Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Side 11
plötudómur Two Lone Swordsmen From The Double Gone Chapel Warp/Smekk- leysa ★★★ Breska dúóið Two Lone Swordsmen er skipað þeim Andrew Weatherall og Keith Tenniswood. Þeir eru á mála hjá Warp-útgáfunni í Sheffieid og hafa verið að gefa út plötur síðan 1996, auk þess að hafa gert remix fýrir fjölda listamanna. Stðasta platan þeirra Tiny Reminders sem kom út árið 2000 var lítið meistaraverk, - hæggengt og tilraunakennt breakbeat. Þessi nýja plata er gjörólík. Tónlistin hér minnir mann meira á 80s sveitir eins og Tuxedomoon, Clock DVA eða 23 Skidoo heldur en raftónlist 21 aldarinnar. Þetta er plata sem kemur skemmtilega á óvart (það er meira að segja útgáfa af Gun Club-laginu Sex Beati), en tónlistin er hvorki jafn fersk né jafn fullkomin og á síðustu plötum. Trausti Júlíusson Ace sendi nýlega frá sér nýja plötu og er með aðra á leiðinni. Hann verður á Airwaves sem plötusnúður og segist hlakka til að hitta vini sína í Mínus. plötudomur Rammstein Reise, Reise Universal/Skífan ★★★★ Fjórða plata þýsku geösjúklinganna I Rammstein. Þeir hafa lítið látið I sér heyra síö- ustu þrjú árin eftir að þeirgáfu út Mutter, nokk- uð góöa og vinsæla plötu. Rammstein hefur frá fyrstu plötu sinni átt stóran aðdáendahóp hér- lendis, sem sannaðist vel á tvennum tónleikum I Höllinni um árið. Þessir aðdáendur ættu að fagna Reise, Reise sem er að mlnu mati mun betri plata en Mutter, hún er fjölbreyttari og líf- legri og gítarhávaðinn er ekki eins áberandi og fyrr. Fyrir vikið er platan fyllilega jafngóð og besta plata Rammstein hingað til, Sehnsucht. Bestu lögin eru Amerika, Ohne Dich, Amour og Moskau. Höskuldur Daöl Magnússon „Anna Hildur gaf mér fullt af plötum með íslenskum hljómsveitum... það var fulit af fínu stöffi þarna þannig að ég hlakka bara til að koma og sjá þetta allt saman live.“ « # ♦•* Gítarleikarinn Ace, sem einu sinni tilheyrði hljómsveit sem kallaði sig Skunk Anansie, kemur hingað til að spila sem plötusnúður á Airwaves. Hann hefur oft komið hingað til lands áður og segist mest hlakka til að hitta vini sína í Mínus. Fókus bjallaði í kauða og tók hann í létt spjall um Reykjavík og ísland. „Það var helvíti g£tman síðast þeg- ar ég kom en það var bara svo stutt. Ég man að Anna Hildur hjá Smekk- leysu fór með mig á eitthvaö veit- ingahús þar sem ég fékk einhvem reyktan fugl og hrátt hvalkjöt. Þegar ég sá þetta á disknum hélt ég að ég myndi ekki getaö borðað þetta, ég tala nú ekki um þegar ég skar í þetta og meira hlóð kom í ljós. En ég lét mig hafa það og fannst það svo sem ailt í lagi,“ segir Ace, sem einu sinni var gítarleikari í hljómsveitinni Skunk Anansie. Hann mun leika sem plötusnúður á Airwaves síðar í mánuðnum. Mínus er mögnuð „Ég var reyndar bara svo stutt á landinu síðast þegar ég kom. Rétt rúman dag, við urðum t.d. að stilla drykkjunni í lágmark þar sem viö brunuðum út á flugvöll fljótlega eft- ir tónleikana með Mínus,“ seg- Helvítis hvalkjötið en hlakkar til að hitta Mínus ir Ace en hann spilaði einmitt sem plötusnúður á sérstöku Kerrang- kvöldi á Gauki á Stöng fyrr á árinu. „Ég verð minnst þrjá daga núna þannig að ég næ kannski að gera eitthvað aðeins meira en síðast. Sér- staklega hlakka ég til að hitta strák- ana í Mínus aftur en ég þekki þá ágætlega. Ég er alltaf að rekast á þá á börum héma í London enda eru þeir reglulegir gestir héma og svo hékk ég með þeim þegar ég var síð- ast í heimsókn á íslandi. Virkilega skemmtilegir gaurar," segir Ace, sem ber Mínusmönnum góða sög- una. „Síöasta platan þeirra er alveg frábær en mér fmnst hinar aðeins mglingslegri, maður þarf smá tíma til að komast inn i þær en þær em samt báðar góðar. En Haildór Lax- ness er fjandi góð plata,“ segir Ace og bætir við að fólk taki eftir frammistöðu Mínus á Bretlandi. „Þeir em búnir að vera duglegir við að spila á tónleikum héma úti þamiig að fólk hefur tekið eftir þeim og flestir eru að fila þá.“ Fullt af fínum íslenskum böndum „Þótt fólk sjái mig aðallega sem dj núna þá er ég aðaliega að starfa sem upptökustjóri," segir Ace, sem hefur haft nóg að gera sið- an Skunk Anansie lagði upp laupana. „Ég hef pródúsað um 20 plötur með alls konar rokk- sveitum síðan þá og svo var ég að klára að taka upp nýja plötu með sveit sem kallar sig Inner Mantra,“ segir Ace, sem núna er að mixa plötuna og stefnir á að koma henni út i janú- ar. Hann sendi einnig frá sér plötu fyrr á árinu þar sem fjöldi lista- manna tekur lagið með honum, t.d. Lemmy úr Motörhead og JJ Burnel úr Stranglers. „Ég sagði við sjálfan mig fyrir þetta ár að ég skyldi sjálfur gera plötu á þessu ári. Maður verður pirraður þegar maður er tónlist- armaður en er bara að vinna fyrir aðra, mann langar alltaf til að gera eitthvað sjálfur,“ segir Ace, sem hlakkar til að fara á tónleikaferðalag með Inner Mantra á næsta ári. Þangað til verður hann hins vegar aðallega að taka upp verk annarra og starfa sem plötusnúður. „Þegar ég er að spila sem plötu- snúður hugsa ég aðallega um að skemmta mér. Ég spila bara rokk sem fólkið fílar og nennir að hreyfa sig við,“ segir Ace, sem hlakkar til að koma til landsins. „Anna Hildur gaf mér fullt af plöt- um með íslenskum hljómsveitum síðast þegar ég kom og margt þar hljómaði mjög vel þótt ég geti ómögulega munað nöfnin á þess- um hljómsveitum. En það var fullt af fínu stöffi þarna þannig að ég hlakka bara til að koma og sjá þetta allt saman live.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.