Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2004, Page 17
r 5. növember 2004 1 i f i ð e f t i r v i n n u Kvikmyndin The Forgotten segir frá konu sem hefur nýlega misst son sinn. Þegar hún hefur syrgt í rúmt ár er henni sagt að þetta sé allt ímyndun, sonurinn hafi aldrei verið til og hún sé einfaldlega geðveik. Hún þarf því að sanna tilvist sonar síns en það reynist erfið- ara en margur myndi halda. Þetta er gæðasálfræðitryllir með Julianne Moore í aðalhlutverki Osku buífel gsm Kvikmyndin A Cinderella Story verður frumsýnd í kvöld í Sambíó- unum. Þar fer ungstirnið Hilary Duff með hlutverk Öskubusku í nútímalegri útgáfu af þessu klass- íska ævintýri. Eins og fólk þekkir segir sagan frá ungri stúlku sem er ekkert sérstaklega í náðinni hjá stjúpmóður sinni og stjúpsystrum. Hilary leikur lúðalega stelpu sem á erfitt uppdráttar í skólanum jafnt sem heima fyrir. Faðir hennar deyr í upphafi myndarinnar og þá tekur stjúpan við rekstri veitinga- staðar sem kallinn átti. Þar er Hil- ary okkar náttúrlega látin vinna öll skítverkin. Þeir fáu vin- Á ir sem hún á í skólanum £□0 gera lítið til að hjálpa henni en þegar hún 'F'ÍvSISra týnir gsm-símanum \ \V\T> sínum og hinn dular- fcflfl|^r fulli Murray finnur f J J-y hann fara hlutirnir að gerast. Þau fara að skipt- ast á sms-skilaboðum og að lokum er henni boðið á stóra skólaballið þar sem allir flottu krakkarnir verða að sýna sig. Hvort okkar stúlka kemst á ballið og hvort hún verður glæsilegust allra þar verð- ur bara að koma i ljós þegar fólk sér myndina en góðar líkur eru þó taldar á því að myndin endi vel. Með aðalhlutverk fara Hilary Duff, Chad Michael Murray, Brenda Song, Brad Bufanda og Dan Byrd og er myndin auk þess stútfull af unglingapopptónlist sem flestir ættu að kannast við. Það er Mark Rosman sem leikstýrir en handritið er skrifað af Leigh nokkrum Dunlap. Myndin verður frumsýnd í kvöld í Sambíóunum. Kvikmyndin The Forgotten verður frumsýnd í kvöld í Smárabíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri. Þetta er gæðasálfræðitryllir sem hefur gert það gott í útlöndunum fram að þessu en myndin segir frá Telly Parada, konu sem hefur ný- lega misst átta ára son sinn í flugslysi. Telly er leikinn af Juli- anne Moore en hún á mjög erfitt með að sætta sig við dauða sonar síns og ekki hjálpar það til að hún syrgir enn rúmu ári eftir andlát hans en þá tjá sálfræðing- ar og geðlæknar henni að hún hafi í raun aldrei átt neinn son og að þetta sé allt tilbúningur í hausnum á henni. Hún hefst þegar handa við að finna til hluti sem geta sannað tilvist hans, s.s. gömul mynd- bönd, myndir og fleira, en hún grípur í tómt og verður einskis vísari. Þetta gerir hana skiljan- lega enn taugaveiklaðri en áður og veldur því að hún fer alvar- lega að efast um eigin geðheilsu. Þegar hún svo hittir mann sem hefur svipaða sögu að segja fara hjólin hins vegar að snúast. Sam- an reyna þau að sanna tilvist lát- inna sona sinna um leið og þau reyna að sýna öðrum fram á að þau séu heil á geði, þvert á það sem allir halda. Þetta reynist að sjálfsögðu erfitt og alls kyns sam- særiskenningar koma upp á yfir- borðið sem sumar reynast sann- ar á meðan aðrar eru hreinasta bull. Myndin þykir vel leikin í alla staði og mjög spennandi á köfl- um. Með aðalhlutverk fer áður- nefnd Julianne Moore ásamt á Dominic West, Gary Sin- ise, Jessica Hecht og Anthony Edwards. Handritishöfundur er Gerald Di Pego sem á að baki fjölda kvik- mynda sem fæstar eru þó mjög þekktar en leikstjóri er Joseph Ruben sem er einna helst frægur fyrir að leikstýra myndunum Sleeping with the Enemy og Money Train. _ Myndin verður frum- Aj sýnd í kvöld í Smára- bíói, Regnboganum ^ÉJh og Borgarbíói Ak- ureyri eins og áður hefur ( ^SÍBHBapE komið fram. m$£ - rænir bio- '' haidnir i Háskóla- biói næstkonianrti tíu daga og veröa sex mynrtir þar a dagskrá. Um er að ræöa sænsku myndina Midsommar eftir leikstjórann Carstens Myllerup. Myndin fjallar uni HHJuájíLíHkA|AjiiaflULár^^r\' ára pllt sem á í erfiðleikum eftlr aö fremur sjálfs- v V• morö. Hops fjallar KnYj^BBlot?ftgtT88lSF*V ■ svo um lógreglu- . — ^KTÍMlRmn^Hflr T* menn i smábæ sem eiga ■' þaö á hættu aö missa vlnn- una þar sent þaö gerlst aldrel KjS&gBgJggKp^'* ' neitt há þcim. Mors Elling er norsk oíí er fr<imhflld hinnar vinsaclu Ht M8Sr7/v inni líkt og önnur norsk mynd, Budriy, sem áizzætifö. ■ segir frá Kristofer sem lendir i því aö sjonvarps- * þáttur sem gerður er upp úr dagbókum hans slær i ' * > gegn. Mitfo er sænsk grinmynd frá Daniets Lind-Lager- - r löf sem fjallar um prest sem reynir allt til aö auka kirkjusóknina há sér. Siöasta myndin sem i boöi veröur er iíka sænsk og kallast hún Sma/a Sussie. Hún fjallar um pilt sem leitar á æskuslóðirnar en kemst fljótt aö því að allt er breytt. u hetiur Kvikmyndin Ladder 49 verður frumsýnd nú um helgina í Sam- bíóunum. Það eru kapparnir John Travolta og Joaquin Phoenix sem fara með aðalhlutverkin í þessari dramatísku spennumynd sem óneitanlega hefur eitthvað að gera með 11. september. Myndin segir frá slökkviliðsmönnum i Baltimore sem þurfa oftar en ekki að leggja lif sitt í hættu þegar þeir glíma við erfiða eldsvoða. Persóna Phoenix, Jack Morrison, verður eftir inni í stórbyggingu í stórum eldsvoða. Slökkviliðsstjórinn, Mike Kennedy, sem leikinn er af Travolta, leggur þá á ráöin uni að bjarga kappanum úr þessari miklu hættu. Við fáurn að sjá hetjur berj- ast við eldinn meira eða minna alla myndina en auðvitað fléttast inn i þetta rómantík og fleira skemmtiiegt. Myndin þykir mjög vel gerð og áhættuatriðin eru mörg hver stórkostlega vel framkvæmd en margir áhættuleikarar komu að gerð myndarinnar enda er hún uppfull af hetjudáðum sem ekki eru á hvers manns færi. Með að- alhlutverk fara áðurnefndir John Travolta og Joaquin Phoenix auk Jacinda Barrett, Robert Patiick, Billy Burke og fleiri. Það er Jay Russell sem leikstýrir en Lewis Colick er höfundur sögunnar en hann skrifaði m.a. Domestic Distur- bance, October Sky og Ghosts of Mississippi. ? J i t mm &g [ zJt|

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.