Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2004, Síða 13
Sólveig Einarsdóttir hefur skipað sér í hóp efnilegustu myndlistarmanna samtímans. Myndlist hennar hefur jákvæð skilaboð sem gleðja þá sem hennar njóta. Sólveig sýnir nú verk sín bæði í Norræna húsinu og Nýlistasafninu. Hún kýs frekar að skúra fyrir listina en sýna tískufatnað fyrir glamúrgellur. 1000 sykurpúðar á 7. hæð KJarvalsstaða „Ég hef aldrei reynt að eltast við það að gera einhverja söluvænlega myndlist," segir Sólveig Einarsdóttir, ein af okkar efnilegustu myndlistar- mönnum af yngri kynslóðinni. Sól- veig er meðal nokkura islenskra listamanna sem eiga verk á sýning- unni „Norður og niður“ í Norræna- húsinu. Sýningin er haldin að frumkvæði Sólveigar og nokkurra annarra ungra myndlistarmanna sem ætla að ferðast með sýninguna um Norður- löndin. „Þetta er svona viðleitni hjá okkur til þess að reyna að búa til tækifæri annars staðar en hér heima,“ segir Sólveig, sem gjaman gerir stemningsskúlptúra sem eru ekkert sérstaklega söluvænlegir en henni frnnst það algjört aukaatriði. „Ég hef aldrei fundið fyrir því að ungir myndlistarmenn sem ég þekki séu að selja eitthvað af verkum sín- um þó þeir séu að gera málverk sem ættu að vera nokkuð söluvænleg myndlist. Ég var að vonast eftir að einhver vildi eignast svona lunda,“ segir Sólveig um verk sin sem eru lundar sem hún hefur búið til úr lakkrís og marsípan, en Sólveig hefur áður unnið með sælgæti í list sinni. Atvinnulaus í augnablikinu „Ég ætla bara að halda áfram að gera þau verk sem mig langar að gera, ef maður heldur því áfram rat- ar maður rétta leið,“ segir Sólveig, sem er eiginlega atvinnulaus í augnablikinu og er tilbúin að færa ýmsar fómir fyrir myndlistargyðj- una. „Ég vann á listasafni Einars Jóns- sohar í sumar. Svo reynir maður að skúra eða gera eitthvað til þess að ná sér í pening fyrir leigunni. Mér frnnst minni niðurlæging í því að skúra heldur en ef ég væri að vinna myndlist eingöngu sem ég héldi að fólk vildi eignast. Ég geri bara alger- lega það sem mig langar að gera og fer svo klukkan fnnm og skúra eða geri það sem ég þarf til þess að lifa,“ segir Sólveig, sem lifir fyrir listina en ekki öfugt. Hugurinn leitar til Japan „Ég væri alveg til i að geta lifað af listinni. Sjálf þrái ég ekkert sérstak- lega neina frægð eða slíkt. Ég væri hins vegar alveg til í að verkin mín mundu ná einhverri athygli þannig að ég gæti fengið laun fyrir list mína,“ segir Sólveig, sem stefnir að því að fara i framhaldsnám til Jap- ans sem hún hefur verið að búa sig undir. „Ég var i japönsku í háskólanum i vetur til þess að búa mig undir að fara í frekara nám til Japan,“ segir Sólveig, sem þekkir Japan vel eftir að hafa starfað þar sem fyrirsæta í nokkur ár. „Ég starfaði sem fyrir- sæta í London en stefndi alltaf að því að því að fá starf sem í Tókýó. Ég var alveg að fara að gefa fyrirsætubrans- ann upp á bátinn. Mig langaði samt ekki að hætta fyrr en ég væri búin að prófa að starfa í Japan. Á endanum bauðst mér starf þar, sem ég að sjálf- sögðu þáði,“ segir Sólveig, sem er vön því að sjá drauma sína rætast og það í orðsins fylgstu merkingu. Sól- veig hefur notfært sér drauma sína með því að framkalla þá í myndlist- inni. 7. hæð Kjarvalsstaða „Ég hef tvisvar sinnum unnið verk eftir að hafa dreymt þau. Mann dreymir eitthvað og vaknar með ein- Sólveig er einn efnilegasti myndlistarmaður íslands og er atvinnulaus í augnablikinu. Fókus-mynd Teitur hverjar ákveðnar hugmyndir um verkiö sem maður vinnur svo. Það er mjög gaman að sjá það verk verða til á þennan hátt. Ég er ekkert farin að treysta á draumana í myndlistinni. Þetta