Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2004, Síða 16
15. október 2004 16 Hfia e f t i r v i n n u Alltof linur „Það sem maöur er búinn aö sjá af Idol hingaö til er margt ágætt og svo er annað minna ágætt. í síöasta þætti var ekkert ver- ið aö detta um snillingana, hann var eigin- lega talentlaus en þeir eiga örugglega eitt- hvað inni. Ég hef enga trú á því aö framhald- iö veröi eins slappt og síðasti þáttur. Þau eru örugglega bara aö geyma flugeldasýn- inguna. Ég fór til dæmis til Akureyrar og heyröi marga góöa spreyta sig þar. Ég var dómari í einu „try-outi“ þvi Bubbi var ekki á svæðinu en gat ekki veriö harður þannig að ég var eiginlega reklnn strax fyrir linkind. Aö horfa í augun á þessum greyjum og segja „Þú þarft ekki aö reyna aftur, þetta var ekki nógu gott,“ er eitthvaö sem ég get ekki.“ Kalll Bjarnl Idol- etjarna íslands. í góðu grúvi á Scooter „Ég er búin aö vera mjög upptekln síðustu vikur meö Nylon þannig aö ég hef haft litinn tíma til að lyfta mér upp en ég fór þó á Scooter-tónlelkana. Ég fór í fyrra líka en þá voru miklu fleiri. Þetta var alveg gaman, þetta er ágætlstónlist hjá honum svona inni á milli. Sjóviö var flottara núna, flottari sprengjur á sviðinu. Ég skammast min ekk- ert fýrir aö fíla Scooter þótt ég sé jáb kannski ekkert Scooter-fan númer ff> eitt. Plnk var samt miklu skemmtilegri upp á lögin og sönginn en þaö vantaöi upp á ; ^ sjóviö hjá henni til að full- komna upplifunina. Ég dansaöi ekkert á , Scooter, ég var bara aftast í góöu grúvi. Ég var boöin, ann- ars heföi ég liklega^, ekki farið.* Emilía Björg Ósk' arsdóttlr, söngkona1 í Nylon. Stórfyrirtæki eru vond „The Corporation er stórkostleg mynd. Hún sýndi mér, svart á hvítu, í hvers konar sam- félagi vlö búum. í henni var margt sem kom mér á óvart, t.d. þaö að þrælahald lifir enn. Við flytjum ekki þrælana lengur heim til okk- ar heldur verksmiðjurnar til þeirra. Ég vissi aö barnaþrælkun tiökaölst. Ekki aö margir hlutir sem ég á eru gerðir af nauðugum börnum. The Corporation opnaði augu mín fyrir því hvernig stórfyr- irtæki i nútímasam- félagi virka. Ég I hvet alla sem hafa áhuga aö sjá þessa mynd.“ Jón Gnanr listamadui The Corporatlon er sýnd I Há- skólabíól. Frábær svört mjólk „Ég fór aö sjá leikritið Svört mjólk á litla sviðinu Þjóöleikhússins og átti alveg frá- bæra kvöldstund. Verkið skartar ungum lelkurum sem vinna leiksigur. Það er frá- bært þegar ungir leikarar eru settir í buröar- rullur i verkum og standa undir því. Verkið sjálft er mjög áhugavert. Það fjallar um Rússland nútimans og er svolitiö köld lýsing á samfélaginu þar. Þennan kalda raunveru- leika unga fólksins sem elst upp á tima þar sem kommúnlsminn og kapitalismlnn mæt- ast. Þaö er rosa barnlngur á milli ungu kyn- slóðarinnar og eldra fólksins sem þekkir bara kommúnismann. Fyrir vikið er verkið mjög áhugavert og heví. Frábær upp- setning." Björn Thors, lelk- arl í Hárlnu ▼ opnanir Franska listakonan Valerie Boyce opnar lands- lagsmálverkasýningu í Hafnarborg í Hafnarfirði á morgun klukkan 15. Hún dvaldi