Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Side 19
rT DV Sport FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST2004 19 mmm 1 w «r m «isiisyS! Eiður á fleygiferð Eiður Smári Guðjohnsen skoraði sitt tiunda mark fyrir íslenska landsliðið i gær í sinum 30. ieik og sýndi hvað eftir annað hrein töfrabrögð með boltann sem skildu itölsku varnarmennina margoft eftir ráðþrota. DV-mynd Hari 2-0 og sigurinn í sjónmáli Gylfi Einarsson kemur Islandi Í2-0 á 22. minútu og sigurinn er isjónmáli. Gylfi var besti maður íslenska liðsins þar sem allir leikmenn léku vel og náðu sameiginlega að landa stórglæsilegum og sögulegum sigri. DV-mynd Hari Örn Arnarson reynir að líta á björtu hliðarnar í Aþenu. Hann hóf keppni á leikunum í morgunsárið. Þýðir ekkert að væla Fremsti sundmaður okkar ís- lendinga síðustu ár, Örn Arnarson, fer með nokkrum öðrum forsendum á ÓL en hann ætlaði að gera í upp- hafi. Eftir að hafa náð fjórða sæti í Sydney var stefnan sett á verðlaun hér í Aþenu. Eftir . , t AH* að hafa AÞENA æft eins og brjálæðingur í þrjú og hálft ár lenti Örn í leiðinlegum meiðslum sem gerðu það að verkum að draumar hans um verðlaun á ÓL fuku út um gluggann. Fyrir vikið keppir hann ekki í baksundi, sem er hans sterkasta grein. Þess í stað mun hann taka þátt í 50 metra skriðsundi. Örn gaf sér tíma eftir æfingu um daginn til þess að spjalla við blaða- mann um leikana og vonbrigðin við að geta ekki keppt af fúllum krafti. „Þetta er allt talsvert betra en ég átti von á. Maður bjóst við öllu hálfklár- uðu eins og mátti búast við miðað við umfjöllunina um mótið. En þeir hafa náð að sparsla í holurnar í lok- in,“ sagði Örn. Hann er ekki sam- mála félaga sínum, Jakobi Jóhanni, um að aðstæðurnar í Aþenu séu betri en í Syndney. Betri rúm - verri laug „Húsnæðislega er Aþena betri enda eru rúmin skárri en þau voru þar. Hvað varðar sundlaugina fannst mér laugin í Sydney betri. Ég held að það hafl verið einhver besta laug sem hefur verið gerð. Þrátt fyrir það er allt tU fyrirmyndar hérna." Eins og áður segir er Örn ekki kominn á þeim forsendum sem hann hefði helst kosið sjálfur. Hvernig er það fyrir hann að vera loksins kominn en geta ekki keppt um verðlaunin sem hann hafði dreymt um svo lengi? Helvíti súrt „Þetta er náttúrlega helvíti súrt en það þýðir ekkert að væla yfir þessu. Það varð að finna leið tU þess að gera gott úr þessu eins og staðan var orðin og þetta var besta leiðin tU þess. Það hefði verið enn verra fyrir hausinn á mér ef ég hefði ekld mætt. Ef ég hefði verið heima að horfa á þetta í sjónvarpinu hefði það bara verið of mUdð," sagði Örn, sem þrátt fyrir jákvætt viðhorf leið greirnlega ekki nógu vel. Hann bítur þrátt fyrir það á jaxlinn og reynir að láta gott af sér leiða og hjálpa tU eins og hann getur. „Það er líka gott að vera hérna til staðar fyrir hina í hópnum. Ég vU hjálpa tU. Þar að auld er ég búinn að vera hluti af þessum hóp lengi og búinn að taka þátt í öllum undir- búningi og síðan kemur síðasta hálfa árið bara í meiðsli, sem er mjög svekkjandi. Maður er búinn að leggja mildð á sig frá síðustu leikum. Ég hef eiginlega æft í átta ár með þennan tímapunkt í huga. Eins og ég segi samt þýðir ekkert að væla held- ur bara að koma aftur sterkur inn," sagði Örn jálevæður en hann er langt frá því að vera hættur. Tekursér smáfrí „Ég tek mér smá frí eftir leUcana en svo byrjar lífið bara aftur. Ég fer tU Danmerkur í september og verð að æfa þar. Ég er fjarri því að vera hættur. Ég verð nú bara 23 ára síðar í mánuðinum og ég hætti ekki með- an ég hef enn gaman af þessu," sagði Örn Arnarson, sem mun væntanlega aðeins keppa í svona 23 sekúndur á leikunum í Aþenu. henry@dv.is „Það er líka gott að vera hérna til staðar fyrir hina í hópnum. Ég vilhjálpa til. Þar að auki er ég búinn að vera hluti afþess- um hóp lengi og búinn að taka þátt í öllum undirbúningi." Keppir bara í einni grein Örn Arnarson keppir aðeins i 50 metra skriðsundi á teikunum i Aþenu ogerað stiga upp úr mjög iangvarandi og erfiðum meiðslum. DV-mynd Teitur nýr & hollur kostur! léttir og bragðgóðir réttir - fáar kaloríur ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.