gerðist bara óvart með þessi tvö verk, venjulega dreymir mig bara eitthvað rugl,“ segir Sólveig, sem dreymdi einu sinni að henni byðist að sýna á stórri sýningu á Kjarval- sstöðum, sem var sjö hæða bygging í draumnum. „Ég var í miklu stressi að ljúka við verkið í draumnum þar sem sýning- in átti að opna nokkrum klukkutím- um eftir að mér var boðið að vera með. Ég náði aldrei að klára verkið í draumnum þó ég hafi haft mjög Diskögólfiö, útskriftarverk Sólveigar: Sætu listalundarnir úr lakkrís og “i'd like to buy the world a coke.“ marsípani. „Draumur 1“ Hesturinn er unnín úr ilmandi sætum flúortöfium. skýra sýn á hvemig það kæmi til með að líta út,“ segir Sólveig, sem gekk í verkið þegar hún vaknaði og raðaði saman 1000 sykurpúðum þangað til þeir mynduðu strauborð. Fleiri geta svo notiö draumsins því verkið er sýnt undir stiganum í Gall- erí 18 en aldrei á sjöundu hæð Kjar- valsstaða. í sumar sýndi Sóveig, hest sem hana dreymdi. Hami var gerður úr 90.000 flúortöflum og var sýndur undir stiganum i Gallerí 18. Tækifæri um allan heim Sólveig segir fullt af tækifærum fyrir unga islenska myndlistarmenn úti í heimi. Henni fínnst mikilvægt að vinna úr þessum tækifæriun með því að búa sér þau til i stað þess að sitja heima og bíða eftir að verða uppgvötvuð. Sólveig hefur ásamt fjórum öðrum myndlistarmönnum skipulagt sýninguna Norður og niður sem er samstarfsverkefni með öðrum norrænum unglistamönnum. Þau ætla að ferðast með sýninguna til allra Norðurlandanna og hafa fengið styrk frá Norræna menningarsjóðn- um til þess að hafa upp í kostnað við sýningarhaldið. Hún segir unga ís- lenska listamenn almennt meðvitaða um það hversu mikilvægt er að kynna sig fyrir utan landsteinana og ætlar að vera við opnun sýningar í New York í næstu viku þar sem ung- ir íslenskir listamenn sýna verk sín. „Við fengum einhvern smá styrk til þess að framkvæma okkar hug- mynd en New York -ópurinn er að gera þetta mikið til fyrir eigin pen- inga. Það kemur svo í ljós hvort þau geti fjármagnað þetta eftir á. Yfirleitt er þetta bara kostnaður að vera myndlistarmaður. Maður verður að vinna með þessu og svo er líka mjög dýrt að gera verkin þannig að maður verður að hafa fyrir kostnaði við að vinna þau.“ Fórnaði módelframanum fyrir listina „Ég var alveg komin með nóg af módelbransanum, ég var ekkert að fara að meika það eða þannig. Mig langaði alltaf að fara í myndlistar- nám. Ég var búin að vera með alls kyns hugmyndir um hvað mig lang- aöi að gera eftir að ég kláraði menntaskóla. Mig langaði að gera brúðuleikhús, teiknimyndir, bama- bók og hitt og þetta. Ég hafði aldrei haft neina heildarsýn á hvað ég gæti lært til þess að geta komið hugmynd- um mínum í verk,“ segir Sólveig, sem hélt lengi vel að enginn gæti ákveðið að verða listamaður heldur væri um einhvers konar meðfædd ör- lög að ræða. Allir geta lært myndlist „Það geta kannski ekki allir orðið listamenn en það er alla vega hægt að fara í skóla og læra myndlist,“ segir Sólveig sem fattaði eftir að hún kynntist kærasta sínum að hún ætti fullt erindi í listina. „Kærastinn minn var í myndlistarnámi og ég sá það í gegnum hans nám að þetta væri eitt- hvað sem ég gæti vel hugsað mér að gera,“ segir Sólveig, sem vakið hefur athygli fyrir skemmtilega myndlist sína síðan hún útskrifaðist úr Lista- háskólanum fýrir rúmu ári síðan. Auk þess að eiga verk á sýningu norrænna unglistamanna í Norræna- húsinu á hún líka verk á sýningunni „Grasrót" í Nýlistasafninu sem nú stendur yfir. Sú sýning er samsýning efhilegustu myndlistarmanna sam- timans. 1. október 2004 f ÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.