Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2004, Page 19
rT
DV Sport
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST2004 19
mmm
1 w
«r m
«isiisyS!
Eiður á fleygiferð Eiður Smári Guðjohnsen skoraði sitt tiunda mark fyrir íslenska landsliðið i gær
í sinum 30. ieik og sýndi hvað eftir annað hrein töfrabrögð með boltann sem skildu itölsku
varnarmennina margoft eftir ráðþrota. DV-mynd Hari
2-0 og sigurinn í sjónmáli Gylfi Einarsson kemur Islandi Í2-0 á 22. minútu og sigurinn er isjónmáli. Gylfi var besti maður íslenska liðsins þar
sem allir leikmenn léku vel og náðu sameiginlega að landa stórglæsilegum og sögulegum sigri. DV-mynd Hari
Örn Arnarson reynir að líta á björtu hliðarnar í Aþenu. Hann
hóf keppni á leikunum í morgunsárið.
Þýðir ekkert að væla
Fremsti sundmaður okkar ís-
lendinga síðustu ár, Örn Arnarson,
fer með nokkrum öðrum forsendum
á ÓL en hann ætlaði að gera í upp-
hafi. Eftir að hafa náð fjórða sæti í
Sydney var stefnan sett á verðlaun
hér í Aþenu.
Eftir
. , t AH* að hafa
AÞENA æft eins
og brjálæðingur í þrjú og hálft ár
lenti Örn í leiðinlegum meiðslum
sem gerðu það að verkum að
draumar hans um verðlaun á ÓL
fuku út um gluggann. Fyrir vikið
keppir hann ekki í baksundi, sem er
hans sterkasta grein. Þess í stað mun
hann taka þátt í 50 metra skriðsundi.
Örn gaf sér tíma eftir æfingu um
daginn til þess að spjalla við blaða-
mann um leikana og vonbrigðin við
að geta ekki keppt af fúllum krafti.
„Þetta er allt talsvert betra en ég átti
von á. Maður bjóst við öllu hálfklár-
uðu eins og mátti búast við miðað
við umfjöllunina um mótið. En þeir
hafa náð að sparsla í holurnar í lok-
in,“ sagði Örn. Hann er ekki sam-
mála félaga sínum, Jakobi Jóhanni,
um að aðstæðurnar í Aþenu séu
betri en í Syndney.
Betri rúm - verri laug
„Húsnæðislega er Aþena betri
enda eru rúmin skárri en þau voru
þar. Hvað varðar sundlaugina
fannst mér laugin í Sydney betri. Ég
held að það hafl verið einhver besta
laug sem hefur verið gerð. Þrátt fyrir
það er allt tU fyrirmyndar hérna."
Eins og áður segir er Örn ekki
kominn á þeim forsendum sem
hann hefði helst kosið sjálfur.
Hvernig er það fyrir hann að vera
loksins kominn en geta ekki keppt
um verðlaunin sem hann hafði
dreymt um svo lengi?
Helvíti súrt
„Þetta er náttúrlega helvíti súrt
en það þýðir ekkert að væla yfir
þessu. Það varð að finna leið tU þess
að gera gott úr þessu eins og staðan
var orðin og þetta var besta leiðin tU
þess. Það hefði verið enn verra fyrir
hausinn á mér ef ég hefði ekld mætt.
Ef ég hefði verið heima að horfa á
þetta í sjónvarpinu hefði það bara
verið of mUdð," sagði Örn, sem þrátt
fyrir jákvætt viðhorf leið greirnlega
ekki nógu vel. Hann bítur þrátt fyrir
það á jaxlinn og reynir að láta gott af
sér leiða og hjálpa tU eins og hann
getur.
„Það er líka gott að vera hérna til
staðar fyrir hina í hópnum. Ég vU
hjálpa tU. Þar að auld er ég búinn að
vera hluti af þessum hóp lengi og
búinn að taka þátt í öllum undir-
búningi og síðan kemur síðasta
hálfa árið bara í meiðsli, sem er
mjög svekkjandi. Maður er búinn að
leggja mildð á sig frá síðustu leikum.
Ég hef eiginlega æft í átta ár með
þennan tímapunkt í huga. Eins og ég
segi samt þýðir ekkert að væla held-
ur bara að koma aftur sterkur inn,"
sagði Örn jálevæður en hann er langt
frá því að vera hættur.
Tekursér smáfrí
„Ég tek mér smá frí eftir leUcana
en svo byrjar lífið bara aftur. Ég fer
tU Danmerkur í september og verð
að æfa þar. Ég er fjarri því að vera
hættur. Ég verð nú bara 23 ára síðar
í mánuðinum og ég hætti ekki með-
an ég hef enn gaman af þessu," sagði
Örn Arnarson, sem mun væntanlega
aðeins keppa í svona 23 sekúndur á
leikunum í Aþenu.
henry@dv.is
„Það er líka gott að
vera hérna til staðar
fyrir hina í hópnum.
Ég vilhjálpa til. Þar
að auki er ég búinn
að vera hluti afþess-
um hóp lengi og
búinn að taka þátt í
öllum undirbúningi."
Keppir bara í einni grein Örn Arnarson keppir aðeins i 50 metra skriðsundi á teikunum i
Aþenu ogerað stiga upp úr mjög iangvarandi og erfiðum meiðslum. DV-mynd Teitur
nýr & hollur kostur!
léttir og bragðgóðir réttir - fáar kaloríur
■