í Listamið- stöðinni Straumi og í Reykjavík fyrir nokkrum árum og eru sum verkin sprottin af dvöl henn- ar þar. Einnig eru myndir af sveitum Frakk- lands. Sýningin stendur til áttunda nóvember. Á sama tíma á morgun opnar einnig i Hafnar- borg sýning á málverkum Margrétar Sigfús- dóttur. úti a landi? Við Tryggvagötuna er sýningarsalurinn íslensk Grafik. Þar opnar á morgun klukkan 16 sýning Ragnheiöar Ingunnar, Helgir staðir, og sýning Þórdísar Erlu, Minnlngarbrot. Það er DJ Lára sem verður á Dátanum Akureyrl i kvöld. Þeir sem þekkja til stelpunnar segja hana meistara í að búa til stemnlngu þannig að það er vissara að láta sjá sig. ▼ synmgar Lopameyja, annað sjálf Ólafar Björnsdóttur listamanns, sýnir i Kling og Bang gallerii, Laugavegi 23. Ólöf býr í London en Lopameyja er flakkari, sem fer víðs vegar um heiminn. „Listræn úrvinnsla hennar er of græskulaus, grunn og á margan hátt frumstæð og fellur þvi of Ijúflega inn í þá skrælingjalist sem ýmsir is- lenskir starfsbræður hennar, sem sótt hafa á sömu mið, hafa gert á undanförnum árurn," sagði Hannes Lárusson í myndlistardómi í DV. Veitingahúsið Oddvit- HTI inn á Akureyri efnir V til stórdansleiks i kvöld því að Bó og co í Brimkló lætur sjá sig. Langt er um liðið síðan að Brimkló tróð upp fyrir norðan og eflaust margir sem bíöa spenntir eftir aö poppkonung- ur landsins sýni sig í pláss- Hljómsveitin Spútnik ætlar aö halda dansiball annað kvöld á hótellnu á Húsavík. Það krefst aga og hugrekkis að fara á heimaslóðir Birgittu Haukdal og ætla að slá í gegn þannig að bú- ast má við góðri skemmtun. Stórsveitin Skitamórall mun einnig troða upp annað kvöld á hinum sögufræga skemmtistað SJallanum. Það kostar 1800 kall inn i forsölu og mun sveitin stíga á svið klukkan 1 og spila fram á rauöa. Dj Lebbi verður svo á Dátanum með það sem hann kallar góða tónlist. Slgrún Hrólfsdóttlr, meðlimur Gjörningaklúbbs- ins, sýnir nýjar teikningar og skúlptúr í Banan- anas, Laugavegi 80. Opnunratími sýningar- innar verður í samráðl við hana. Mannréttindafrömuðurinn Höröur Torfason veröur með tónleika á Hótel Húsavík í kvöld kl. 21. Hann er vopnað- ir gitarnum og ængu öðru. , Stebbi Steph sýnir Ijósmyndir sem voru notað- ar við hönnun Attentlon, síðustu Gus Gus- plötu, og videoverkiö Attention i sýningarsaln- um Auga fyrir Auga, Hverfisgötu 35. Höddi Torfa treður síðan lika upp í grunn- skóla Kópaskers annað kvöld. Hann er á hringferð um landið. Norður og nlöur, farandsýning ungra, nor- rænna listamanna, stendur yfir i Norræna hús- inu. Þar er að finna skúlptúra, málverk, teikn- ingar, videó, hljóðverk og innsetningar. ís- lenskir llstamenn hópsins eru Sólveig Einars- dóttir, Ragnar Jónasson, Rakel Gunnarsdóttir, Guðný Rúnarsdóttir og Guömundur Thorodd- sen. Einnig var átta öörum boöiö að sýna með: Darra Lorenzen, Doddu Maggý, Hildi- gunni Birgisdóttur, Hugin ÞórArasyni, Hörn Harðardóttur, Kolbeini Huga Höskuldssyni, Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og Pétri Má Gunnars- syni, stjórnarformanni Nýlistasafnsins. Sýning- in fer