gagnrýni af hálfu fundarmanna um að hlutur óperufiutnings væri fyrir borð borinn f að- alsal hússins en uppi voru tillögur um að stækka þann salúr 1.500 sætum I 1.800. Þá voru uppi áhyggjuraddir meðal gesta á fundinum þann 17. mai afþví að hugmyndir stjórnvalda um sjálfbæran rekstur hússins væru óraunsæar og ábyrgðarlausar. Aö sögn Stefáns Hermannssonar, fram- kvæmdastjóra Austurhafnar, fyrirtækis rík- is og borgar, eru fulltrúar Artek, ráðgjafa- fyrirtækis sem hefur haft leiðsögn um undirbúning mannvirkisins, væntanlegir til funda I næstu viku hérí Reykjavík þar sem fariö verður I skoöun og umræður um ýmsar forsendur I útboði verksins. Þá sagði Stefán að ýmis rekstrar- ilkön væru til skoðunar, svo eitthvað eru for- sprakkar rfkis og borgar að skoða sinn gang, enda verða hvorki ráð- hús né þinghús rekin án ábyrgrar hússtjórnar. Enn eru menn að velta fyrir sér stækkun á stóra salnum, hvort hann eigi aðtaka 1.800 eöa 1.500 gestilsæti.Sáttmun vera komin með ráðstefnusal- inn sem getur bæði tekið um 1.000 stand- andi gesti og 7501svokölluðu bióskipu- lagi. Honum má skipta I tvennt og hafa bæði með hallandi gólfi eða sléttu. Miðað við þá ásókn erlendra gesta sem verið hef- ur á þessu vori og sumri virðist vera full þörfá bættri aðstöðu tilalls kyns tónleika- halds, ekki seinna en strax.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.