til Stokkhólms og Helslnki á næsta ári þar sem þarlendum listamönnum verður boðið að sýna með. Álftagerðisbræöur syngja á Tónahátið- inni í Þjórsárveri ann- að kvöld. Hljómsveitin Sex volt spilar í heimabæ Kalla Bjarna, Grindavík, nán- ar tiltekið hverfis- knæpunni Cactus. rSinfóníuhljómsveit Noröur- lands er að hefja sitt 12. starfsár og verða fyrstu tón- leikar vetrarins haldnir í byrj- un næsta mánaðar. Sala á ársmiða er hins vegar hafln og kosta þeir litlar 3500 krónur. Stjórnandi hljómsveit- arinnar í vetur er Guðmundur Óll Gunnarsson. Hljómsveitin Karma spilar í Pakkhúslnu á Selfossi með Labba í Mánum f fararbroddi. Guðbergur Bergsson er sýningarstjóri í blóma/En cierne, spænsk nútímamyndlist unnin á pappír, í Gerðarsafni. Þar er myndlist á Spáni frá árinu 1948 til umfjöllun- ar. Á sýningunni ‘IsHt eru hundraö og ,, tuttugu verk úr söfnum og i ^ImEÍ einkaeign eftir þekktustu myndlist- armenn landsins, V ^ *|JBL málara og Ijósmyndir. Hún er opin til 7. nóv- ember. x Félagarnir K.K. og Magnús Elríksson sem slógu eftir- minnilega í gegn í fyrra koma fram á Tónahátíölnnl i PJórsárverl á jriorgun. / Lelkfélag Fljótsdalshéraös sýnir söngleikinn vinsæla Bugsy Malone á morgun kl. 18. Allir leikendur f sýning- unni eru á aldrinum 11-16 ára en alls koma um 90 manns að uppfærslunni. Bugsy Malone verður frum- sýnt í Valaskjálfi og kostar 1600 kall inn. Diskóíð verður allt í öllu á Hornafirði um helgina. Eins og sjó- ræningjarnir „Gosvínið Bacardi Breezer er vínið mitt. Algerlega langbesti áfengi drykkur- MtflBUiil inn, sér- staklega lemon-týpan. Því miðin- má ég bara svo sjaldan drekka hann af því ég er alltaf að æfa og keppa í fítness. íþróttir og áfengi fara ekki saman. En þegar ég lyfti mér upp verðu Breezer alltaf fyrir valinu. Mér finnst það, að ég drekki Breezer, ekkert gera mig að minni karl- manni. Backardi er nú alveg karlmannsdrykkur. Sjómenn og sjóræningjar í gamla daga drukku romm. Það er nú ekki leiðum að líkjast að vera að drekka það sama og svoleiðis garpar. Ég býst samt við að þeir hafi drukkið rommið óblandað." Arnar Grant fitness- meistari Hornfirska skemmtifélagið mun i kvöld og á morgun sina Diskósýningu á Höfn. Lög með listamönnum eins og Donnu Summer, Tinu Charles og Gloriu Gaynor og að sjálfsögðu eru Bee Gees, Boney M, Abba, og fleiri munu hljóma. í sýningunni flytja sjö söngvarar og fimm manna hljómsveit alla heitustu diskó- smellina sem hljómuðu i Hollywood við Ármúla á sinum tima. „Það er búið aö vera troðfullt á sýningarnar hingaö til og mjög gaman að taka þátt i þessu. Næstu helgi komum við svo i bæinn og sýnum þetta á Broadway. Þaö rikir mikill tilhlökkun í hópnum fýrir því enda ekki á hveijum degi sem svona færi gefast," sagöi einn aðstandenda sýningarinnar. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Hornfiska skemmtifélagið kemst á fjalir Braodway því þangað fóru þó líka i fyrra, þá með sýninguna Með allt á hreinu sem var unn- in upp úr samnefndri Stuðmannamynd. 1 /i / < 1 1 /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.